Kjarninn - 10.10.2013, Page 8
03/05 kjarninn dómsmál
var samhliða breytt í fjárfestingar félag og varð það eitt það
umfangsmesta sinnar tegundar um nokkurra ára skeið.
Samstundis voru uppi grunsemdir um að viðskiptin
væru hluti af einhvers konar sýndarviðskiptafléttu sem
stærstu hluthafar FL Group – aðilar tengdir Baugi, þáverandi
stjórnar formaðurinn og síðar forstjórinn Hannes Smárason
og Fons – hefðu hag af en gæti orðið gríðarlega kostnaðar-
söm fyrir aðra hluthafa. Grunsemdir voru líka uppi um að
FL Group hefði í raun greitt þorra þess kaupverðs sem Fons
greiddi fyrir Sterling. Hannes Smárason var meira að segja
spurður að því beint í Kastljósi mánudaginn 24. október 2005
hvort hann persónulega eða FL Group hefði lagt fjármagn
til þegar Fons keypti Sterling. Hannes neitaði því alfarið og
sagði sögusagnir þess efnis vera „þvælu“. Pálmi Haraldsson,
aðaleigandi Fons, neitaði því einnig ítrekað að FL Group
hefði fjármagnað kaup Fons á Sterling.
Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra hóf að rannsaka
þessi viðskipti árið 2008 að eigin frumkvæði. Undir voru
grunsemdir um meint auðgunarbrot og brot á ákvæðum
hlutafélagalaga um bann við lánveitingum á borð við þá sem
FL Group var grunað um að hafa veitt Fons.
Hinn 11. nóvember 2008 gerðu starfsmenn skatt-
rannsóknar stjóra síðan ítarlega húsleit í höfuðstöðvum FL
Group, sem þá hafði tekið upp nafnið Stoðir. Þar var lagt hald
á ýmiss konar bókhaldsgögn og skjöl sem tengdust ætluðum
sýndarviðskiptum með eignarhluti í Sterling og öðrum
ferðaþjónustufyrirtækjum og aragrúi tölvupóstsamskipta
afritaður.
Hluti þessara gagna var sendur áfram til efnahagsbrota-
deildar ríkislögreglustjóra í lok árs 2009. Um er að ræða
hundruð blaðsíðna af trúnaðargögnum. Þau má lesa með því
að smella á hnappinn á spássíunni hér til hliðar.
Ragnhildur stígur fram
Síðan spurðist lítið til málsins í nokkurn tíma. Í apríl 2010
steig Ragnhildur Geirsdóttir, sem var forstjóri FL Group á
þeim tíma sem Fons keypti Sterling, hins vegar fram og tjáði
smelltu til að skoða hundruð
blaðsíðna af gögnum og tölvu-
póstum sem gerð voru upptæk í
húsleit í höfuðstöðvum Fl Group
í nóvember 2008