Fréttatíminn - 05.11.2010, Blaðsíða 20

Fréttatíminn - 05.11.2010, Blaðsíða 20
Jóhanna og Óttar eru ástfangin upp fyrir haus. Ljósmynd/Teitur „Finnst ég hafa svifið á bleiku skýi undanfarin ár“ H láturmild, lifandi, iðandi af fjöri, orku- bolti, söngkona og umfram allt einkar sjarmerandi og eft- irminnileg. Þeir sem fylgst hafa með Jóhönnu Þórhallsdóttur, söng- konu og kórstjóra, í gegnum árin og notið listsköpunar hennar, gera sér trúlega ekki ljóst að lífið hefur ekki alltaf verið henni létt. En það eru aðeins fáir útvaldir sem vita að hún hefur gengið í gegnum erfið átök við samvisku sína, lífsgildin sem hún var alin upp við og hafði sett sjálfri sér, auk tilfinninga sem stundum taka öll ráð af skynsem- inni. Eigi að síður berjast þessir tveir þættir í lífi okkar harðri bar- áttu – já, jafnvel daglega, án þess að við gerum okkur það ljóst. Glíman stóð á milli viðtekinna siðferðis- legra gilda annars vegar og forboð- innar ástar hins vegar. Fyrir rúmlega fjórum árum gátu hún og maðurinn sem hún hafði elskað í mörg ár loks gert upp hug sinn, og þau ákváðu að koma fram sem ein heild, staðráðin í að eyða ævinni saman. Maðurinn sem átti hjarta Jóhönnu er Óttar Guðmundsson, læknir og rithöfundur, sem skrifað hefur nokkrar bækur. Óttar er sprottinn úr jarðvegi þar sem menning var í hávegum höfð. Steinn Steinarr, Karl Ísfeld og Svavar Guðnason voru þar heimagangar. Faðir hans, Guð- mundur Sigurðsson, vann í banka og samdi revíur og gamanþætti í frí- stundum. Hann var afbragðs hag- yrðingur og margar vísur hans urðu landsþekktar. Fjóla Haraldsdóttir, móðir hans, var mikill listunnandi og vann í heilbrigðisráðuneytinu. Fjölskyldan bjó í miðbænum; for- eldrarnir, Óttar og Steinunn syst- ir hans sem fædd er 17. júní 1944 og er því nákvæmlega jafn gömul lýðveldinu. „Ég varð læknir fyrir einhvern misskilning. Mig langaði mun frekar að læra sagnfræði eða þýsku. Löngu síðar fór ég til Þýska- lands, einmitt til að læra sagnfræði og þýsku, og eftir þá dvöl var ég bara ánægður með að hafa farið í læknisfræðina. En það tók liðlega þrjátíu ár að sætta sig við þá ákvörð- un. Ég hef alltaf verið lengi að gera upp hug minn!” Jóhanna er sprottin úr öðrum jarðvegi. Hún ólst upp í Háaleitinu í stórfjölskyldu sem samanstóð af foreldrum, bræðrum og afa og ömmu. Foreldrar hennar, Þórhall- ur Jónsson húsasmíðameistari og Guðmunda Guðmundsdóttir, voru gegnir borgarar af millistétt sem stóðu föstum fótum á jörðinni og þar var enga bóhema að finna þótt oft væri glatt á hjalla og mikið sungið. Jóhanna hefur væntanlega sótt í ein- hverja forfeður sína listamannseðlið og bóhemskan lífstíl sem átti ekki síður við hana en Óttar. Allt auðvelt með ást og eldmóði Óttar og Jóhanna stofnuðu sitt eigið heimili í Austurborginni. Þar gefur að líta fjölbreytt safn muna úr ýms- um áttum eins og oft vill verða þeg- ar roskið og ráðsett fólk með marg- ar sambúðir að baki ruglar saman reytum. Óttar er enn að skrifa og er að leggja lokahönd á enn eina kyn- lífsbókina. „Nú á endanlega að gera upp hjónaband Gunnars og Hall- gerðar,“ segir Óttar glaður í bragði. „Mér líður alveg óskaplega vel, hef aldrei verið eins ástfangin og hamingjusöm. Þegar ég horfi til baka hef ég svifið á bleiku skýi í fjögur ár,“ segir Jóhanna. „Ég stjórna stærsta kvennakór landsins, Léttsveit Reykjavíkur sem telur vel rúmlega hundrað konur, auk þess að kenna í Söngskóla Sigurðar De- metz og sjá um barna- og unglinga- kórana í Bústaðakirkju. Þar er ég með hundrað börn, takk fyrir, og held uppi brjáluðu stuði þrjá daga í hverri viku. Nú ætla ég að láta gaml- an draum rætast og halda tónleika. Ég er búin að kalla saman einvala- lið hljóðfæraleikara, Aðalheiði Þor- steinsdóttur, Matta Kallio, Gerrit Schuil, Pál Eyjólfsson, Gunnar Hrafnsson og Kjartan Guðnason, auk tveggja söngkvenna, Signýjar Sæmundsdóttur og Hildigunnar Einarsdóttur. Saman ætlum við að gangast fyrir fjölbreyttri söng- Jóhanna Þórhallsdóttir tón- listarkona hefur gengið í gegnum ýmislegt án þess að bera það með sér. Ástin hefur verið hverful og henni og manninum, sem átt hefur hjarta hennar um árabil, hefur ekki auðnast að ná saman fyrr en nú. Í einlægu spjalli við Bergljótu Davíðsdóttur talar hún um líf sitt, listina, orkuna, súr- sætu árin og ekki síst aflið sem ástin er og gaf henni hamingjuna sem henni auðnaðist að lokum að höndla með manni lífs síns. Allt er svo auðvelt þegar maður er fullur af eld- móði og ást. Við Óttar náðum loksins saman eftir að hafa þekkst í þrjátíu ár. 20 viðtal Helgin 5.-7. nóvember 2010
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.