Kjarninn - 13.02.2014, Page 54
04/07 pistill
bara menningarborg, hún er líka barnamenningarborg og
þar með borg fyrir alla fjölskylduna.
Barnamenningin …
… gæti átt sinn þátt í frjálslegum heimsóknartímunum á
barnaspítalanum. Það virðist vera gert ráð fyrir því að börn
eigi fjölbreyttar fjölskyldur. Alltént er þetta ekki í fyrsta
skipti sem hugtakið fjölskylduvæn barnamenning kemur upp
í hugann í Berlín.
Í Schöneberg, hverfinu þar sem ég bý, er fjöldinn allur
af búðum með notaðar barnavörur: föt, dót og barnakerrur;
þar má kaupa vandaða hluti ódýrt og endurnýta þá. Þessar
búðir eru vinsælar meðal almennings, svipað og allar fallegu
leikfangabúðirnar sem selja dót úr efnum með gæðastimpli
og státa af sérhæfðu starfsfólki.
Í flestum hverfum eru barnakaffihús og oft eru umsagnir
um þau í tímaritum helguðum helstu viðburðum og stöðum í
borginni. Þar geta krakkarnir leikið í öryggismiðuðum leik-
tækjum meðan foreldrarnir sötra kaffið. Stundum má líka
sjá krakkamarkaði við skóla þar sem krakkar og foreldrar
selja gamalt dót og kaupa sér heitan berjadjús hjá einhverri
ömmunni.
Flottir rólóar eru á hverju horni. Oft eru tréhús í
kastaníutrjánum og búið að reisa kastala með klifurbrúm, að
ógleymdum hefðbundnum leiktækjum. Jarðvegurinn er úr
sandi sem er bæði gott að detta og leika í.
Í barnaborginni Berlín eru …
… ýmiss konar flott söfn fyrir börn, dótasöfn jafnt sem
vísinda söfn. Þar eru stórir almenningsgarðar og í einum
þeirra, Hasenheide, er ókeypis húsdýragarður. Við hlið
Hasenheide liggur flennistórt berangur sem var áður
alþjóða flugvöllurinn Tempelhof; þar geta krakkar leikið með
flugdreka eða æft jafnvægi á þar til gerðum tréhjólum.
Í mörgum götum má sjá litla, afgirta velli með mjúkum
dúk fyrir börn í fótbolta og álíka algeng eru borðtennisborð,
steypt ofan í jörðina. Á sumrin liggur leiðin í ísbúðir