Kjarninn - 10.10.2013, Blaðsíða 36
05/05 kjarninn Danmörk
olli vonbrigðum. Stjórnendur vonuðust eftir aukinni veltu,
fjögurra til sex prósenta aukningu, en í ljós kom að í stað
aukningar hafði veltan dregist saman um nær átta prósent.
Þrátt fyrir þetta segjast stjórnendurnir bjartsýnir. Ástæða
þeirrar bjartsýni tengist einkum aukinni bílasölu víða um
heim, en B&O hefur um skeið verið í náinni samvinnu við
nokkra bílaframleiðendur, einkum framleiðendur dýrari bíla.
Að undanförnu hefur orðið mikil aukning í sölu bílahljóm-
tækja frá B&O nefnt Automotive, og þann garð ætlar fyrir-
tækið í auknum mæli að rækta, sagði forstjórinn á frétta-
mannafundi fyrir nokkrum dögum. Þá hyggur B&O á mikla
markaðssókn í Asíu, einkum Kína. Þar er ætlunin að opna
fimmtíu verslanir á næstu mánuðum, en áherslan verður
fyrst og fremst á Play-vörulínuna.
Þótt þær vörur gefi minna af sér en hinar dýrari sem B&O
framleiðir vonast stjórnendur til að aukin sala bæti það upp
og helst gott betur. Hvort sú verður raunin er engin leið að
segja til um.
Þegar Danir eru beðnir að nefna dæmigerð dönsk vöru-
merki eru nokkur nöfn sem oftast heyrast. LEGO er oftast
nefnt, svo koma nöfn eins og Tuborg, Carlsberg, Lurpak
(smjör), Álaborgarákavíti, Danfoss, B&O, Georg Jensen og
Royal Copenhagen.
„Þetta er félagsskapur sem við viljum gjarna vera í áfram,“
sagði forstjóri B&O á áðurnefndum fréttamannafundi. Víst er
að flestir eða allir Danir geta tekið undir þessi orð forstjórans
en fyrirtækið verður að finna nýjar leiðir til að auka söluna,
að öðrum kosti er framtíðin óviss.