Fréttatíminn - 05.11.2010, Blaðsíða 72
Matreiðslubók Disney
skákar Rannsóknar-
skýrslu
Skýrsla Rann-
sóknarnefndar
Alþingis hefur
verið mest selda
bók ársins allt frá
því að hún kom
fyrst út í apríl.
Þau undur og stórmerki gerðust
hins vegar í síðustu viku að Stóra
Matreiðslubókin frá Disney, sem
Edda gefur út, skaust upp fyrir
skýrsluna í efsta sætið yfir mest
seldu bækur ársins á lista Félags
íslenskra bókaútgefenda. Jón
Axel Ólafsson hjá Eddu segir í
samtali við Fréttatímann að salan
hafi verið betri en menn gerðu
ráð fyrir. „Við höfum selt um tíu
þúsund bækur og hún er uppseld
hjá okkur. Undirbúningur að
annarri prentun stendur yfir því
að við teljum eftirspurnina ennþá
vera mikla,“ segir Jón Axel.
Spurður um ástæðu þessa góða
gengis segir Jón Axel einfald-
lega: „Disney virkar.“
Tvíhöfði í sjónvarp
Tvíhöfði, gríndúett Jóns Gnarr
og Sigurjóns Kjartanssonar,
gæti verið
á leið í
sjónvarp.
Þetta
staðfestir
Jón í sam-
tali við
Fréttatímann. Hann er þó ófáan-
legur til að gefa upp hvar þáttur-
inn verður sýndur eða hvenær
því undirbúningur sé kominn
skammt á veg. Tvíhöfði var síðast
á útvarpsstöðinni Kananum.
Baileys heiðrar Línu,
Hörpu og Unu
Þrjár íslenskar listakonur, þær
Lína Rut, Harpa Einarsdóttir
og Una
Hlín
Krist-
jánsdótt-
ir, verða
heiðr-
aðar á
listakvöldi Baileys í Sjóminja-
safni Reykjavíkur á Grandagarði
í kvöld, föstudagskvöld. Eftir
því sem fram kemur í tilkynn-
ingu fá stöllurnar viðurkenningu
fyrir að hafa sett mark sitt á tísku
og tíðaranda með dugnaði og
framúrskarandi listrænni sýn.
Við athöfnina verða verk þeirra
þriggja boðin upp.
HELGARBLAÐ Hrósið…
... fær Erpur Eyvindarson,
Blaz Roca, fyrir að draga
meistarann Ragga Bjarna
á flot í hinu frábæra lagi
Allir eru að fá sér.
Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300 ritstjorn@frettatiminn.is www.frettatiminn.is
Á siminn.is sérðu hvort þitt heimili hefur aðgang að Sjónvarpi Símans.
Til að ná Sjónvarpi Símans þarf að hafa ADSL tengingu hjá Símanum.
Mesta úrval landsins
heima í stofu
Það er
Fyrir aðeins 790 kr. á mánuði færðu opnu, íslensku stöðvarnar og þrjár
erlendar. Einnig færðu SkjáBíó þar sem þú getur leigt þér þúsundir
bíómynda og auk þess séð sjónvarpsþætti og úrval efnis á 0 kr.
Fáðu þér Sjónvarp Símans í 800 7000, á siminn.is eða í næstu verslun.
Sjónvarp Símans
Sími
Netið
Sjónvarp
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
4
3
7
5
5