Fréttatíminn - 05.11.2010, Blaðsíða 28
minn í Sjálfstæðisflokknum sagði mér
einu sinni glottandi að stundum hefðu
mál verið samþykkt með einu atkvæði
gegn 24! Við vitum vel að formenn Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknar ráðskuð-
ust með þjóðina eins og þeim sýndist í
alltof langan tíma. Ekki einasta með því
að styðja ólöglega innrás í fjarlægt ríki,
heldur með hinu rangláta kvótakerfi og
það sem allra verst var – með vali sínu
á þeim þóknanlegum mönnum til að
fá ríkisbanka svo til gefins. Þá voru að
mínu áliti teknar gríðarlega verðmæt-
ar þjóðareignir og afhentar fáeinum
ófyrirleitnum mönnum. Nú eigum við
að borga fyrir afglöp – svo að ekki sé
meira sagt – þeirra.“
Hvað segir það um Íslendinga að þeir
kusu ítrekað sömu menn til valda, og
höfðu til dæmis komið vinum og ættingj-
um í góð störf hjá ríkinu og handvalið
hverjir fengu að kaupa ríkisfyrirtæki?
„Það bendir til siðferðisbrests og skorts
á dómgreind, – nema það sama fólk hafi
ætlað sér að gæta þess að vera í hin-
um þóknanlega hópi sem nýtur fyrir-
greiðslunnar. Eða kannski af ótta við
að vera haft útundan. Það er ekkert sér-
íslenskt fyrirbæri að velja sér þá þægi-
legu leið að fylgja valdinu og koma sér
í mjúkinn hjá því. Í Austur-Þýskalandi
grínuðust menn með að þar hefði eng-
inn verið nasisti eftir að vald Hitlers féll
og svo enginn kommúnisti eftir að hinn
svokallaði kommúnismi féll! Ef við ætl-
um okkur að rétta við þjóðfélag okkar,
er lykilatriði að losa okkur við spillta
stjórnmálamenn.“
Smæð þjóðarinnar og klíkustríðin
Getur verið að smæð þjóðarinnar dæmi
hana til endalausra innbyrðis vígaferla
sterkra afla? Kolkrabbi gegn Smokkfiski,
Davíð og fylgismenn gegn Baugi?
„Nei, fámenni þjóðarinnar er engin
afsökun fyrir því sundurlyndi sem
hefur löngum skaðað okkur. Auðvitað
má segja að því fylgi meira návígi, en
það hefur líka marga kosti. Þjóðremba
okkar hefur hins vegar beinst að því að
halda að við séum ekki smáríki, heldur
einhvers konar afburðafólk. Kannastu
ekki við upphrópunina: BEST Í HEIMI.
„Látum vera lítið ríki / með fáu fólki“
segir í Bókinni um veginn og dyggð-
ina. Fámennið gefur okkur tækifæri
til að hittast persónulega og horfast í
augu. Það ætti að hjálpa okkur að leysa
ágreining, ef við lærum að hlusta og
hugsa, ef við lærum sanngirni og skyn-
semi. En því verður að fylgja að hætta
þeim eilífa klíkuskap sem hér ræður
ríkjum og hefur leitt til alltof mikillar
og alltof algengrar vanhæfni.“
Er innganga í Evrópusambandið aðferð
til að komast í stærra andlegt umhverfi
og minnka áhrif svona klíkustríða á allt
samfélagið?
„Ég er Evrópusinni og fer ekki dult
með það. Ég ólst upp í norrænni Evr-
ópuþjóð og tel að það eigi þjóðin að vera
en ekki einhvers konar taglhnýtingur
Bandaríkjanna. Stórveldi hugsa ein-
ungis um eigin hagsmuni, aldrei um
aðra. Menningarlega eigum við heima
í Evrópu. Evrópusambandið hófst sem
friðarhreyfing, til þess bókstaflega að
bjarga álfunni frá eilífum deilum og
togstreitu. Það hefur tekist undravel.
Fornir fjendur ákváðu að vinna saman.
