Kjarninn - 14.11.2013, Side 63

Kjarninn - 14.11.2013, Side 63
14/17 kjarninn TRÚMÁL í Bandaríkjunum um að þau væru vissulega trúarbrögð en ég vil meina að annað hangi á spýtunni en velferð meðlima eða trúin sjálf. Ég tel að aðalatriðið sé skattfríðindin sem trúfélög fá að njóta og er svo sannarlega mikið í húfi fyrir Vísinda- kirkjuna enda á hún gríðarlegt magn af fasteignum úti um allan heim og gjöld meðlima eru þar með sömuleiðis talin skattfrjáls og renna beint inn í kirkjunna. Ef það væri ekki fyrir þessi fríðindi væri Vísindakirkjan einfaldlega sjálfs- hjálparsamkoma og ef hún hefði tapað þessari baráttu fyrir skattayfirvöldum hefði hún líklega liðið undir lok. oRðskýRiNgAR AuditoR Sá sem stillir E-mæli (e. E-meter, sjá neðar), sem er svipaður og lygamælir, og spyr viðkomandi spjörunum úr til að hreinsa gömul tilfinningasár. Við þetta „hreinsast“ fólk. CleAR Að hreinsast, fyrsta stigið til að taka á móti lærdómi Vísindakirkjunnar. Héðan í frá liggur leiðin að því að verða OT. e-MeteR Svipað og lygamælir – á að meta líðan fólks á meðan endurskoðandinn fer yfir spurn- ingar. Hubbard sagði að þetta apparat væri svo næmt að það heyrði grænmeti öskra meðan verið væri að skera það. Sjá mynd. ot „Operating Thetan“ eða starfandi þetan – andlegt æðsta stig Vísindakirkjunnar. Engu að síður er svo stig af OT frá því að vera OT i–OT Viii. Þegar manneskja er OT er hún fullkomlega meðvituð og er „vitandi og viljandi með stjórn á lífi sínu, hugsunum, efni, orku, tíma og rúmi“. Skv. Hubbard átti OT-manneskja ekki einu sinni að geta fengið flensu, haft lélega sjón, fengið frunsu eða handleggsbrotnað. Ef slíkir hlutir komu fyrir var fólki refsað fyrir slíkt og sent í RFp. Miscavige sökudólgurinn En hvað er þá svona hræðilegt við þessa kirkju? Hvert er vandamálið ef fólk vill tilbiðja Jesú, Búdda, Óðin, for- feður sína eða skrifborðið sitt? Það sem er gagnrýnivert við Vísinda kirkjuna má að miklu leyti rekja til David Miscavige, sem tók við sem æðsti maður skömmu eftir að L. Ron

x

Kjarninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.