Kjarninn - 14.11.2013, Side 47
15/17 kjarninn ALMANNATENGSL
Arons með því að senda harðorða yfirlýsingu á fjölmiðla. Þar
segir að Aron hafi ekki svarað kalli landsliðsþjálfara Íslands
síðasta árið á sama tíma og Jürgen Klinsman, landsliðs-
þjálfari Bandaríkjana, sýndi honum áhuga og að tengsl
Arons við knattspyrnu í Bandaríkjunum séu engin. Þá segir í
yfirlýsingunni að „það eina sem KSÍ hefur fengið ábendingar
um frá hagsmunaaðila er að tekjumöguleikar Arons sem
leikmanns fyrir Bandaríkin séu allt aðrir og meiri í formi
styrktar- og auglýsingatekna en sem leikmanns Íslands,“ og
Aron er jafnframt beðinn um að endurskoða ákvörðun sína.
„Það er einfaldlega þannig að landsliðsmenn Íslands leika
fyrir land og þjóð og hljóta fyrir heiður og sæmd.“
Þessi yfirlýsing frá KSÍ verður að teljast nokkuð undarleg;
ráðist er á Aron fyrir að velja Bandaríkin og honum gerðar
upp óeðlilegar ástæður fyrir valinu. Það er ljóst að forsvars-
menn KSÍ hafa orðið fyrir vonbrigðum með ákvörðun Arons,
líkt og fjölmargir knattspyrnuáhugamenn. Hafi þeir vonast
til að snúa henni með þessari undarlegu yfirlýsingu gekk það
ekki upp, enda ekki líklegt til árangurs að skamma leikmann
og væna hann um græðgi til að fá hann til að skipta um
skoðun. Þarna hefði KSÍ auðvitað átt að senda frá sér yfirlýs-
ingu þar sem sambandið segðist virða ákvörun Arons, þó að
vissulega væri sárt að horfa á eftir svona góðum leikmanni,
og óska honum alls hins besta með liði Bandaríkjanna. Í stað
þess fékk almenningur, sem hafði að mörgu leyti samúð með
þeirri erfiðu stöðu sem Aron var í, þá mynd af KSÍ að forystu-
menn sambandsins væru bitrir og teldu sig eiga heimtingu á
því að Aron léki með Íslandi, af því bara.
stóra miðasölumálið
Þegar flestir íslenskir knattspyrnuáhugamenn vöknuðu að
morgni þriðjudagsins 29. október síðastliðinn var uppselt
á leik Íslands og Króatíu. Miðasala hafði verið sett af stað
klukkan 4.00 um nóttina, til að dreifa álaginu að sögn KSÍ.
Gríðarleg óánægja var með þetta fyrirkomulag og fljótlega
fóru á kreik sögur um að vinir og kunningjar KSÍ hefðu vitað
af þessu og náð að tryggja sér miða. Umræðan stigmagnaðist,
„Það einkennir
viðbrögð
forsvarsmanna
KSÍ í öllum
þremur málunum
sem rakin eru
hér að ofan að
þeir eru sjálfir
í miðjunni á
storminum en
virðast velja
það að bregðast
við án utanað-
komandi ráð-
gjafar.“