Fréttatíminn - 05.11.2010, Blaðsíða 40

Fréttatíminn - 05.11.2010, Blaðsíða 40
Umræður og fréttir af meintri stöðutöku gegn íslensku krónunni undanfarnar vikur eru dæmigerðar fyrir hvernig aukaatriði eru gerð að aðalatriðum. Vissulega er fréttnæmt ef einhverjir hákarlar viðskipta- lífsins, hvort sem þeir eru innlendir eða útlendir, hafa verið að spila með gjaldmiðil landsins. Aðalatriðið í þeirri frétt er þó ekki spila- mennskan, heldur af hverju í ósköpunum íslenska krónan var komin í þá stöðu að allir helstu vogunarsjóðir heims tóku sig til og urðu sérfræðingar um hana. Þessi menntaþorsti vogunarsjóð- anna  og stöðutökur, sem sannarlega fóru fram, gegn krónunni, voru afleið- ing. Hver var orsökin? Í raun er það sérstakt rannsóknarefni að skoða af hverju þeir, sem fóru með stjórn efnahagsmála lands- ins, leyfðu gengi krónunn- ar að ná þeim ógnarstyrk sem hún hafði, sérstaklega á árunum 2005 til 2007, áður en óhjákvæmilegt fall hófst í árs- byrjun 2008. Sannleikurinn er sá að fjármálakerfi okkar hvíldi á agnarsmáum og viðkvæm- um gjaldmiðli. Undirstaðan var sem sagt mjög ótraust. Strax síðla árs 2005 höfðu fulltrúar ýmissa vogunarsjóða áttað sig á þessari stöðu. Gengi krónunnar féll hraustlega í byrjun árs 2006 en um vorið tókst að hrinda því sem kallað var árás vogunarsjóða á gjald- miðilinn. Seðlabankinn, bankarnir, líf- eyrissjóðirnir og stjórnvöld tóku höndum saman til að hrinda árásinni, eins og fyrst var lýst í bók Ásgeirs Jónssonar hag- fræðings, Why Iceland?, og síðar í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Framhaldið er þekkt. Í stað þess að staldra við og taka áhuga vogunarsjóð- anna á krónunni og íslensku efnahagslífi alvarlega, slógu bankarnir í klárinn og tvöfölduðu umfang sitt á næstu tveimur árum. Á hliðarlínunni stóðu þáverandi stjórnendur Seðlabankans, ánægðir svo lengi sem gengi hinnar ástkæru íslensku krónu hjálpaði þeim við að vera ekki alltof fjarri verðbólgumarkmiðum bankans, sem reyndar gekk ekkert sérstaklega vel hjá þeim. Afleiðingin varð enn meira tjón en hefði þurft að verða þegar bankarnir sprungu loks á limminu haustið 2008. Það fall varð ekki vegna vondra spákaupmanna. Og þeir orsökuðu ekki heldur hrun krónunnar. Það er bláeygur barnaskapur að halda að íslensk króna eigi erindi aftur óstudd út á hinn opna alþjóðlega fjármagnsmarkað, án þess að því fylgi miklar sveiflur á gengi. Við komumst ekkert fram veginn með því að kvarta yfir vondum kapítalistum sem nýta sér veikleika krónunnar, eins og til dæmis fyrrverandi stjórnendur Seðla- bankans gerðu ítrekað. Kapítalistarnir munu ekki kveðja mark- aðinn, það er gjaldmiðill landsins sem þarf að breytast. Það liggur á að komast að því með hvaða hætti það verður gert. 40 viðhorf Helgin 5.-7. nóvember 2010 Orsök og afleiðing Aukaatriði í aðalhlutverkum Sætúni 8, 105 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jón Kaldal kaldal@frettatiminn.is Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson teitur@frettatiminn.is Fréttastjóri: Óskar Hrafn Þorvaldsson oskar@frettatiminn.is Ritstjórnarfulltrúi: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Miðopnu ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti. Jón Kaldal kaldal@frettatiminn.is Fært til bókar Loks kallaður til yfirheyrslu Tölvuhakkarinn sem grunaður er um að hafa stolið trúnaðargögnum frá Gunn- ari Gunnarssyni lögfræðingi er vörðuðu fyrirtæki og einstaklinga sem hann hafði unnið fyrir, þar á meðal Milestone, var loks kallaður á fund lögreglu nú í nýliðn- um október, eftir að Fréttatíminn greindi frá kæru hans. Í kærunni óskaði pilturinn m.a. eftir því að fá tölvur og fleiri gögn sem tekin voru af honum við húsrannsókn og benti um leið á að þótt liðnir væru átta mánuðir (í september) frá því að gögnin voru tekin, hefði hann ekki verið kallaður til yfirheyrslu. Það fer væntanlega eftir gangi rannsóknar málsins hvenær tölvum og gögnum verður skilað en Jón H. B. Snorrason aðstoðarlögreglustjóri sagði við Fréttatímann að gögnum sem þessum ætti ekki að halda að nauðsynjalausu. Tafið af list Vart er ofmælt að rússnesku Sukhoi SU-30 herþoturnar sem Kristján Möller leyfði á síðustu metrum samgönguráðherratíðar sinnar vefjist fyrir arftakanum Ögmundi Jónassyni. Nokkuð er um liðið síðan fyr- irtækið E.C.A. Program kynnti fyrst hug- myndir sínar um að skrá og starfrækja þot- urnar á Keflavíkurflugvelli til þjálfunar og æfinga. Forráðamenn fyrirtækisins segja starfsemina skapa 150 störf auk þeirrar þjónustu sem fylgir. Það freistar manna á Suðurnesjum þar sem atvinnuleysi er mest á landinu. Vandinn er hins vegar sá að þetta eru hertól og trauðla að skapi Ög- mundar, jafnvel þótt vopnlaus séu. Málið er því tafið snilldarlega með „kerfislægum“ hætti, án þess að því sé beinlínis hafn- að. Það má lesa í niðurlagi tilkynningar ráðuneytisins vegna málsins en þar segir: „Ráðuneytið hefur, eins og áður er fram komið, haft þessi mál til skoðunar. Ljóst má vera að allnokkur undirbúningur, sem gæti tekið langan tíma, þyrfti að eiga sér stað ef setja á reglur hér að lútandi sem eru í samræmi við íslensk lög á þessu sviði og alþjóðaskuldbindingar. Einnig má ljóst vera að mikill kostnaður fylgir þeim undir- búningi og fjárveitingar eru ekki fyrirliggj- andi. Ráðuneytið tekur undir með Flug- málastjórn að verkefni þetta samræmist illa hefðbundnum verkefnum borgaralegra flugmálayfirvalda.