Fréttatíminn - 05.11.2010, Page 22
Smiðjuvegi 34 |Rauð gata | www.bilko.is | Sími 557-9110
Jeppadekk
DEKK
PERUR
RAFGEYMAR
RÚÐUÞURKUR
BREMSUKLOSSAR
ALÞRIF & TEFLONBÓN
SMURÞJÓNUSTA
SÆKJUM OG SKILUM
Allt á einum stað!
Smiðjuvegi 34 |Rauð gata | www.bilko.is | Sími 557-9110
Umfelgun með afslætti
þessa dagana fyrir bæði fólksbíla og jeppa!
Frábært verð
Komdu núna og fáðu fría vetrarskoðun í leiðinni!
G
RA
FI
KE
R
S kólafólk er mest áberandi meðal þeirra sem bjóða sig fram til stjórnlagaþings, hvort heldur eru kenn-arar eða nemendur. Landskjörstjórn hefur birt
nafnalista þeirra 523 sem bjóða sig fram til þingsins en
kosið verður til þess 27. þessa mánaðar. Karlar eru mun
fleiri en konur en þær eru 160.
Meðal frambjóðenda eru 59 kennarar af öllum skóla-
stigum, frá leikskólakennurum til háskólakennara. Nem-
endur sem bjóða sig fram eru litlu færri eða 49. Sam-
tals eru því 108 frambjóðendur innan veggja skólanna,
eða um fimmtungur allra. Í kennarastétt má m.a. nefna
prófessorana Gísla Má Gíslason, Hjalta Hugason, Jón
Ólafsson og Þorstein Gylfason. Aðrir háskólakennarar
eru m.a. Eiríkur Bergmann Eiríksson dósent og Silja
Bára Ómarsdóttir aðjunkt. Af framhaldsskólakennur-
um eru m.a. í framboði Árni Indriðason, Baldur Ósk-
arsson, Erlingur Sigurðarson, Haukur Már Haralds-
son og Tryggvi Gíslason, fyrrverandi skólameistari.
Taka ber fram að starfstitlar sumra eru fleiri en einn.
Stöku kennarar nefna annað starf. Sama á við um nem-
ana og mun fleiri starfstéttir.
Gömu embættismannastéttirnar
Fróðlegt er að skoða frambjóðendur hinna gömlu emb-
ættismannastétta, lögfræðinga, presta og lækna. Ekki
kemur á óvart að lögfræðingarnir eru fjölmennastir, eða
24. Meðal þeirra má nefna Björn Friðfinnsson, Guð-
mund Ágústsson, Jón Steindór Valdimarsson, Leó E.
Löve, Magnús Thoroddsen og Jónínu Bjartmarz.
Læknarnir eru átta, þar á meðal Andrés Magnússon,
Katrín Fjeldsted og Lýður Árnason, sem jafnframt er
kvikmyndagerðarmaður. Auk þess eru tveir dýralæknar
í framboði.
Prestarnir eru fæstir, fjórir, en þeirra á meðal eru
Þórir Jökull Þorsteinsson og Örn Bárður Jónsson.
Djáknar eru að auki tveir og fulltrúi ásatrúarmanna er
Jörmundur Ingi Hansen Reykjavíkurgoði.
Á sjó fremur en þingi
Sé litið til þeirra atvinnuvega sem lengst hafa verið
burðarásar í samfélaginu, þ.e. landbúnaðar og sjávarút-
vegs, sést að fulltrúar eru ekki margir. Bændur eru þó
fleiri en sjómenn, eða átta. Meðal þeirra eru fyrrverandi
forystumenn bænda, Ari Teitsson og Haukur Hall-
dórsson. Vera kann að bændur horfi til þess að stjór-
nlagaþingið getur staðið fram yfir sauðburð.
Sjómennirnir eru aðeins þrír, þar af aðeins einn sem
titlar sig sjómann og ekkert annað, Sveinn Ágúst Krist-
insson. Sjómenn gera það bærilegt um þessar mundir
og sjá kannski fram á tekjutap fái þeir aðeins þingfarar-
kaupið sem þeim er ætlað þann tíma sem stjórnlagaþing-
ið stendur.
Iðnaðarmenn eru heldur ekki margir. Séu þeir teknir
saman, þ.e. rafvirkjar, málarar, smiðir, pípulagninga-
menn og fleiri eru þeir tólf. Meðal þeirra má nefna Sigurð
Grétar Guðmundsson pípulagningameistara, Árna
Jónsson rafvirkjameistara og Bergsvein Hall-
dórsson trésmíðameistara.
Alþingismenn hafa ekki rétt til setu
á stjórnlagaþingi en fyrrverandi stjór-
nmálamenn eru meðal frambjóðenda,
hvort heldur eru fyrrum þingmenn eða
sveitarstjórnarmenn. Þar á meðal eru Katr-
ín Fjeldsted, fyrrum borgarfulltrúi sem
einnig er í læknahópnum, Jónína Bjart-
marz, fyrrum þingmaður og ráðherra
sem einnig er í lögfræðingahópnum, og
Júlíus Sólnes, verkfræðingur og fyrrum
þingmaður og ráðherra.
Jafnstórir hópar lista- og
fjölmiðlamanna
Deila má um flokkun
listamanna meðal þeirra
sem bjóða sig fram til
stjórn lagaþings. Þó má með
góðu móti telja þá sextán. Þar
eru leikstjórar mest áberandi;
kvikmyndaleikstjórarnir Ágúst
Guðmundsson, Lárus Ýmir Ósk-
arsson og Hrafn Gunnlaugsson,
auk Þórhildar Þorleifsdóttur.
Sama gildir um fjölmiðlamenn,
núverandi og fyrrverandi. Þeir
eru sextán. Í þeirra hópi eru m.a.
Jónas Kristjánsson ritstjóri, Ill-
ugi Jökulsson blaðamaður, Inga
Lind Karlsdóttir fjölmiðlamaður
og nemi, Sigríður Dögg Auðuns-
dóttir, fyrrum blaðamaður og núverandi
forstöðumaður kynningarmála, feðgarnir Ómar Þ.
Ragnarsson og Þorfinnur Ómarsson og Sigurður G.
Tómasson útvarpsmaður.
Að lokum má telja þá sem trauðla verða flokkaðir í
hóp; Eva Sigurbjörnsdóttir, hótelstýra á Ströndum,
Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, Gísli
Tryggvason, talsmaður neytenda, Birna Þórðardóttir,
ferðaskipuleggjandi og skáld, og Árni Björnsson þjóð-
háttafræðingur, auk Halldórs Grétars Gunnarssonar
sem titlar sig einfaldlega sem Íslending.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Meðal frambjóðenda
eru 59 kennarar af
öllum skólastigum
og nemendur eru
litlu færri.
Stjórnmál miSmunandi áhugi hinna ýmSu Stétta á framboði til StjórnlagaþingS
Skólamenn í röðum en
sjómenn fjarri góðu gamni
Kennarar og nemendur eru fimmtungur þeirra rúmlega 500 manna og kvenna sem bjóða sig fram til stjórnlagaþings.
Áhuginn áberandi minni hjá öðrum stéttum en sjómenn kjósa greinilega fremur að vera á sjó en þingi.
22 fréttir Helgin 5.-7. nóvember 2010