Kjarninn - 13.02.2014, Side 6

Kjarninn - 13.02.2014, Side 6
03/04 lEiðari margt af því er grunað um fordæmlausa markaðs misnotkun og aðra alvarlega glæpi í ofanálag altjóns fyrir hluthafa og mikil tjóns fyrir kröfuhafa. Allt var þetta á vakt lélegra eftirlits stofnana undir pólitískri forystu. Best að auka samkeppni Fyrir mér horfir staðan þannig við að besta niðurstaðan í þessari endurskipulagningu fyrir neytendur á Íslandi væri að fá erlendan banka inn í íslenskt atvinnulíf sem gæti veitt harða samkeppni, boðið betri kjör en íslensku bankarnir á grundvelli betra lánakjara á erlendum mörkuðum og þannig raunverulega breytt landslaginu í íslensku atvinnulífi. Þó að áhættulag allra lánveitinga á Íslandi verði alltaf hátt vegna mikillar verðbólgu myndi það samt hafa mikil áhrif á stöðu mála ef íhaldssamur norrænn banki, til dæmis norskur, opnaði útibú hér á landi og byði almenna þjónustu. Full ástæða ætti að vera fyrir stjórnvöld að ýta undir að gera þetta að veruleika frekar en hitt. Þó að erlendir bankar séu umsvifamiklir hér á landi þegar kemur að lánum til stórra fyrirtækja, til dæmis orkufyrirtækja, er það nálægðar- þjónustan við almenning sem gæti breytt málum til batnaðar, stuðlað að virkari samkeppni. Auk þess yrði gjaldeyririnn sem kæmi inn í hagkerfið með nýjum eigendum vel þeginn og liður í að minnka þrýsting á krónuna. Stjórnvöld geta gert einn áhrifamikinn hlut þegar kemur að umbreytingu á eignarhaldi fjármálakerfisins í samhengi við afnám eða rýmkun fjármagnshafta. Það er að birta allar upplýsingar er varða mögulegar breytingar á eignarhaldi fjármálakerfisins jafnóðum og þær verða til. Það er einfald- lega að birta öll gögn er þetta mál varðar svo að almenningur geti fylgst með öllu ferlinu á gagnsæjan hátt. Margt af því sem þegar hefur verið birt varðandi fjármagns höftin og framtíðarskipan í fjármálakerfi landsins vekur spurningar um hvort stjórnmálamenn séu að fara með rétt mál þegar þeir tjá sig opinberlega. Til dæmis hafa Bjarni „Þessar krónur virðast margir vilja fá í sína vasa, styrkja stöðu sína, auka völd sín.“

x

Kjarninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.