Kjarninn - 13.02.2014, Page 45
03/07 Viðtal
hefðum unnið fór hann í þvílíkan bömmer,“ segir Margrét og
hlær. „Okkur fannst alltaf eins og það vantaði eitthvað. Það
passaði ekki alveg að vera bara tvö á sviði með svona mikið
í gangi, þannig að við vildum alltaf fá þriðja aðilann inn og
það var aldrei neinn annar en hann sem kom til greina.“
mistök í hljóðveri
Hljómsveitin fékk tuttugu hljóðverstíma sem hluta af sigur-
verðlaununum í Músíktilraunum og hélt til vinnu í hljóðverið
Sundlaugina. Þar voru gerð þau mistök við upptökur á lögum
sveitarinnar að ýmis aukahljóð, svo sem
hljóð í taktmælum og annað þvíumlíkt, lak
inn á upptökurnar. Þá voru góð ráð dýr.
„Við fórum þá í sumarbústaðinn minn og
tókum upp fullt sjálf, því upptökurnar úr
Sundlauginni voru ekki nógu góðar. Við
þurftum að endurtaka ýmsar upptökur og
svo hjálpaði Bassi úr Kiriyama Family okkur
mikið. Án hans hefði smáskífan okkar vafalaust aldrei komið
út,“ segir Margrét.
Fyrsta smáskífa sveitarinnar, Tension, leit dagsins ljós í
byrjun ágúst. Hún innihélt fimm lög og náðu þrjú þeirra tölu-
verðum vinsældum; Ég bíð þín, Before og Við vökum. „Við
bjuggumst aldrei við neinu með svona EP-plötu, þær segja
yfirleitt ekki nógu mikið. Svo var platan gerð í svo miklum
flýti, svo miklum raunar að þegar við hlustum á hana í dag
pirrum við okkur á því af hverju við gerðum ekki suma hluti
öðruvísi.”
snemma beygist krókurinn
Margrét fékk snemma áhuga á raftónlist og var ung að
árum þegar hún byrjaði að sýna tónlistarlega tilburði sjálf.
„Ég var alltaf með rífandi áhuga á tónlist og þá sérstaklega
eighties-tónlist, hljóðgervlunum sem þar voru áberandi og
þessu rafumhverfi. Ætli ég hafi ekki verið svona þriggja ára
þegar ég byrjaði að tromma á potta og pönnur heima. Svo
fékk ég fyrsta alvöru gítarinn þegar ég var tíu ára og litla
„Við vissum auðvitað ekki skít
á þessum tíma og höfðum í
raun ekki hugmynd um hvernig
við ættum að koma fram
með öllu þessu tölvudóti. “