Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 15.11.1997, Page 63

Læknablaðið - 15.11.1997, Page 63
GG£#R COMR' (lósartan 50 mg/HCTZ 12,5 mg, MSD) Fyrsti AII hemillinn í lyfjablöndu Hagstætt verð COZ4FR (lósartan, MSD)1105 kx. d dd0 (heildarverð) COZ4NICOMR: 105 kr. á dag B-merkt lyf - 100 daga skammtur kostar 1500 kr. fyrir sjúklinginn Þolist vel - Cozaar Comp. (MSD, 950133) Töflur; C09 DA 01 R B Hver tafla inniheldur: Losartanum INN, kaliumsalt, 50mg og hydrochlorothiazidum INN 12,5 mg. Eiginleikar: Lósartan blokkar AT1 viðtæki í vefjum, meðal annars í sléttum veggjum æða. Lyfið keppir við angíótensín II hormón og kemur í veg fyrir samdrátt grannra slagæða og lækkar blóðþrýsting. Plasma renín virkni og angíótensín II þéttni i sermi eykst þegar lyfið er gefið. Lósartan frásogast að fullu. 2/3 hlutar lyfsins umbrotna fljótt og aðgengi er 33 %. Lyfið umbrotnar í lifur og eitt umbrotsefni er virkt. Hámarksþéttni lyfsins i sermi næst eftir 1 klst, en umbrotsefnið hefur miklu lengri helmingunartima, eða um 9 klst. Eftir 24 klst er enn verulegur hluti virks umbrotsefnis í sermi. Helmingur (58%) umbrotsefna útskiljast í hægðum og 35% i þvagi. Nýmabilun hefur ekki áhrif á útskilnað lyfsins, en hjá lifrarbiluðum einstaklingum er aðgengi vemlega aukið. Tíazíð er þvagræsilyf með blóðþrýstingslækkandi verkun. Blokkar enduruppsog natriumjóna í nýrnagöngum og eykur nýrnaútskilnað natriums. klóríðs, kalsíums, magnesíums, bíkarbónats og vatns. Minnkar nýrnaútskilnað kalíums. Lengd verkun- ar er 6—12 klst. Ábendingar: Háþrýstingur, hjá sjúklingum sem þurfa á fjöllyfjameðferð að halda. Frábendingar: Ofnæmi fyrir innihaldsefnum. Sjúklingar með þvagþurrð (anuria). Sjúklingar með ofnæmi fyrir súlfonamíð- afleiðum. Meðganga og brjóstagjöf: Lyfið á ekki að nota á meðgöngu þar sem lyf skyld lósartani, ACE-hamlar, geta valdið fósturskemmdum. Ekki á heldur að nota lyfið hjá konum með börn á brjósti, þar sem tíazíð skiljast út í brjóstamjólk, en ekki er kunnugt um hvort lósartan skilst út i brjóstamjólk. Varúð: Lyfið á ekki að nota hjá sjúkl- ingum með skerta lifrarstarfsemi eða alvariega skerta nýrnastarfsemi (kreatininklerans <30 ml/mín). Lyfið á ekki að nota hjá sjúklingum með þrengsli í nýrnaslagæðum. Eins og á við um alla háþrýstingsmeðferð getur lágþrýst- ingur með einkennum komið fyrir. Þetta sést helst hjá sjúklingum með vökva- og elektrólýtatruflanir. Mælingar á elektrólýtum á að framkvæma með viðeigandi millibili, eins og hjá sjúklingum, sem fá meðferð með þvagræsi- lyfjum. Tíaziðmeðferð getur haft áhrif á sykurþol. Leiðréttingar á lyfjaskömmtum við meðferð á sykursýki, þ.m.t. viðbótarverkun m> insúlínskömmtum, getur verið nauðsynleg. Aukaverkanir: Algengar (>1%): Almennar: Svimi. Sjaldgætar (0,1- 1%): Stöðubundinn lágþrýstingur. Mjög sjaldgæfar (<0,1%): Almennar: Ofnæmisbjúgur (einkum íandliti, vörum og tungu). Meltingartærí: Niðurgangur. Breytingará blóðgildum: í klínískum rannsóknum voru klínískt mikilvægar breytingar á blóðgildum sjaldan tengdar Cozaar Comp. gjöf. Hækkað kalíum í blóði (>5,5 mmól/l) kom fyrir hjá 0,3% sjúklinga, en í þessum rannsóknum, var ekki þörf á að hætta meðferð með Cozaar Comp. vegna hækkunar á kalíum í blóði. Hækkanir á ALAT komu sjaldan fyrir og gengu venjulega tilbaka þegar meðferð var hætt. Milli- verkanir: Engar þekktar vegna lósartans. Eftirfarandi lyf gætu haft milliverkun við tíazíð þvagræsilyf: Alkohól, barbitúröt eða svefnlyf (aukning á ortóstatískum lágþrýstingi getur komið fyrir), sykursýkislyf (í töfluformi eða in- súlín, þörf getur verið á að leiðrétta skammta á sykursýkislyfi), önnur háþrýstingslyf (viðbótaráhrif á blóðþrýst- ing), kólesterólamín og kólestipól (gallsýrubindandi lyf, frásog af hýdróklórtiazíði minnkar þegar gallsýrubindandi lyf er gefið með), barkstera og ACTH (aukin hætta á kalíumskorti), litíum (þvagræsilyf minnka nýrnaútskilnað lití- ums og auka hættu á litíumeitrun), bólgueyðandi lyf (geta minnkað blóðþrýstingslækkandi áhrif þvagræsilyfs). Skammtastærðir handa fullorðnum: Venjulegur upphafs- og viðhaldsskammtur er ein tafla einu sinni á dag. Hámarksskammturinn er tvær töflur einu sinni á dag. Oftast nást blóðþrýstingslækkandi áhrif innan þriggja vikna frá upphafi meðferðar. Sömu skammta má gefa öldruðum. Lyfið má gefa með öðrum háþrýstingslyfjum. Cozaar Comp. má gefa með eða án matar. Skammtastærðir handa börnum: Lyfið er ekki ætlað börnum. Pakkningar og verð: 28 stk (þynnupakkað); 3523 kr (sept, 1997) 98 stk (þynnupakkað). 10276 kr.(sept, 1997) íslenskur umboðsaðili: Farmasía ehf, Síðumúla 32,108 Reykjavík. *Skráð vörumerki af E.l.du PONT de NEMOUR & CO., Wilmington. Tilv.: Mac Kay et al. Losartan and Low-Dose Hydrochlorothiazide in patients with Essential Hypertension. A Double Blind Piacebo-Controlled Trial of Concomitant Administration Compared with Individual Components. Arch Intern Med 1996;156:278-285. API-HYZ-DK-0397. HEIMBURGER, Juli 1997 / PRENTTÆKNi

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.