Fréttatíminn - 05.11.2010, Síða 52
Bæði námskeiðin hefjast 8. nóvember
Fyrirlestur 6. nóvember
Verð kr. 34.900
Skráning er hafin í síma 444-5090
eða nordicaspa@nordicaspa.is
Fimm tímar í viku – hreinsun, liðleiki og styrkur
3 tímar – jóga, liðleiki og öndun
2 tímar – léttar styrktaræfingar í tækjasal
Tímar: 17:30 mán/mið/fös.
Þjálfari er Sigríður Guðjohnsen
NORDICASPA
28 daga
hreinsun
með mataræði
og hreyfingu
Hjá okkur nærðu árangri!
Fimm tímar í viku – Brennsla og styrkur
3 öflugir brennslutímar
2 styrktartímar í sal
Vikulegar mælingar
Ítarleg næringarráðgjöf
Fyrirlestur – Borðaðu til að léttast og auka orkuna
Slökun og herðanudd eftir hverja æfingu
Takmarkaður fjöldi
6:30, 7:30, 10:00, 16:30 og 18:30
Þjálfari er Gunnar Már Sigfússon
1. vika – Orkuhleðsla
Í fyrstu vikunni byggir þú upp orku og kemur líkamanum í jafnvægi.
2. vika – Öflug melting – Aukin brennsla
Í viku tvö er verið að efla og bæta meltinguna til að þú fáir sem mest
út úr holla matnum sem þú ert að borða.
3. vika – Hormóna jafnvægi – Hreinsun
Þriðja vikan mun koma jafnvægi á hormónaflæði líkamanns sem mun
hafa áhrif á skap þitt, lífsorku og kraft.
4. vika – Ónæmiskerfi eflt – Jafnvægi
Í viku fjögur byggjum við upp ónæmiskerfið og hjálpum því að verja
líkamann á náttúrulegan hátt.
Lúxusnámskeið
NORDICASPA
fyrir konur og karla
4 vikna
Á námskeiðinu hreinsum við líkamann af
óæskilegum eiturefnum, aukum getu hans til
að vinna rétt úr fæðunni, aukum liðleika og
styrk og komum þér af stað í nýjan lífsstíl!
Ertu að glíma við:
• Mataróþol
• Matarfíkn og sykurlöngun
• Maga- og ristilvandamál
• Verki og bólgur í liðum
• Streitu, þreytu og svefnleysi
• Þunglyndi
• Aðra lífsstílssjúkdóma
Síðustu námskeið fyrir jól!
52 heilsa Helgin 5.-7. nóvember 2010
Kartaflan
Mælt er með að kartöflur, sem lengi
voru helsti C-vítamíngjafinn hér á
landi, eða annar kolvetnagjafi skipi
þriðjung af matardisknum. Margir
hafa gætt sér á kartöfluflögum og
þess má geta að þrír hönnuðir fengu
hugmynd að fitulausum kartöflu-
flögum sem eru bakaðar en ekki
steiktar. Verið er að þróa vöruna
og fengu hönnuðirnir styrk frá
Tækniþróunarsjóði til að vinna að
verkefninu. Að sögn Helgu Bjargar
Jónasardóttur, einnar úr hópnum,
er stefnt á framleiðslu til að byrja
með í litlu magni og vonandi í meira
magni síðar. Hinir hönnuðurnir eru
Guðrún Hjörleifsdóttir og Edda
Gylfadóttir.
Hönnuðirnir þrír luma á ýmsum
fróðleik um kartöfluna:
H ollur lífsstíll ætti að auka líkurnar á al-mennu heilbrigði. „Ef
maður fylgir ráðleggingum
um mataræði og næringarefni
getur það haft jákvæð áhrif á
bæði andlega líðan og líkam-
lega heilsu,“ segir Hólmfríður
Þorgeirsdóttir, næringar-
fræðingur hjá Lýðheilsustöð.
„Það sem talið er að dragi
úr líkum á krabbameini er að
halda þyngdinni innan eðilegra
marka, hreyfa sig í að minnsta
kosti hálftíma á dag, takmarka
neyslu á orkuríkum mat og
sykruðum drykkjum, forðast
mikla neyslu á rauðu kjöti og
unnum kjötvörum, takmarka
neyslu áfengis og neyta sem
mest fæðu úr plönturíkinu –
borða mikið af ávöxtum, græn-
meti og grófum kornvörum
og baunum. Við eigum ekki
að vera með nein boð og bönn
heldur er það hófsemin og fjöl-
breytnin sem á að ráða ríkjum.
