Kjarninn - 14.11.2013, Side 81

Kjarninn - 14.11.2013, Side 81
04/04 kjarninn ÁLiT Í þremur greinum, sem birtast í Kjarnanum í dag og næstu tvo fimmtudaga, verður fjallað um áhrif af niðurskurði ríkisútgjalda sem boðaður er í frumvarpi til fjárlaga. Í fyrstu greininni er vikið að efnahags- legum og fjárhagslegum áhrifum niðurskurðar. Önnur greinin er um niðurskurð og velferð og í þeirri þriðju er horft til framtíðar og stefna mörkuð. i. fjárlögin og framtíðin – efnahagsleg áhrif niðurskurðar Í hugum sumra er niðurskurður opinberra útgjalda Kínalífselexír. Með honum á að lækna alla óáran í efnahagslífinu, draga úr eftirspurn á þensluárum, örva einkaneyslu og skapa rúm fyrir fjárfestingar á samdráttartímum og fleira. Flest er þetta klisjur. Áhrif af niðurskurði ríkisútgjalda ráðast af því hvað hann hittir fyrir og hverjar aðstæður eru hverju sinni. Hér á eftir verður reynt að lesa í áhrif af þeim niðurskurði sem boðaður er í frum- varpi til fjárlaga fyrir árið 2014. Ákvörðun opinberra útgjalda er eitt mikilvægasta verk- efni stjórnmála í hverju samfélagi. Með henni er tekin afstaða til þess hvernig gæðum samfélagsins er varið, hversu mikið fer til sameiginlegra þarfa eins og þær eru skil- greindar í samfélaginu og hversu mikið fer til einkaneyslu. Þetta er flókið verkefni sem á sér ekki neina eina rétta lausn en er málamiðlun margvíslegra sjónarmiða og hagsmuna. frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2014 og langtíma- áætlun til 2017 Langtímaáætlun fjárlagafrumvarpsins er lítt upplýsandi en af henni verður þó ráðið að boðaður er niðurskurður ríkis- útgjalda næstu fjögur árin, sbr. eftirfarandi: „Í langtíma- áætluninni (innsk. 2014–2017) er því á útgjaldahlið almennt ekki gert ráð fyrir magnaukningu í þróun útgjalda yfir tímabilið.“ (Langtímaáætlun kafli 3.4.1). Til viðbótar er gert ráð fyrir um 5 milljarða niðurskurði á ári til 2017. (Ib 3.4.2.). Þetta felur í sér að ekki verður unnt að bæta ástandið á þeim sviðum opinberrar þjónustu þar sem úrbætur eru óhjá- kvæmilegar og enn síður að mæta auknu álagi, t.d. vegna fjölgunar aldraðra og aukins álags af þeim sökum. Í heild má ætla að samdráttur ríkisútgjalda á áætlunartímabilinu verði ekki undir 3% af VLF, eða 50–60 milljarðar króna. Sá niðurskurður mun hafa mikil áhrif á opinbera þjónustu og áhrif hans á efnahagsframvindu og þjóðfélagsþróun geta orðið vond og langvarandi. Engin haldbær rök eru færð fyrir þessum áformum. En hvað býr að baki slíkum fyrirætlunum? Ákvörðun um að skera niður ríkisútgjöld getur byggst á ýmsum forsend- um og haft mismunandi markmið að leiðarljósi. Tilgangur- inn getur verið sá að minnka samneyslu ef það er ríkjandi viðhorf að hún sé of mikil. Markmiðið getur verið að hag- ræða, þ.e. að veita óbreytta þjónustu með minni tilkostnaði. Ástæðan getur líka verið verið efnahagspólitísk, svo sem að draga úr þenslu í efnahagslífinu, eða fjármálaleg til að draga úr skuldsetningu ríkissjóðs. Þær síðarnefndu eru háðar ástandi efnahagsmála og í eðli sínu tímabundnar. Hvað af þessu ræður ferðinni nú? áhrif niðurskurðar á efnahagsmál Naumhyggju í framlögum til velferðarmála o.fl. er rökstudd með tilvísun í afleita stöðu ríkissjóðs og þjóðarbúsins. Því mætti ætla að niðurskurðurinn væri tímabundin ráðstöfun en svo er ekki. Engar úrbætur eru fram undan, engin framtíðar sýn og engin fyrirhyggja. Reynt er að halda því fram að skera verði niður og um leið að lækka tekjur ríkis- sjóðs til þess að skapa það sem án rökstuðnings er ranglega kallað „viðspyrna“. Hallaus ríkissjóður með niðurskurði gjalda og tekna eins og stefnt er að í fjárlagafrumvarpinu er ekki viðspyrna fyrir efnahagslífið fremur en eyðimerkur- sandurinn í heimahögum teboðshreyfingarinnar. Frá hruni hefur margt áunnist en björninn er ekki að fullu unninn. Atvinnuleysi