Fréttatíminn - 05.11.2010, Blaðsíða 2
Gunnhildur Arna
Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Gjaldþrotum fækkar en
fjárnámum fjölgar
í nýjum tölum sem Creditinfo hefur tekið
saman kemur fram að gjaldþrot í ár eru
25% færri en í fyrra. Á sama tíma hefur
hins vegar árangurslausum fjárnámum
fjölgað um 17%. Í samantektinni bendir
Creditinfo á að vandræði íslenskra fyrir-
tækja kristallist frekar í fjölda árangurs-
lausra fjárnáma heldur en gjaldþrotum og
því þurfi að finna úrræði fyrir þau.
25%
Fækkun
gjaldþrota Frá
árinu áður
Creditinfo
Selur mömmu sinni
lúxusvillu á Laufásvegi
jón ásgeir seldi húsið á 107 milljónir til
að eiga fyrir himinháum lögfræðikostnaði
vegna málaferla við skilanefnd glitnis
í new York
Dómsmál lögfræðikostnaður
a thafnamaðurinn Jón Ásgeir Jó-hannesson hefur selt lúxusvillu sína á Laufásvegi. Kaupandinn
er móðir hans, Ása Karen Ásgeirsdótt-
ir, og kaupverðið er 107 millljónir sam-
kvæmt þinglýstum kaupsamningi.
„Ég þurfti að selja húsið til að
mæta lögfræðikostnaði vegna
málaferlanna í New York.
Mamma hljóp undir bagga
þannig að ég þurfti ekki að
selja húsið á brunaútsölu
núna. Það er í gildi leigu-
samningur til 31. október
2011 og ég geri ráð fyrir
að húsið verði selt þegar
hann rennur út,“ segir
Jón Ásgeir í samtali við
Fréttatímann.
Hann segist vinna
að því að selja allar
eignir sínar á Íslandi
til að eiga fyrir lög-
fræðikostnaði sem er
að sliga hann, að hans
sögn.
Húsinu glæsilega á laufásvegi verður haldið innan fjölskyldunnar í bili að minnsta kosti. Ljósmynd/Teitur
Á húsinu hvílir kyrrsetningarbeiðni
frá skilanefnd Glitnis upp á 192 milljón-
ir og sagði Jón Ásgeir söluna á húsinu
gerða með vitund og vilja skilanefnd-
ar Glitnis. Kyrrsetningin verður felld
niður við fullnaðargreiðslu af húsinu
hinn 15. nóvember næstkomandi.
Jón Ásgeir keypti húsið árið 1999.
Það er 362 fermetrar að stærð og var
byggt árið 1929. Hann bjó í húsinu í
nokkur ár áður en hann flutti inn til
núverandi eiginkonu sinn-
ar, Ingibjargar Stefaníu
Pálmadóttur. Síðan þá
hefur húsið verið í út-
leigu. Fyrst til athafna-
mannsins Magnúsar
Ármanns og síðan raf-
bílakóngsins Gísla
Gíslasonar sem býr í
því í dag.
Óskar Hrafn
Þorvaldsson
oskar@
frettatiminn.is
Ég þurfti að selja húsið til að mæta lögfræðikostnaði vegna
málaferlanna í New York. Mamma hljóp undir bagga þannig
að ég þurfti ekki að selja húsið á brunaútsölu núna.
Jón Ásgeir Jó-
hannesson segist
hafa verið neyddur
til að selja laufás-
veginn til að borga
lögfræðikostnað.
Stórir bílar hækka í verði
Ný lög um kerfisbreytingu á koltvísýringi
gera það að verkum að vörugjald á stórum
jeppum, sem losa mikinn koltvísýring, mun
hækka um allt að 750 þúsund krónur. um
er að ræða bíla á borð við Mitsubishi Paj-
ero, Porsche Cayenne og Ford Expedition.
að sama skapi mun vörugjald lækka á
bílum á borð við toyota aygo, toyota Yaris
og Skoda octavia. -óhþ
Ekkert fréttist af Sjóvá
Enn er beðið eftir svari Más guðmunds-
sonar Seðlabankastjóra við tilboði
fjárfestahóps undir forystu Heiðars Más
guðjónssonar og ársæls Valfells í Sjóvá.
