Kjarninn - 13.02.2014, Side 60

Kjarninn - 13.02.2014, Side 60
03/04 lÍFsstÍll suðlægur og mittið breitt eins og símastaur. Múffutoppur yfir gallabuxnastrengnum. Verkamannahendur og þvottur ofan á þvottabrettinu. Þumalputti og vísifingur klípa og klemma hverja húðflygsu sem næst í, og hella olíu á sjálfseyðingar- bálið sem nú logar glatt. samviskubitsárásin Og saltið sem er mokað ofan í sárið er samviskubits áskriftin. Í ræktinni er samviskan innanétin því hún tekur tíma frá fjölskyldunni. Skömmin yfir að vinna yfir- vinnu og missa af æfingu er allsráðandi, sektarkenndin er í sjöunda veldi yfir því að setja ungann í barnapössun meðan hamagangi er troðið inn milli Hagkaups- ferða og skutli í píanótíma. Samviskubit, sektarkennd og niðurrif eru hryðjuverk á sálinni sem fylla hana af vonleysi og hjálparleysi og leiða oft til óæskilegra ákvarðana, eins og ofáts til að deyfa slíkar neikvæðar tilfinningar. Þá hækkar enn frekar summan í samviskubitsbankanum, með sektarkenndina í botni og áhyggjur af kílóum. Loforðið um betrun á sjálfi „á morgun“ losar um spennuna og í ör- væntingu er daðrað við megrunarskrattann og skyndilausnabransinn hlær í bankanum á meðan þú situr pikkfastur í ömurlegum vítahring og spólar eins og Yaris á Holtavörðuheiðinni. Við þurfum að hætta þessari sjálfseyðingu. Hætta að velta okkur upp úr óraunhæfum væntingum til sjálfsins því það felur ekkert í sér nema brotna sjálfsmynd, depressífa lund og lítið sjálfstraust. hvað er í gangi baksviðs? Fólk birtir þér einungis þann veruleika sem það vill að þú falsímyndir fallega fólksins Kim Kardashian hefur verið dugleg að pósta myndum af sér við hin ýmsu tækifæri. Hún birtir sjaldan eða aldrei myndir af sér þar sem hún er illa haldin af „ljótunni“.

x

Kjarninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.