Fréttatíminn - 05.11.2010, Blaðsíða 8
Jónas
Haraldsson
jonas@
frettatiminn.is
Sími 569 3100 • Stórhöfða 25 • www.eirberg.is
Slakaðu á heima
• Sjálfvirkt og stillanlegt nudd
• Djúpslökun með infrarauðum hita
• Stillanlegt Shiatsu herða- og baknudd
Úrval nuddsæta - verð frá 23.750 kr.
Verið velkomin í verslun okkar og prófið.
Opið virka daga kl. 9 -18
og á laugardögum kl. 11 - 16
4. - 6. nóvember
fimmtudag til laugardags
Opið fimmtudag og föstudag kl. 10-18, laugardag kl. 11-17
Verslunarmiðstöð í hjarta hafnarfjarðar
Barna-
dagar © 2010-1
1
—
H
ön
nu
na
rh
ús
ið
e
hf
.
Fjöldi tilboða í verslunum
Farðu inn á www.oddi.is
og búðu til persónulega gjöf.
Spil og jóladagatöl með þínum myndum.
Hannaðu þín
eigin spil eða
jóladagatal
á oddi.is
O líudreifing hefur kært til umhverf-isráðuneytisins þá niðurstöðu Umhverfisstofnunar að neita
álveri Alcan í Straumsvík um að nota verk-
smiðjuolíu. Synjun stofnunarinnar hefur
víðtækari áhrif því hún fór ofan í saumana
á endurvinnslu Olíudreifingar í Örfirisey
og telur að farga eigi olíunni – hún sé úr-
gangsolía. Áhrifin láta ekki á sér standa;
kostnaður fiskimjölsverksmiðju Ísfélags
Vestmannaeyja á Þórshöfn rýkur upp um
milljónir króna á ári, staðfestir Rafn Jóns-
son, rekstrarstjóri þar.
„Við höfum blandað þessari endurunnu
olíu saman við svartolíu og náð þannig
að spara umtalsvert því við erum í þeirri
aðstöðu hér að geta ekki notað rafmagn
til framleiðslunnar.“ Olían endurunna
segir hann að sé á bilinu 15 til 20 krónum
ódýrari en svartolían sem annars standi
til boða. Hann kaupi á bilinu 1.000 til
3.000 tonn af olíu á ári og sú endurunna
sé um 40% magnsins. „Miðað við síðasta
ár erum við því að tala um tólf millj-
ónir króna,“ segir hann: „Þessi olía er til
staðar í landinu nú þegar og það er vand-
fundin betri leið til að eyða henni.“
Ekki síðri olía en sú svarta
Gestur Guðjónsson, sérfræðingur í ör-
yggis- og umhverfismálum hjá Olíudreif-
ingu, er ósáttur við niðurstöðu stofnunar-
innar: „Það er verið að banna okkur að
nota betri og í raun umhverfisvænni olíu
en svartolíuna sem nú þarf að sækja fyrir
þessi fyrirtæki sem nota hana,“ segir
Viðskipti púsluspil VinkVenna í fæðingarOrlOfi
Hugmyndin varð til við brjóstagjöf
„Hugmyndin varð til eina nóttina þegar
ég var að gefa brjóst og hefur þróast síð-
an,“ segir Guðrún Heimisdóttir en hún
stofnaði í ágúst síðastliðnum fyrirtækið
Puzzled by Iceland með vinkonu sinni,
Þóru Eggertsdóttur. Fyrirtæki þeirra
hannar og framleiðir púsluspil með
myndum af íslenskum náttúruperlum
og dýrum. Fimm fyrstu púslin koma til
landsins á mánudaginn og fara strax í
sölu, m.a. í Eymundsson, Islandiu, Iðu,
Minju og Spilavinum, auk Fríhafnarinn-
ar í Leifsstöð og hótelverslana.