Eftir því sem Fréttatíminn kemst næst
vantar aðeins svar Más en búist var við því
að lokasvar kæmi í þessari viku. -óhþ
Segja Sérstakan
ekki hafa leyfi til að
rannsaka og ákæra
lögmenn jóns þorsteins jónssonar, ragn-
ars Zophaníasar guðjónssonar og Styrmis
Bragasonar, sem ákærðir eru af embætti
Sérstaks saksóknara fyrir umboðssvik í
tengslum við milljarðs lánveitingar Byrs til
Exeter Holdings, hafa farið fram á frávísun
í málinu. rök þeirra eru að Sérstakur
saksóknari hafi ekki leyfi samkvæmt
lögum um embættið til að rannsaka þetta
sérstaka mál þar sem það falli ekki undir
þá skilgreiningu að hafa á nokkurn hátt
tengst setningu neyðarlaganna 6. október
2008. -óhþ
neytendastofa skoðar
orkuna
neytendastofa
skoðar nú hvort
auglýsingar
orkunnar um
orkuvernd, þar
sem fyrir-
tækið lofar lægsta verði í landshlutanum,
standist lög. glöggur viðskiptavinur tók
eftir því um helgina að bæði Skeljungur,
móðurfélag orkunnar, og olís voru með
fimm krónum lægra verð á bensínlítranum
en orkan í garðabæ. -óhþ
leiðrétting
Í viðtali við Heiðar Már guðjónsson í
Fréttatímanum síðastliðinn föstudag
var greint frá því að ágúst Valfells væri
í hópnum sem vildi kaupa Sjóvá. það er
ekki rétt því ársæll Valfells er í hópnum. Er
beðist velvirðingar á þessu.
Framlög bæjarfélaga á hvert barn í sjálf-
stætt reknum grunnskólum var 73%
af kostnaði við skólana sem þau ráku
sjálf árið 2008. Sama ár voru greiðslur
í sjálfstætt reknum leikskólum 86% af
greiðslum til leikskóla bæjarfélaganna,
sé tekið tillit til aldurs. Þetta kemur
fram í nýrri skýrslu sem Hagfræðistofn-
un Háskóla Íslands vann fyrir Samtök
sjálfstæðra skóla og Samtök verslunar
og þjónustu.
„Fölmargir halda að sjálfstætt starf-
andi skólar snúist um gróðabrall en hér
gerum við okkar hluti fyrir minni pen-
inga en nokkurt sveitarfélag,“ segir Mar-
grét Pála Ólafsdóttir, formaður Samtaka
sjálfstætt starfandi skóla og fræðslustjóri
Hjallastefnunnar.
„Þetta eru ódýrustu skólar landsins
og við erum stolt af því að segja án þess
að hika að við höfum ekki tapað neinu í
gæðum,“ segir Margrét Pála og bendir
á að þeir séu reknir af hugsjón: „Sjálf-
stætt reknir skólar eru ekki munaður vel
stæðra foreldra.“
Í skýrslunni stendur að meðalkostn-
aður á nemanda í öllum grunnskólum
sem íslensk sveitarfélög reka hafi að
mati Hagstofunnar verið um 1.150 þús-
und krónur árið 2008 en greiðslur bæjar-
félaga á hvern nemanda í sjálfstætt rekn-
um grunnskólum um 840 þúsund krónur
árið 2008.
„Mín hugmynd er að það eigi að vera
ávinningur fyrir alla að sjálfstætt reknir
skólar starfi,“ segir Margrét en ítrekar
að sambland af einkareknum og opin-
berum skólum fari vel og að sveitarfé-
lögin verði að hagnast á því að að láta
aðra sjá um rekstur skólana. „Þá finnst
mér að foreldrar eigi að hafa val - þeir
hagnast á því.“
skólar rekstur einkaskóla
Einkareknir skólar fjórðungi ódýrari
Skólastjórinn með krökkunum sínum í skóla
Hjallastefnunnar í Öskjuhlíð. Ljósmynd/Hari
2 fréttir Helgin 5.-7. nóvember 2010