Fréttatíminn - 05.11.2010, Page 50
Ómissandi í vetur
Angelica er íslensk náttúruafurð úr ætihvönn. Angelica gefur þér aukna
orku og þú færð sjaldnar kvef. Sæktu styrk í íslenskt náttúruafl!
www.sagamedica.is
Þegar þú kaupir glas eða box af Angelicu
færðu annað eins á hálfvirði.
Tilboðið gildir 4.-8. nóvember 2010.
Kynning á vörum SagaMedica í Kringlunni 5. nóv. kl. 12-17.
Helgartilboð Heilsuhússins
Heilsuhúsið Laugavegi, Kringlunni, Smáratorgi, Lágmúla, Selfossi, Akureyri og Reykjanesbæ.
50 heilsa Helgin 5.-7. nóvember 2010
Þ að þarf að hugsa um hvað borðað er og ekki síst hversu oft borðað er, bursta tennurn-
ar með flúor-tannkremi að minnsta
kosti tvisvar á dag og nota tann-
þráðinn daglega. Einnig mæli ég
með því að farið sé til tannlæknis
einu sinni á ári,“ segir Hólmfríður
Guðmundsdóttir, tannlæknir og
verkefnisstjóri tannheilsu hjá Lýð-
heilsustöð.
Að sögn Hólmfríðar virðast sumir
bursta tennurnar of fast og nota of
harða tannbursta. „Það á að nota
mjúka tannbursta og beina tann-
burstanum rétt. Mikilvægt er að
skipta um tannbursta á nokkurra
mánaða fresti því slitinn tannbursti
getur skaðað tannholdið.“
Hólmfríður segir að tann-
skemmdir og tannholdsbólgur séu
helstu kvillarnir sem herji á fólk og
að hennar sögn hafa nánast allir
fullorðnir kynnst tannsjúkdómum
af eigin raun. „Tannsjúkdómar eru
ótrúlega algengir miðað við það að
við þekkjum orsakaþætti þeirra og
vitum þá jafnframt hvernig koma
má í veg fyrir þá. Árið 2005 var
framkvæmd landskönnun á tann-
heilsu 15 ára íslenskra unglinga
og við fundum aðeins sex prósent
þeirra með alheilar tennur, sem er
áhyggjuefni. Þessi hópur er með
nýuppkomnar tennur sem eiga að
endast þeim ævina út. Það er rútína
og regla að hugsa vel um tennurnar
dagsdaglega.“
Þess má geta að á heimasíðu Lýð-
heilsustöðvar, www.lydheilsustod.
is, er hægt að fara inn á „tannvernd“
þar sem er að finna ýmsa fræðslu
um tennurnar.
Vatn og hollur matur
„Vatnið er besti drykkurinn og
sá drykkur sem við mælum með að
allir drekki eins mikið af og hægt er
eða allt að tveimur lítrum daglega.
Sýrustig vatns er pH 7-9, sem er
hlutlaust, og er svipað og sýrustig
munnvatnsins.
Gosdrykkir, bæði sætir og syk-
urlausir, eru flestir með sýrustig á
bilinu pH 1-3 og glerungurinn á ysta
borði tannanna hreinlega tærist af
þegar hann lendir í svona lágu sýru-
stigi. Ef fólk drekkur gosdrykk eða
annan súran drykk er heppilegra að
drekka hann allan í einu en að taka
einn og einn sopa yfir lengri tíma. Í
munnvatni eru hlutleysandi efni og
það tekur þau um það bil hálftíma að
virka. Ef við tyggjum tyggjó eykst
tannVernd
Hreinar tennur
– heilar tennur
„Hollur og næringarríkur matur er heppilegur fyrir tennur og
líkamann almennt,“ segir Hólmfríður Guðmundsdóttir tannlæknir.
Tannsjúkdómar eru
ótrúlega algengir miðað
við það að við þekkjum
orsakaþætti þeirra og
vitum þá jafnframt
hvernig koma má í veg
fyrir þá.
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732
jsb@jsb.is • www.jsb.is
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
f í
s
k
h
ö
n
n
u
n
6 vikna námskeið 2x í viku. Ath aðeins 15 í hóp.
Verð kr: 19.900. Kennari: Bára Magnúsdóttir.
ü Vaxtarmótun ü Mýkt - liðleiki ü Styrkur - reisn
ü Upphitun í tækjasal 20 mín ü MÓTUN, æfingakerfi 40 mín
ü Hentar öllum aldursflokkum
Mánudaga og miðvikudaga ü kl 16:40
Þriðjudaga og fimmtudaga ü kl 10:30
Barnagæsla - Leikland JSB
Staðurinn - Ræktin
Velkomin í okkar hóp!
Mótun - Æfingakerfi hannað af Báru Magnúsdóttur
Frjáls
aðgangur að
opna kerfinu
og tækjasal
Innritun hafin á síðustu námskeið
fyrir jól í síma 581 3730
Ný námskeið hefjast 14. nóvember
NÝTT!
telpurS onuK r
Lágmúla 9 • 108 Reykjavík • Sími 581 3730 • Bréfasími 581 3732
jsb@jsb.is • www.jsb.is
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
f í
s
k
h
ö
n
n
u
n
STOTT PILATES er krefjandi æfingakerfi og frábær leið til að:
l Móta líkamann, bæta líkamsvitund og líkamsstöðu.
l Lengja vöðva og styrkja sérstaklega djúpvöðva maga og baks.
l Losa spennu, auka liðleika og bæta jafnvægi milli vöðvahópa.
l Losa um bakverki og hjálpa til við samhæfingu svo fátt eitt sé nefnt.
Kennt er 2x í viku í 6 vikur. Kennari: Agnes Amalía Kristjónsdóttir.
Mánudaga og miðvikudaga ü kl 10:30, Þriðjudaga og fimmtudaga ü kl 16:30
Byrjenda- og framhaldsnámskeið. Verð kr. 19.900.
Æfingakerfi byggt á pilatesæfingum Joseph Pilates.
Barnagæsla - Leikland JSB
Staðurinn - Ræktin
Velkomin í okkar hóp!
STOTT PILATES
Frjáls
aðgangur að
opna kerfinu
og tækjasal
Ný námskeið hefjast 14. nóvember
telpurS onuK r
Innritun hafin á síðustu námskeið
fyrir jól í síma 581 3730