Ef maður gerir þetta dagsdag-
lega þá má leyfa sér af og til
eitthvað annað.“
Hólmfríður segir að því
litsterkari sem ávextir og
grænmeti séu því hollara. „Það
er meira af bætiefnum í lit-
sterkum ávöxtum og græn-
meti. Það er best að velja mis-
munandi tegundir og nota til
dæmis grænmeti bæði með
matnum og eins í réttina en
það eykur fjölbreytnina. Það
er engin ein fæðutegund svo
holl að hún veiti okkur öll þau
næringarefni sem við þurfum
á að halda; fjölbreytnin skiptir
öllu. Svo skiptir máli að borða
reglulega og í hóflegu magni
og ekki sleppa morgunmatnum
sem er ein mikilvægasta máltíð
dagsins.“
Gegn krabbameini
Hólmfríður segir að rífleg
neysla grænmetis og ávaxta
minnki líkur á ýmsum sjúk-
dómum eins og hjarta- og æða-
sjúkdómum, sykursýki af gerð
2, offitu og ýmsum tegundum
krabbameins. Hvað krabba-
mein varðar má sérstaklega
nefna tómata, spergilkál (brok-
kólí), hvítlauk og bláber. Holl-
usta ávaxta og grænmetis er
meðal annars fólgin í ríkulegu
magni þeirra af trefjum, vítam-
ínum og steinefnum, til dæmis
andoxunarefnum eins og C- og
E-vítamínum, karótenóíðum,
flavenóíðum og fleiri lífvirkum
efnum eins og plöntuestró-
genum og öðrum plöntuefnum.
Það er trúlega ekki síður sam-
spil þessara efna sem hafa góð
og verndandi áhrif en áhrifin
virðast ekki þau sömu ef efnin
eru tekin í töfluformi.
„Ef fólk borðar fjölbreytt
fæði að öllu jöfnu er ekki þörf
fyrir fæðubótarefni en undan-
tekning er D-vítamín því við
hér á norðlægum slóðum fáum
ekki nægilegt magn af því yfir
vetrartímann þar sem sól er
ekki nægilega hátt á lofti til að
D-vítamín myndist í húðinni
og D-vítamín er einnig í mjög
fáum fæðutegundum.“
Hólmfríður bendir fólki á að
muna eftir að taka þorskalýsi
eða annan D-vítamíngjafa.
„D-vítamín er nauðsynlegt
fyrir uppbyggingu beina auk
þess sem það er meðal annars
talið geta verið verndandi
gegn krabbameini og gott
fyrir ónæmiskerfið. Þá eru
einnig Omega-3 fitusýrur í lýsi.
Önnur undantekning varðandi
fæðubótarefni er að konum
sem geta orðið barnshafandi
er ráðlagt að taka fólasín sem
er B-vítamín en það dregur
úr líkum á skaða í miðtauga-
kerfi fósturs. Fólasín er meðal
annars í dökkgrænu grænmeti,
rauðri papriku, jarðarberjum,
appelsínum, haframjöli, hnet-
um og sojabaunum.“
HvErsdaGslEG en meðal þeirra mikilvægustu
Hönnuðirnir þrír sem hafa unnið með hugmyndina að fitulausum kartöfluflögum.
Ljósmynd/Hari
fyrir líkama og sál
Fjölbreytni
í mat
Góð vísa er aldrei of oft kveðin og Hólmfríður Þorgeirsdóttir,
næringarfræðingur hjá Lýðheilsustöð, bendir á mikilvægi ávaxta
og grænmetis; því litsterkara því hollara.
Hólmfríður Þorgeirsdóttir næringarfræðingur. Ljósmynd/Hari
Við eigum ekki að vera
með nein boð og bönn
heldur er það hófsemin
og fjölbreytnin sem á að
ráða ríkjum.
g Það eru til bláar kartöflur.
g Ákavíti er bruggað úr kartöflum.
g Kartöflur kallast líka jarðepli.
g Sumir krakkar fá kartöflu í skóinn.
g Kartöflur eru fitusnauðar, hafa
aðeins 0,5% fitu.
g Það er hægt að búa til stimpla úr
kartöflum.
g Franskar kartöflur eru upprunnar
í Belgíu.
g Kartöflugrösin eru eitruð.
g Á Íslandi voru fyrstu kartöflurnar
ræktaðar á Bessastöðum.
g Kartaflan er ein af fjórum mikil-
vægustu grunnfæðutegundunum.
g Fyrstu kartöflurnar voru ræktaðar
fyrir um 8.000 árum í Suður-Amer-
íku.
g Það er hægt að rækta kartöflur í
ruslapoka eða potti úti á svölum.
g Kartaflan hefur verið rómuð
sem „gjöf af himnum“ og „brauð
jarðar“.
g Það er nóg að setja niður hálfa
spíraða kartöflu til að fá uppskeru.
g Sameinuðu þjóðirnar helguðu
kartöflunni árið 2008 til þess að
vekja athygli á mikilvægi hennar í
baráttu gegn hungri í heiminum.
g Írum fækkaði um ¼ þegar kartöflu-
uppskera brást á 19. öld.
g Í Kína er framleitt mest af
kartöflum í heiminum í dag.