Kjarninn - 13.02.2014, Qupperneq 16
02/04 Viðskipti
s
alan á HTO ehf., sem á Höfðatorg, markar enda-
lokin á einni umfangsmestu fjárhagslegu endur-
skipulagningu á sviði fasteignaverkefna sem rekja
má aftur ríflega fimm ár, eða til hrunsins í október
2008. Þá komust uppbyggingaráform á svo-
kölluðum Höfðatorgsreit í uppnám. Íslandsbanki hefur unnið
úr stöðu mála með Pétri Guðmundssyni, eiganda og forstjóra
verktakafyrirtækisins Eyktar, sem nú vinnur að stórfelldri
uppbyggingu íbúða og hótels á Höfðatorgsreitnum. Áformað
er að reisa á bilinu 70 til 75 íbúðir á reitnum í tólf hæða
íbúðaturni auk hótelbyggingar sem verður í sextán hæða
turni. Heildarkostnaður þessarar uppbyggingar er áætlaður
um tólf milljarðar króna en uppbyggingin er komin vel á veg
þó að ekki sé áætlað að þeim ljúki fyrr en í árslok 2016.
á annan tug milljarða
Fast-1 slhf., félagið sem er að mestu í eigu lífeyrissjóða og
tryggingarfélaga, keypti á dögunum HTO og nemur kaup-
verðið vel á annan tug milljarða króna, samkvæmt heimild-
um Kjarnans. Bókfært virði nítján hæða turnsins á Höfða-
torgi var 11,2 milljarðar króna í árslok 2011 en síðan þá hefur
gengið vel að glæða hæðir hússins lífi og er það að langmestu
leyti í útleigu núna. Meðal leigutaka eru Reykjavíkurborg,
Reiknistofa bankanna, Fjármálaeftirlitið, Olís, Samherji og
lögmannsstofan BBA Legal.
nauðasamningur
Hinn 24. júní 2011 var gerður nauðasamningur milli HTO ehf.
og kröfuhafa félagsins, þar sem Íslandsbanki var langsam-
lega fyrirferðarmestur. Hann var staðfestur í Héraðsdómi
Reykjavíkur 25. janúar 2012. Með þessum samningum fékk
félagið 15 milljarða króna afskrifaða og var þessum skuldum
breytt í hlutafé að stórum hluta. Staða félagsins kúventist
við þessa breytingu. Eigið féð var neikvætt um 10,8 milljarða
króna en var að samningunum loknum jákvætt um 1,8 millj-
arða króna en tíu milljarða skuldir voru endur fjármagnaðar
þessu samhliða, færðar úr erlendri mynt í krónur.
Viðskipti
Magnús Halldórsson