Kjarninn - 14.11.2013, Side 68
02/02 kjarninn HÖNNUN
s
cintilla er íslenskt sprotafyrirtæki í textíliðnaði.
Það var stofnað fyrir um þremur árum, veitir um
það bil fimm manns vinnu og hefur þegar ráðist í
útrás með heimilisvörulínu sína. Fyrirtækið er nú
að reyna að hópfjármagna línu af speglum með
sandblásnum mynstrum sem sýndir verða á Spark Design
Space 21. nóvember næstkomandi.
Linda Björg Árnadóttir, listrænn stjórnandi Scintilla,
segir fyrirtækið vera með tvær línur í gangi eins og er.
„Annars vegar erum við með línu í heimilisiðnaði. Það eru
púðar, sængurver, handklæði, rúmföt og annað slíkt sem
hefur með heimilistextíl að gera. Hins vegar erum við með
textílvörur fyrir hótel. Við höfum fundið að það er greinileg
þörf fyrir fyrirtæki sem sér hótelum fyrir textíl hérlendis.
Það eru mörg hótel í vandræðum með þetta. Það eru einhver
fyrirtæki að flytja inn textíl en þar eru ekki textílmenntaðir
einstaklingar og þeir geta hvorki talað um efnið né tæknina.“
Heimilisvörulína Scintilla er þegar komin inn í hátt í
fimmtán verslanir í Norður-Ameríku, að sögn Lindu. „Það er
vara sem telst vera í norrænum stíl, sem telst vinsælt úti um
allan heim.Við höfum komið henni á framfæri með því að
taka þátt í vörusýningu í New York sem heitir New York Now.
Í janúar verðum við á henni í sjötta skiptið. Mark miðið er að
búa til okkar eigin stíl þannig að við eigum okkar eigin hug-
verk þegar kemur að stíl. Það er engin vörulína sem lítur út
eins og okkar. Við erum líka með umboðsmenn í Þýskalandi
og Bretlandi, þar sem við höfum líka náð ágætis árangri í ár.“
Linda segir að verkefnið sem Scintilla sæki sér hóp-
fjármögnun út af snúist um mynstur. „Við sjáum fyrir okkur
að Scintilla muni færa sig úr textíl yfir í jarðvörur á borð við
ilmkerti. Núna erum við að fást við spegla, en þetta er meira
stílyfirlýsing.“
scintilla með
stílyfirlýsingu
Sækir sér hópfjármögnun á Karolina Fund.
Deildu með
umheiminum
Hönnun
Þórður Snær Júlíusson
thordur@kjarninn.is
Smelltu til að
heimsækja vefsíðu
Scintilla