Kjarninn - 10.10.2013, Page 17
03/06 kjarninn Efnahagsmál
liggur þegar fyrir að Seðlabanki Íslands getur ekki gefið
jákvætt svar við undanþágubeiðni slitastjórnar Glitnis nema
að fyrir liggi lausn varðandi þær eignir sem munu að óbreyttu
hafa neikvæð áhrif á greiðslujöfnuð Íslands við það að eignir
búsins verði greiddar út til kröfuhafa, sem eru[...]93,8% er-
lendir.[...] Til þess að Seðlabankanum sé unnt að veita unda-
þágu til fyrrgreinds nauðasamnings þarf því a liggja fyrir
lausn hvað þessar eignir varðar þannig að áhrif af útgreiðslu-
þeirra til erlendra kröfuhafa rúmist vel innan svigrúms
greiðslujafnaðar Íslands of áforma um losun fjármagnshafta.
Mikilvægt er að undirstrika að hér er ekki um samningsefni
að ræða. Annað hvort er skilyrðið uppfyllt eða ekki. Undan-
þágubeiðni Glitnis uppfyllir ekki þetta skilyrði að svo stöddu“.
Seðlabankinn sagðist hins vegar vera tilbúinn að leggja
mat á það hvort líkur væri á að einstakar leiðir sem kröfu-
hafarnir legðu fram myndu fullnægja þeim skilyrðum sem
bankinn telur nauðsynleg til að heimila undanþágu fyrir
nauðasamninga föllnu bankanna. „Hafi slitastjórn Glitnis hf.
útfærðar hugmyndir þar að lútandi, eins og fullyrt er í bréfi
hennar, er bankinn tilbúinn að ræða þær.“
Sviðsmyndir kröfuhafa
Kjarninn hefur undir höndum þær sviðsmyndir sem full-
trúar kröfuhafa bæði Glitnis og Kaupþings hafa teiknað upp
til að leysa þennan vanda. Sviðsmyndirnar hafa aldrei áður
birst opinberlega. Þær eru hluti af greiningu sem unnin er
af ráðgjafarfyrirtækinu Talbot Hughes McKillop, sem vinnur
mikið fyrir kröfuhafa bankanna. Þessar sviðsmyndir hafa
verið kynntar Seðlabankanum og ljóst er á viðbrögðum hans
að bankinn telur þær ekki viðunandi.
Kaupþing ætlar eKKi að gera tilboð
Þótt slitastjórn glitnis hafi leitað eftir samninga-
viðræðum við seðlabankann eða ríkisstjórnina og
helstu fulltrúar stórra kröfuhafa bæði þess banka og
Kaupþings virðist styðja við þær umleitanir er ekkert
slíkt tilboð á leiðinni frá þrotabúi Kaupþings. Þeir
sem stýra því búi telja það einfaldlega ekki í sam-
ræmi við ákvæði laga um starfsemi slitastjórna. auk
þess telja þeir að slitastjórnir hafi ekki vald til þess
að gefa eftir eignir búanna, hvorki að eigin frum-
kvæði né samkvæmt fyrirmælum hluta kröfuhafa.