Fréttatíminn - 05.11.2010, Síða 32
Rúmlega tvítug braust MALÍN BRAND út úr söfnuði Votta Jehóva með kjafti og klóm.
Skömmu síðar missti hún báða foreldra sína. Faðir hennar varð bráðkvaddur en móðir
hennar svipti sig lífi. Heiðdís Lilja Magnúsdóttir ræddi við Malínu um einelti á æsku-
árum, útskúfun á fullorðinsárum vegna úrsagnar hennar úr söfnuðinum, yfirhylmingu
kynferðisbrotamála innan safnaðarins, sorgina, réttlætiskenndina og hvernig það er að
uppgötva heiminn upp á nýtt. Ljósmyndir/Teitur Jónasson
Mér var
bannað
að hugsa
M
alín Brand ólst upp í söfnuði
Votta Jehóva á Íslandi. Einhverj-
ir gætu ætlað að það væri svona
álíka merkilegt og að alast upp
í fámennu sjávarþorpi þar sem
allir kjósa Framsóknarflokkinn. Svo einfalt var
það ekki. Að tilheyra Vottum Jehóva þýddi meðal
annars að fjölskyldan hélt ekki jól og börn innan
safnaðarins fengu hvorki að halda upp á afmælið
sitt né mæta í afmæli bekkjarfélaga sinna.
„Fyrsta hugsunin þegar ég heyrði jólalag var
alltaf: Æ, nei, ég má ekki hlusta. Verð að loka eyr-
unum. Við máttum aldrei syngja með jólalögunum.
Þegar verið var að jólaföndra í skólanum sat ég úti
í horni og teiknaði fugl. Allir hlógu að mér af því
að ég var svo vitlaus að teikna fugl en ekki jóla-
svein. Ég fór á mis við allt félagslíf sem barn. Öll
börnin fóru í afmæli ... nema Vottabörnin. Ég fór
á trúarsamkomur með mömmu, Valgerði Kristínu
Brand, þrisvar í viku. Svo var það skylda okkar
allra að ganga í hús til að bjóða fólki blöð og lesa
upp úr Biblíunni. Fólkið sem kom til dyra horfði
stórum augum á mig og spurði hvað ég væri eigin-
lega að gera,“ rifjar Malín upp og brosir vandræða-
lega. Minningin er fjarlæg og hálffjarstæðukennd,
þótt ekki sé langt um liðið. „Þegar maður elst upp
innan veggja safnaðarins er maður ekki hluti af
samfélaginu. Reyndar vorum við annars flokks í
söfnuðinum af því að pabbi var ekki í honum. Það
er frekar óvenjulegt. Mamma hefur verið „óþekk“,“
segir Malín sposk á svip. Húmoristinn strax kom-
inn upp í henni. Hún segist alltaf hafa reynt að sjá
spaugilegu hliðarnar á hlutunum. Það hafi hún
lært af föður sínum, Einari Oddgeirssyni, sem var
mikill húmoristi.
Hvað þýddi það að vera annars flokks?
„Við sátum ekki við sama borð og hinir. Þótt
það séu aldrei haldin afmæli í söfnuðinum er reynt
að hafa barnaboð í staðinn. Mér var ekki boðið í
þau boð fyrr en ég var orðin fimmtán ára. Ég átti
hvorki vini í söfnuðinum né í skólanum. Mér var
strítt mikið í skóla og ég var lögð í einelti. Ég þótti
skrýtinn krakki. Bæði af því að ég ólst upp í þess-
um söfnuði og svo talaði ég líka öðruvísi en hinir.
Málfarið í fjölskyldunni minni er svolítið sérstakt
af því að við erum Vestur-Íslendingar. Við fædd-
umst samt á Íslandi. Svo sá ég mjög illa, þurfti að
nota gleraugu og var strítt út af því líka. Ég sagði
ekki frá þessu heima fyrir. Ég skammaðist mín svo
mikið fyrir að vera strítt í skólanum.“
Er stríðni eitthvað sem fylgir því að tilheyra
þessum trúarsöfnuði?
„Já, ég gæti alveg ímyndað mér það. Í söfnuðin-
um var talað um trúarofsóknir eða að við þyrftum
að láta margt yfir okkur ganga vegna trúarinnar.
En það er til orð yfir þetta: Einelti.“
Malín gekk í skóla í Kópavogi, skipti um skóla
þegar hún var ellefu ára og fór þá í annan skóla í
Kópavogi og því næst í Hafnarfirði.
„Ég skipti um skóla af því að ég hélt að allt myndi
lagast við það. En ég tók vandamálið náttúrlega
bara með mér. Ég var orðin fimmtán ára þegar ég
svaraði fyrir mig í fyrsta skiptið. Þá hugsaði ég
með mér: „Hey, af hverju gerði ég þetta ekki fyrr?
Þetta er snilld!“
Hvað með systkin þín?
