Fréttatíminn - 05.11.2010, Page 39
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
M
S
A
4
87
30
0
2
/1
0
100%
HÁGÆÐA
MYSUPRÓTEIN
HLEÐSLA ER ÍÞRÓTTADRYKKUR SEM INNIHELDUR
PRÓTEIN OG KOLVETNI TIL HLEÐSLU. HENTAR VEL
FLJÓTLEGA EFTIR ÆFINGAR EÐA MILLI MÁLA.
PRÓTEIN Í HLEÐSLU ERU EINGÖNGU HÁGÆÐA
MYSUPRÓTEIN SEM UNNIN ERU ÚR ÍSLENSKRI MJÓLK.
HLEÐSLA HENTAR ÖLLUM SEM ERU Í ÍÞRÓTTUM
EÐA STUNDA AÐRA HREYFINGU.
EGILL GILLZ
EINARSSON
ÍÞRÓTTAFRÆÐINGUR
ÁN HVÍTS SYKURS
ÁN SÆTUEFNA
MEÐ AGAVESAFA
aði og hugsaði mér til undrunar
að hann virtist ekki undir þessum
sömu áhrifum og ég, hann var næst-
um eðlilegur, að svo miklu leyti sem
er hægt að ætlast til þess, en svo fór
röddin í honum að hljóma hávær og
bergmálandi og líka raddir fanga-
varðanna sem svöruðu honum, það
voru allir skrýtnir; þó sýndist mér
Einar Már vinur minn vera skrýtn-
astur allra; ég fékk á tilfinninguna
að við værum verstir, amatörarnir í
þessum efnum; ég fékk mér meira
kaffi og fleiri konfektmola, raddirn-
ar hækkuðu og lækkuðu og allt sem
var sagt var undarlegt, röðin kom
að mér að svara einhverju en þegar
ég heyrði í sjálfum mér tók stein-
inn úr, ég reyndi að láta mér nægja
einsatkvæðisorð og hugsaði með
skelfingu til þess að ég ætti innan
skamms að standa fyrir framan
fjölda fólks og lesa upp; ég yrði mér
að eilífu til skammar, yrði að gefast
upp, biðjast afsökunar, þykjast las-
inn eða eitthvað ...
Nýi fangelsisstjórinn
Geðslegur maður var að heilsa mér
með handabandi. Kynnti sig, svo
leið dálítil stund og þá heyrði ég
loks hvað hann hafði sagt; nýi fang-
elsisstjórinn þar á staðnum. Hann
var með sveitamannslegt yfirbragð
og talanda, eins og hann tilheyrði
heldur letigarðinum úti á landi en
nýju rammgerðu dýflissunni. Ég
sagði nafnið mitt áður en við léttum
handabandinu, lafhræddur um að
þessi einkennisbúni maður heyrði
strax hvað rödd mín væri óeðlileg,
en hann virtist ekki verða þess var.
Og hann tilheyrði greinilega nýjum
tímum á staðnum því hann var að
bjóða okkur gestunum í skoðunar-
ferð um nýju byggingarnar; þær átti
að taka í notkun eftir fáeinar vikur
eða daga, strax eftir jól, minnir mig
að hann hafi sagt. Svo vorum við
lagðir af stað. Komnir upp í turninn.
Stjórinn stoltur eins og menn eru
af nýbyggingum sem þeir ráða yfir,
mér fannst þetta allt óhugnanlegt.
Kalt og fráhrindandi. Við horfðum
yfir svæðið frá sjónarhóli væntan-
legra fangavarða, sem venjunni
trúir ættu að vera með öfluga riffla.
Spurði ég hvort þeir yrðu með riffla?
Einhver spurði. Og mig minnir að
einhver hafi svarað, „Nei, það held
ég að sé nú ekki planið, allavega
ekki svona fyrst um sinn!“ Og þessu
fylgdu glymjandi karlmannshlátrar;
þarna í nýbyggingunni bergmálaði
þó almennilega, þetta var ekki bara
í höfðinu á mér. Harður blár gólf-
dúkur út í öll horn, hvítir veggir,
stál- hurðir fyrir klefum, mig minn-
ir að þær hafi verið gráar. Við vorum
komnir inn í einn klefann. Sem var
auðvitað ferskur og nýr; sambland
af bón- og málningarlykt; steypt fleti
með dýnu, borð, nokkrir fermetrar
af bláum dúk, loklaust klósett úr
ryðfrýju stáli. Og fangelsisstjórinn
gljáandi af stolti að segja eitthvað
um að þetta yrði auðvitað allt annað
líf. Fyrir hvern? Þetta er auðvitað
allt annað líf fyrir skepnurnar, sagði
fláningarmaðurinn þegar hann fékk
borðið. Það stóð upp á okkur að
hrósa, okkur þessa gestkomandi,
okkur hlotnaðist sá heiður að vera
leiddir um dýrðina í fylgd yfirvalda
staðarins, og Bubbi hafði orð fyrir
okkur, hann er foringinn, og hann
er aldrei með neitt hálfkák, dregur
aldrei af sér, gefur allt: „Þetta er
eins og svíturnar á Hilton!“ hljóðaði
söngvarinn. Og stjórinn samsinnti,
kinkaði stoltur kolli, og ég hugsaði
með mér: nú ræð ég ekki við meir;
nú fæ ég að leggjast út í bíl og bíð
svo þar eftir að þetta líði hjá.
„... ég man það
snarkaði mikið
í jónunni þegar
maður dró að sér
reykinn, kannski
voru fræ í blönd-
unni, en svo sá
ég að Bubbi var
að horfa á okkur
nafnana og hann
sagði: „Þið skul-
uð fara varlega
í þetta strákar,
þetta er mjög
heví stöff.“
Ég var bannfærð.
Fólki var bannað
að tala við mig. Ef
ég mæti fólki úr
söfnuðinum úti
á götu þá annað
hvort tekur það á
sig krók og snýr við
eða lætur eins og
það sjái mig ekki.
Malín Brand í viðtali
bls. 32-34
bækur 39 Helgin 5.-7. nóvember 2010