Kjarninn - 13.02.2014, Side 44
02/07 Viðtal
Þ
að er kalt og tekið að húma þegar brosmild Mar-
grét Rán Magnúsdóttir tekur á móti blaðamanni
og ljósmyndara, sem staðið höfðu sem illa gerðir
hlutir í miðju iðnaðarhverfinu í Hafnarfirði, leit-
andi að æfingahúsnæði hljómsveitarinnar Vakar.
Margrét er söngkona og helsti lagasmiður sveitarinnar, sem
varð fræg á Íslandi nánast á einni nóttu eftir glæstan sigur í
síðustu Músíktilraunum.
Margrét tekur á móti pressuliðinu í dyragættinni á véla-
verkstæði í eigu föður hennar, en sveitin hefur fengið afdrep
uppi á lofti, fyrir ofan varahluti og olíur, til að iðka list sína.
Hljómsveitin fagnar eins árs afmæli sínu um þessar mundir.
„Við Andri vorum að fikta í tónlistarforriti hvort í sínu lagi
og vorum að kasta á milli okkar töktum og hugmyndum, en
okkur hafði alltaf langað til að gera eitthvað saman. Svo eitt
kvöldið spurði ég hann bara í spassakasti hvort hann væri
ekki til í að taka þátt í Músíktilraunum með mér. Hann sagði
já, þannig að við sóttum um, en þá áttum við bara eitt lag,“
segir Margrét.
sigur sem opnaði dyr
Hin nýstofnaða hljómsveit settist þá niður og samdi tvö lög
til viðbótar og gerði sér lítið fyrir og vann Músíktilraunir.
Margrét segir sigurinn hafa breytt miklu fyrir sveitina.
„Hann opnaði fullt af dyrum fyrir okkur. Við fengum mikla
athygli og þá var byrjað að hringja í okkur og biðja okkur
um að spila. Við vissum auðvitað ekki skít á þessum tíma og
höfðum í raun ekki hugmynd um hvernig við ættum að koma
fram með öllu þessu tölvudóti. Þetta var allt eitthvað svo
mikil tilraun, en síðasta ár er búið að vera mikill skóli.“
Auk Margrétar skipa hljómsveitina þeir Andri Már Enoks-
son, sem spilar á saxófón og annast útsetningar, og Ólafur
Alexander Ólafsson sem leikur á gítar, en sá síðastnefndi
gekk formlega til liðs við hljómsveitina í sumar. „Við buðum
honum að taka þátt í Músíktilraununum með okkur á sínum
tíma en þá var hann akkúrat á leiðinni í skólaferðalag til
Póllands á sama tíma. Svo þegar við sögðum honum að við
Viðtal
Ægir Þór Eysteinsson
Myndir: Anton Brink