Kjarninn - 13.02.2014, Side 76

Kjarninn - 13.02.2014, Side 76
02/05 tÓnlist major lazer Major Lazer var uppruna- lega samstarfsverkefni plötusnúðanna og upptöku- stjóranna Diplo og Switch og sendi sveitin fyrst frá sér breiðskífuna Guns Don‘t Kill People... Lazers Do árið 2009 sem inniheld- ur smelli á borð við „Hold The Line“, „Pon De Floor“ og „What U Like“. Í fyrra sneri Major Lazer til baka með aðra breiðskífu sína, Free the Universe, og að þessu sinni er Diplo einn síns liðs á tökkunum en þó með fjölda frábærra söngvara sem ljáðu Major Lazer raddir. Má þar nefna Amber Coffman og David Longstreth úr Dirty Projectors, Ezra Koenig úr Vampire Weekend, Peaches, Santigold og ofur- popparann Bruno Mars. Bonobo Bonobo er listamannsnafn breska upptökustjórans Simon Green, sem er Ís- lendingum að góðu kunnur enda hefur hann haft feykileg áhrif á íslenska raftónlistarmenn af yngri kynslóðinni. Til Bonobo heyrðist fyrst árið 1999 þegar Tru Thoughts sendi frá sér safnskífuna When Shapes Join Together. Fyrsta breiðskífa hans, Animal Magic, leit dagsins ljós árið 2001 og þótti sníða nýjan stakk á downtempo og trip hop senuna sem var ríkjandi í Bretlandi á þessum árum. Næstu plötur Bonobo voru gefnar út af hinu ráðsetta útgáfumerki Ninja Tune, sem gerði honum kleift að auka vinsældir sínar og vinna með söngkonum á borð við Erykuh Badu og fleiri. jon hopkins Einn umtalaðsti upptöku- stjóri og tónlistarmaður síðari ára er án efa hinn breski Jon Hopkins. Áður en hann gaf út sína fyrstu breiðskífu í fyrra hafði hann getið sér gott orð sem samstarfsmaður Brian Eno, David Holmes, Coldplay og King Creosote. Jon heimsótti Ísland fyrir skömmu til þess að spila á Iceland Airwaves í fyrra og er mál flestra sem sáu hann að hann hafi borið af öðrum tónlistarmönnum það kvöld. Frumburður hans, Immunity, þykir hreint afbragð og með því besta sem komið hefur út í danstónlist í mörg ár. Major Lazer Get Free feat. Amber Coffman Bonobo Cirrus Jon Hopkins Open Eye Signal

x

Kjarninn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjarninn
https://timarit.is/publication/958

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.