Kjarninn - 10.10.2013, Page 78
06/06 kjarninn Bílar
verksmiðjan hafði verið sett á laggirnar seldist bíll númer
418.812. Grunnverðið var 2.368 dalir, en það segir ekki alla
söguna því að kaupendur eyddu að meðaltali 1.000 dölum í
aukahluti. Hreinn hagnaður af sölu Mustang fyrstu tvö árin
var 1,1 milljarður dala, tæplega 1.000 milljarðar króna að
núvirði.
„Ég er gjarnan titlaður faðir Mustangsins,“ segir Iacocca í
æviminningum sínum, „þó að margir vilji auðvitað eigna sér
heiðurinn eins og venja er þegar vel tekst til. Raunar hafa svo
margir menn viljað feðra Mustanginn að ég myndi ekki vilja
sjást opinberlega með móðurinni!“
Mustang hefur allar götur síðan verið ein af tákn myndum
amerískrar bílamenningar. Kynslóð eftir kynslóð hefur
bíllinn selst vel, þó að ekkert slái við fyrstu árum hans hvað
sölutölur varðar.
Árangur Mustangsins fleytti Lee Iacocca að lokum upp í
forstjórastól Ford-samsteypunnar, þar sem hann réði ríkjum
uns hann var rekinn af vænisjúku barnabarni Henry Ford,
sem þá fór með stjórnarformennsku fyrirtækisins. Henry
Ford II sakaði Iacocca um mafíutengsl og lét hann fara þrátt
fyrir metárangur í sögu fyrirtækisins, en það er önnur saga
og verður ekki tíunduð hér.