“ Betur verður máli varla ýtt út af borði en svona. Nei Heimssýn, hreyfing sjálfstæðissinna í Evr- ópumálum, eru samtök þeirra sem telja hagsmunum Íslendinga best borgið utan Evrópusambandsins. Markmið hreyfingar- innar er að stuðla að opinni umræðu um Evrópu- og alþjóðasamstarf. Sagan segir að forráðamenn Heimssýnar hafi í þessu skyni, þ.e. að stuðla að Evrópuumræðu, sótt um styrk til Evrópusambandsins. Sömu heimildir greina hins vegar að svar ESB hafi verið pent nei. Kannski kemur það ekki alveg á óvart. Biskup á leik Varla una Íslendingar því að skreyta kirkjur sínar stolnum munum. Í heimildar- mynd Hjálmtýs Heiðdal og Karls Smára Hreinssonar í Ríkissjónvarpinu á dögun- um kom fram að steindir gluggar í Akur- eyrarkirkju og Áskirkju eru þýfi, komnir úr dómkirkjunni í Coventry á Englandi. Glugg- arnir eru breskar þjóðargersemar og eiga væntanlega hvergi heima annars staðar en í Coventry. Nú á Karl Sigurbjörnsson biskup leik. Hvorki hann né þjóðkirkjan hafa átt sjö dagana sæla að undanförnu. Biskupinn getur bætt prikastöðuna með því að beita húsbóndavaldi og sjá til þess að gluggunum verði komið til réttra eig- enda hið bráðasta. A ð minnst a kosti móður-mál ið, svo mikið er víst, en aldrei skulu menn samt gleyma því að eitt er að kenna, annað er að læra. Lítið dæmi um það er sagan um menn- ina sem voru úti að ganga með hundana sína og annar þeirra sagði: „Ég er búinn að kenna hundinum mínum að syngja.“ „Hvað segirðu,“ sagði hinn, „hvaða lag syngur hann?“ „Ég sagðist vera búinn að kenna honum að syngja,“ svaraði hann, „ég sagði ekki að hann gæti sungið.“ Síðan er það svo að börnin læra með sínu móti hvert það sem fyrir þeim er haft. Gott dæmi um það er ljóð eftir Önnu Akhmatovu sem Vilborg Dag- bjartsdóttir þýddi og heitir Napó- leon: Börn, hvenær var Napóleon Bonaparte fæddur? spyr kennarinn. Fyrir þúsund árum, segja börnin. Fyrir hundrað árum, segja börnin. Enginn veit það. Börn, hvað var það sem Napóleon Bonaparte gerði? spyr kennarinn. Hann vann stríð, segja börnin. Hann tapaði stríði, segja börnin. Enginn veit það. Slátrarinn okkar átti hund segir Frankí og hann hét Napóleon og slátrarinn okkar var vanur að berja hann og hundurinn dó úr hungri fyrir ári. Og nú vorkenna öll börnin Napóleon Hér fór umræðan sem sé eitthvað á svig við það sem lagt var upp með og allir kennarar þekkja úr starf i sínu. Það er líka miklu nærtækari raunveruleiki að vorkenna einum hundi heldur en að læra um einhvern karl sem dó fyrir löngu! Hér má líka taka dæmi af vís- unni sem ágætur bóndi austur á Hér- aði orti um prest- inn sinn: Merkilegt er hvað margir lof ´ann menn sem aldrei hafa séð´ann skrýddan kápu Krists að ofan, klæddan skollabuxum neðan. Nú er þetta að vísu heldur ófögur mannlýsing og er þá frá því að segja að öðrum bónda í sveitinni var jafn- illa við prestinn og vildi læra þessa vísu. Hermt er að það hafi tekið hann þrjú ár og var kveðskapurinn þá svona í huga bónda: Merkilegt er hvað margir lof ´ann að ofan menn sem aldrei hafa séð´ann að neðan. Eiginlega eru báðar þessar vísur snilld og kannski segir seinni vísan okkur að enginn lærdómur eigi sér stað í kennslustofunni nema börn- in tileinki sér eitthvað af því sem kennarinn hefur fyrir þeim, en sá lærdómur verður ekki inngróinn og marktækur fyrr en börnin gefa hon- um persónulegt yfirbragð og laga hann að skilningi sínum og áhuga. Skóli og þjóðfélag Læra börn það sem fyrir þeim er haft? Sölvi Sveinsson skólastjóri Landakotsskóla Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is Listmunauppboð í Galleríi Fold Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu fer fram mánudaginn 8. nóvember, kl. 18 í Galleríi Fold, á Rauðarárstíg Á uppboðinu er úrval góðra verka, meðal annars fjölmörg verk gömlu meistaranna Verkin verða sýnd: í dag föstudag 10–18, laugardag 11–17, sunnudag 12–17, mánudag 10–17 Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is Eggert M agnússon
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.