Kjarninn - 14.11.2013, Síða 85
04/06 kjarninn DÓMSMÁL
Einar Sigurðsson veitti Sveinbirni Indriðasyni, þáverandi
fjármálastjóra FL Group, heimild til að fá aðgang að öllum
bankareikningum FL Group hjá KBL.
Það var ekki fyrr en eftir þrýsting, meðal annars frá þá-
verandi forstjóra félagsins, að fjármunirnir skiluðu sér aftur
á reikning FL Group í Kaupþingi banka hf. 30. júní 2005,
eða rúmum tveimur mánuðum eftir brot ákærða samkvæmt
ákæru. Fyrir þann tíma hafði millifærslan ekki verið færð í
bókhald félagsins. Þann dag hafði KBL veitt Fons til að greiða
umrædda fjármuni til baka til FL Group og gegnust ákærði
og Jón Ásgeir Jóhannesson í persónulegar ábyrgðir fyrir
endurgreiðslu lánsfjárhæðarinnar. Ekki verður séð að ákærði
hafi á þeim tíma eða öðrum haft nokkur formleg tengsl við
starfsemi Fons.“
Hannes Smárason sendi frá sér yfirlýsingu þegar greint
var frá ákærunni. Hann hafnar þeim sakargiftum sem á hann
12.-14. mars 2005
Fons kaupir Sterling á
fjóra milljarða króna.
Á sama tíma voru þrír
milljarðar króna milli-
færðir frá FL Group inn
á reikning í Kaupþingi í
Lúxemborg. peningarnir
fóru út af reikningnum
og komu ekki aftur inn á
hann fyrr en í júlí sama
ár, um fjórum mánuðum
síðar.
1. júlí 2005
Fons eignast Maersk Air
og innlimar flugfélagið.
Kaupverðið var ekki
gefið upp en í fjöl-
miðlum kom fram að
það var ekki talið vera
nokkurt. Félögin töpuðu
enda samtals um átta
milljörðum króna á árinu
2005.
16. október 2005
Hannes Smárason, sem
þá var nýlega orðinn for-
stjóri FL Group, og pálmi
Haraldsson, aðaleigandi
Fons, ganga frá kaupum
FL Group á Sterling fyrir
15 milljarða króna. Sölu-
hagnaður Fons af því að
eiga Sterling og Maersk,
sem töpuðu milljörðum
króna á þessum tíma,
varð því 11 milljarðar
króna á um hálfu ári.
fyrsti ársfjórðungur
2006
Sterling tapar rúmum
tveimur milljörðum
króna.
tímalína atburða í
sterling/ntH fléttunni
Dragðu tímalínuna til að
sjá alla atburðina