Púslmyndinar eru af Hvítserki, Þeista-
reykjum, Öxarárfossi, íslenska hestinum
og lambi. Guðrún segir þau bæði ætluð
Íslendingum og erlendum ferðamönnum
en upplýsingar um púslmyndirnar er að
finna á íslensku og ensku í kössunum
utan um púslin. Þau eru annars vegar
500 bita og hins vegar 48 bita og passa
þau minni á matarborð í flugvélum.
Guðrún og Þóra eignuðust báðar tvö
börn með 13-14 mánaða millibili og sáu
ekki fram á að fara strax í vinnu annars
staðar að loknu framlengdu fæðingaror-
lofinu. Þær voru samtímis í viðskipta-
fræði í HR, bjuggu yfir grunni til rekst-
urs fyrirtækis og vantaði því
aðeins hugmynd – sem varð
til við brjóstagjöfina. Þær
eru strax farnar að huga
að frekari framleiðslu en
púslin og kassarnir eru
framleidd í Kína. Þær
standa í viðræðum
við fleiri verslanir
um sölu púslanna
og verða á Skarfa-
bakka í vor þegar
skemmtiferða-
skipin koma.
Minni púslin eru 48 bita og
passa á matarborð í flugvélum.
Þóra Eggertsdóttir með
börn sín, Egget Aron
10 mánaða og
Alexöndru Björk
23 mánaða, en hjá
Guðrúnu Heimis-
dóttur sitja
börn hennar,
Kári 21
mánaðar
og Hulda
Lovísa 7
mánaða.
OlíuVinnsla umhVerfisstOfnun stöðVar sölu á endurunninni Olíu
Olíukostnaður fiskimjölsverksmiðju Ísfélagsins á Þórshöfn rýkur upp um milljónir króna, staðfesti
umhverfisráðuneytið úrskurð Umhverfisstofnunar um að stöðva endurvinnslu olíu í landinu. Stofn-
unin flokkar hana sem úrgang en Olíudreifing segir hana vel nothæfa.
Gestur Guðjónsson bíður ákvörðunar umhverfisráðuneytisins vegna þeirrar niðurstöðu Umhverfisstofnunar að stöðva fimm
ára endurvinnslu Olíudrefingar.
Blikur á lofti með olíu-
endurvinnslu í landinu
hann og bendir á að til að mynda sé minni
brennisteinn í henni og hún sé tugum
prósentna ódýrari en svartolían. Staðfesti
umhverfisráðuneytið úrskurð stofnunar-
innar þurfi Olíudreifing undanþágu til
að senda olíuna úr landi í stað þess að
endurvinna hana – því bannað er að senda
úrgang á milli landa. Gestur segir að þar
fari verksmiðjuolían á uppboð og verði
notuð af öðrum.
„Við hjá Olíudreifingu höfum farið í
miklar fjárfestingar síðustu fimm ár til
að hreinsa olíuna. Það er því afar slæmt
ef kippa á löppunum undan starfseminni
og veldur okkur fjárhagslegum skaða og
þeim fyrirtækjum sem hafa notið góðs af
olíunni,“ segir hann.
Ákvörðunin tók tíu mánuði
Það tók stofnunina tíu mánuði að komast
að niðurstöðu. Alcan sendi beiðnina 17.
desember síðastliðinn en synjunin lá fyrir
á fimmtudaginn var. Stofnunin baðst af-
sökunar á því hve langan tíma afgreiðslan
tók enda hefði hún útheimt víðtæka upp-
lýsingaöflun og yfirlegu.
Rafn segir að nú þurfi Umhverfisstofn-
un að benda á betri leiðir en verksmiðja
hans og sambærilegar vinnslur hafa
notað til að brenna olíunni, því enn sem
fyrr vilji til að mynda bíleigendur og aðrir
skipta um olíu á bílum sínum og losa sig
við hana.
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
gag@frettatiminn.is
Það er
verið að
banna
okkur að
nota betri
og í raun
umhverf-
isvænni
olíu.
8 fréttir Helgin 5.-7. nóvember 2010