er enn of mikið og framleiðslu- geta samfélagsins ekki fullnýtt. Það eru gild fræðileg efna- hagsleg rök gegn því að skera niður ríkisútgjöld þegar eftir- spurn í hagkerfinu er veik. Vöxtur einkaneyslu hefur verið veikur og meðan svo er verður hagvöxtur einnig veikur. Því er efnahagslega óráðlegt að skera niður. Niðurskurður ríkisútgjalda mun draga úr eftirspurn, auka atvinnuleysi og draga úr hagvexti. Lækkun ríkisútgjalda um 1% af VLF á ári á mörgum næstu árum gæti dregið úr vexti VLF um 1–1,5% á ári, þ.e. tekjur í samfélaginu yrðu 20–30 milljörðum lægri en ella á ári hverju. Niðurskurðurinn mun því ekki aðeins gera endurreisn almannaþjónustu ómögulega heldur draga niður lífskjörin í landinu. Skattalækkanir, töfrasproti teboðanna, vega lítið á móti samdráttaráhrifum niðurskurðar, einkum þegar um er að ræða skattalækkanir hjá hátekjufólki og fyrirtækj- um. Lækkun auðlindagjalds í sjávarútvegi og niðurfelling auðlegðar skatts og orkuskatts mun ekki hafa nein veruleg áhrif á eftirspurn í hagkerfinu. Þau fáu prósent þjóðarinnar sem eru aðnjótandi þessara lækkana munu ekki auka neyslu á innlendri framleiðslu. Fjárfesting í fiskveiðum, meint en órökrétt afleiðing af lækkun veiðigjalda, myndi þótt raun- hæf væri litlu bæta við verðmætasköpun í sjávarútvegi, sem til skamms tíma ræðst nær alfarið af kvóta og fiskverði á erlendum mörkuðum. Afnám orkuskatts skilar sér að 80/100 til eigenda álvera og fjölgun álvera mun ekki skila neinum teljandi tekjum hér á landi um langa framtíð, ef þá nokkurn tíma. Viðspyrnukenning fjárlagafrumvarpsins er einfald- lega byggð á fölskum forsendum. Með þessari pólitík er líklegt að í stað vaxtar muni efnahagslífið grafa sig niður í eyðimerkur sand teboðspostulanna. Ríkissjóður er skuldsettur. Þær skuldir eru ekki vegna þess að velferðarkerfið hafi verið of dýrt á fyrri árum. Skuldirnar eru vegna óráðsíu bankanna og glámskyggni stjórnvalda í aðdraganda hrunsins. Þessar skuldir á ekki að leggja á almenning með frekari niðurskurði á opinberri þjón- ustu en hlífa þeim sem grætt hafa á hruninu. Vaxtagreiðslur ríkissjóðs af þessum auknu skuldum verða 2-3% af VLF á næstu árum. Niðurskurður samneyslunnar hefur verið mikið meiri en sem því nemur. Tekist hefur að rétta ríkisbúskapinn svo af að vandalítið er að halda sjó án frekari niðurskurðar ef rétt er haldið á málum. Vissulega væri mikið unnið með því að lækka vaxtakostnað ríkissjóðs. Árangursríkast í því efni er að losna við krónuna sem gjaldmiðil og lækka þannig vaxtastig í landinu. Hagræðing Stórkarlalegar yfirlýsingar um milljarðatuga sparnað með „hagræðingu“ munu ekki ganga eftir. Til þess eru engin efni og líklegt er að boðuð stórmerki á þessum vettvangi verði niðurskurður þjónustu í felulitum. Opinberar stofnanir á Íslandi eru yfirleitt vel reknar og fara vel með fé. Á liðnum árum hafa þær tekið á sig niðurskurð og sinna nú fleiri verkefnum en áður fyrir minna fé. Allar staðreyndir um álag á þær, fækkun starfsmanna, lægri laun o.fl. benda til þess að hugmyndir um stórfelldan sparnað með svokallaðri hag- ræðingu séu byggðar á sandi. Það er sjálfsagt og nauðsynlegt að beita aðhaldi í rekstri ríkisins. Því er best sinnt með stöðugu og virku eftirliti og faglegum athugunum á því hvað megi betur fara og hvar megi ná betri árangri eftir atvikum með sameiningu eða uppskiptingu stofnana eftir því hvernig verkefnum þeirra er háttað. Slík vinnubrögð eru vænlegri til árangurs en kross- ferðir með lúðrablæstri og söng. niðurskurður og framtíð velferðar álit Indriði Þorláksson Deildu með umheiminum 04/04 „Skatta lækkanir, töfrasproti te- boðanna, vega lítið á móti samdráttar- áhrifum niður- skurðar, einkum þegar um er að ræða skatta- lækkanir hjá hátekjufólki og fyrirtækjum.“

x

Kjarninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.