„Ég á eina systur, Hlín Einarsdóttur, sem er fjór-
um árum eldri en ég. Hún var meira í því að lemja
mig!“ segir Malín og hlær. „Hún þoldi mig ekki
framan af. Við töluðum eiginlega saman í fyrsta
skipti þegar ég var fimmtán. Þá horfði hún á mig
og sagði: „Nú, kanntu að tala?“ Ég bar snemma
alltof mikla ábyrgð. Hafði áhyggjur af öllu. Ég fékk
magasár þegar ég var níu ára.“
Hafði eineltið í skólanum þau áhrif?
„Nei. Magasárið var meira út af fjárhagsáhyggj-
um. Foreldrar mínir áttu aldrei pening og mamma
deildi þeim áhyggjum alltaf með mér, barninu.
Eins og hún var frábær mamma þá var þetta dæmi
um hvernig á ekki að tala við börn. Hún átti til að
segja hluti eins og: „Jæja, Malín mín, ætli við fáum
eitthvað að borða í næstu viku?“ Þar af leiðandi
bað maður aldrei um neitt. Ég vissi að peningarnir
voru ekki til. Ég hafði þó ekki bara áhyggjur af pen-
ingaleysinu, heldur líka því að móður minni leið
greinilega ekki vel. Ég var hrædd um að hún myndi
kannski taka eigið líf, alveg frá því ég var sjö ára.“
Hafði einhver sem þú þekktir farið þá leið?
„Nei, en ég er mjög næm á líðan fólks. Mamma
hótaði því líka stundum að láta sig bara hverfa. Ef
ég fann hana ekki heima þá fór ég út að leita að
henni. Hún var kannski ekki þunglynd en ég held
að hún hafi verið í einhvers konar sálarklemmu.
Kannski hafði hún skyggnigáfu sem hún vissi ekki
alveg hvernig hún ætti að díla við. Ég veit það ekki.
Ég hef stundum pælt í því. Hún vissi nefnilega oft
hluti sem hún átti ekki að vita. Afi er svona líka.“
Ertu þú skyggn sjálf?
„Já, ég er það, ef ég opna fyrir það. Ég sé t.d.
árur fólks. Einu sinni hélt ég að árur væri eitthvað
sem allir sæju en núna veit ég að svo er ekki. Árur
endurspegla bæði persónuleika og líðan fólks.“
Hjálpaði trúin þér í þessum erfiðleikum í æsku?
„Nei, þessi trú er þannig að hún færir ekkert
sérstaklega góð rök fyrir tilveru manns. Sú ákvörð-
un að trúa var tekin fyrir mig, rétt eins og einhver
hefði tilkynnt mér að uppáhaldsliturinn minn væri
grænn. Ég er mjög gagnrýnin og trúði í raun og
veru aldrei. Það var eiginlega mesti skandallinn
því að sá sem efast er ekki í góðum málum í söfnuð-
inum. Ef maður impraði á einhverju slíku var bara
sussað á mann og sagt að djöfullinn væri að hræra
í hausnum á manni. Þetta var algjör heilaþvottur.
Það er engin tilviljun að vottur rímar við þvottur!
Þetta er heilaþvottastöð en ekki staður þar sem
kærleikurinn blómstrar,“ segir Malín ákveðin.
„Manni er innrætt frá fyrsta degi að öll gagn-
rýnin hugsun og efahyggja eigi ekki heima innan
safnaðarins. Mér var bókstaflega bannað að hugsa.
Ég las alltaf mjög mikið. Þegar ég var fimmtán ára
fór ég að lesa heimspeki og gleypti í mig allt lesefni
sem ég komst í. Þetta kollvarpaði þeirri heims-
mynd sem mér hafði verið innrætt. Í gegnum heim-
spekina og vísindin fór ég að líta heiminn öðrum
augum. Vottarnir hafna þróunarkenningu Darwins
en mér finnst þróunarkenningin æðisleg! Hún er
skemmtileg og rökrétt.“
Hylmt yfir kynferðisbrot
Átján ára giftist Malín öðrum safnaðarmeðlimi,
manni sem var átta árum eldri en hún.
„Í söfnuðinum er bannað að stunda kynlíf fyrir
hjónaband. Ég held að það sé ástæðan fyrir því að
margir þarna gifta sig mjög ungir.“
Varstu ástfangin?
„Ég hélt það á einhverjum tímapunkti. En svo
hélt ég áfram að grúska í mínu og gera það sem
var bannað: Að hugsa. Við fórum bara hvort í sína
áttina. Svo sagði ég mig úr söfnuðinum árið 2004
og með því sagði ég mig úr hjónabandinu.“
Hvað varð til þess að þú ákvaðst að stíga það
skref?
„Stór ástæða þess að ég fékk algjöran viðbjóð
á söfnuðinum var sú að réttlætiskennd minni var
storkað illilega. Ég fylgdist með máli innan safn-
32 viðtal Helgin 5.-7. nóvember 2010