Af því getum við lært. Auðvitað hefur
svo stór samsteypa sína galla, einkum
H
ann er skáld, fyrrverandi
prófessor við Háskóla
Íslands, forystumað-
ur hjálparsamtakanna
Spes, sem láta gott af
sér leiða í Vestur-Afríku, svo fátt eitt
sé nefnt. Njörður P. Njarðvík er líka
maður sem er óhræddur við að láta
skoðanir sínar í ljós, kveða fast að orði
og færa rök fyrir máli sínu. Í nýjustu
bók sinni, Spegill þjóðar, beinir hann
sjónum að stöðu Íslands, veltir fyrir
sér af hverju þjóðin lét afvegaleiðast og
hvað má betur fara. Myndin sem hann
dregur upp er óvægin og kjarnyrt, eins
og við var að búast af hans hálfu.
Þú rifjar upp í bókinni þau orð vinar
þíns Haraldar Björnssonar leikara um
þjóðina að „90 prósent eru fífl, og við hin
í stöðugri smithættu“. Við lestur bókar-
innar fær maður á tilfinninguna að ekki
sé laust við að þú sért sammála þessum
dómi Haraldar. Passar það?
„Nei, ekki er það rétt. Haraldur átti það
til að vera talsverður æringi og hafði
gaman af því að ganga fram af fólki.
Og ummæli hans takmörkuðust ekki
við íslenska þjóð, heldur mannkynið.
Ég segi hins vegar í bókinni að sann-
leikskornið í orðum hans felist í smit-
hættunni. Þórbergur talaði um land for-
heimskunnar. Það geri ég ekki. Hins
vegar er stundum hægt að haga sér
eins og fífl án þess að vera það, eink-
um þegar maður apar fíflaskapinn eftir
öðrum. Okkur er því miður gjarnt að
smitast af því einkennilega fyrirbæri
„tíðarandanum“ og þá brenglast oftlega
dómgreind okkar. Við erum því miður
oft blind á okkur sjálf af því að okkur
er ekki tamt að horfa inn á við. Allir
vita auðvitað að enginn getur lifað um
efni fram til lengdar. Fyrr eða síðar
kemur að skuldadögum. Í bókinni kalla
ég það reyndar ekki fíflaskap heldur
flottræfilshátt að stofna til skulda fyrir
algerlega óþarfan lúxus. Það hafa alltof
margir gert. En ég segi líka að ýmsir
aðrir hafi orðið leiksoppar að ósekju
vegna óbilgirni annarra og með því
fólki hef ég samúð.“
Ísland er ekki lýðveldi
Háttsettur stjórnmálamaður í Tógó
ræddi einu sinni við þig það sem honum
fannst undarlegar hugmyndir Evrópu-
manna um lýðræði, „að 51% ráði öllu og
49% engu.“ Tókum við Íslendingar þetta
fyrirkomulag ekki enn lengra þann tíma
sem Sjálfstæðisflokkurinn stýrði landinu
með stuðningi mun smærri flokka? Mót-
aði þá ekki stærsti minnihlutinn, Sjálf-
stæðisflokkurinn með um 40 prósentna
fylgi, samfélag okkar nákvæmlega á
þann veg sem foringjum hans þóknaðist
í krafti yfirburða í stjórnarsamstarfinu
hverju sinni?
„Ég fullyrði beinum orðum í bókinni,
og hafði reyndar áður gert í blaða-
grein, að Ísland sé ekki lýðveldi. Það
sé flokksveldi þegar best lætur, en oftar
en ekki allt að því alræði tveggja flokks-
foringja – og jafnvel eins. Kunningi
„Við verðum að hætta að
hafa dauðasyndir að leiðarljósi“
Njörður P. Njarðvík skáld hefur sett á bók vangaveltur um af hverju íslensk þjóð lenti á
þeim villigötum sem hún er nú stödd á. Í viðtali við Jón Kaldal ræðir hann vafningalaust
vanda stjórnmálanna og nauðsyn þess að þjóðin horfist í augu við sjálfa sig. Ljósmyndir/Teitur
Það er
ekkert
séríslenskt
fyrirbæri
að velja
sér þá
þægilegu
leið að
fylgja
valdinu og
koma sér
í mjúkinn
hjá því.
Framhald á síðu 30
28 viðtal Helgin 5.-7. nóvember 2010