Búskapur hins opinbera 1994-1995 - 01.04.1996, Blaðsíða 19
Flokka má útgjöld hins opinbera eftir tegund í sex meginflokka með tilliti til eðlis
þeirra, þ.e. í samneyslu, vaxtagjöld, framleiðslustyrki, tekjutilfærslur, Qármunamynd-
un og fjármagnstilfærslur. Tekju- og rekstrartilfærslur til heimila og atvinnuvega taka
til sín um einn Qórða hluta opinberra útgjalda og útgjöld til ijárfestinga tæplega
áttunda hluta þeirra. Afgangurinn fer til vaxtagreiðslna eða rúmlega tíundi hluti opin-
berra útgjalda.
Útgjöld hins opinbera má einnig flokka eftir málaflokkum, þ.e.a.s. í fræðslumál,
heilbrigðismál, félagsmál, atvinnumál o.s.frv. í töflu 5.24 er að flnna slíka flokkun, en
útgjöldunum er skipt upp í stjómsýslu, félagslega þjónustu, atvinnumál og önnur mál.
Síjórnsýslan nær til almennrar stjórnsýslu, réttargæslu og öryggismála. Sú starfsemi
er þess eðlis að ekki er talið æskilegt að einkaaðilar annist hana. Á árinu 1995 fóru
um 15,3 milljarðar króna til þeirrar starfsemi eða 3,4% af landsframleiðslu. Hin
félagslega þjónusta, þ.e. fræðslu-, heilbrigðis-, velferðar-, skipulags- og menningar-
mál, tekur til sín bróðurpartinn af útgjöldum hins opinbera, eða þrjá flmmtu hluta sem
svara til um 24% af landsframleiðslu. Þar vega almannatryggingar og velferðarmál
langþyngst, en til þeirra runnu rúmlega 40 milljarðar króna á árinu 1995 sem mælist
rúmlega 22% útgjalda hins opinbera. Sá málaflokkur hefur vaxið mjög allra síðustu
árin meðal annars vegna aukins atvinnuleysis. Nokkru lægri fjárhæð er ráðstafað til
heilbrigðismála eða ríflega 32 milljörðum króna árið 1995, en það svarar til 17,3%
útgjalda hins opinbera. Þá koma fræðslumálin, sem kostuðu rúmlega 22 milljarða
króna á árinu 1995 eða 12,3% af útgjöldum hins opinbera. Þessir þrír málaflokkar
taka til sín rúmlega helming útgjalda hins opinbera eða 93% milljarð króna á árinu
1995.
Tafla 5.2 Meginmálaflokkar hins opinbera 1992-1995*.
1992 í milljónum króna 1993 1994 Brt. 1995 1992 Hlutfall af VLF 1993 1994 1995
Stjómsýsla 13.384 13.589 14.638 15.343 3,36 3,31 3,37 3,36
Fclagsleg stjómsýsla 96.467 101.915 105.073 108.637 24,25 24,81 24,18 23,81
- þ.a. fræöslumál 20.696 20.755 21.235 22.213 5,20 5,05 4,89 4,87
- þ.a. heilbrigðismál 27.759 28.488 29.662 31.263 6,98 6,93 6,83 6,85
- þ.a. almannatr. og velferðarmál 34.538 37.093 37.799 40.128 8,68 9,03 8,70 8,80
Atvinnumál 32.442 29.701 31.814 29.304 8,15 7,23 7,32 6,42
Önnur opinber þjónusta 21.653 23.361 25.496 27.334 5,44 5,69 5,87 5,99
Heildarútgjöld hins opinbera 163.946 168.566 177.021 180.618 41,21 41,03 40,74 39,59
•) Afskriftir taldar hér með.
Útgjöld hins opinbera til atvinnumála voru innan við sjötti hluti opinberra útgjalda
árið 1995 eða ríflega 29 milljarðar króna. En hlutdeild þeirra hefur þó farið lækkandi
síðustu árin, einkum vegna minni framlaga til landbúnaðarmála. Af útgjöldum til
atvinnumála vega samgöngumálin þyngst, en til þeirra runnu rúmlega 13>/2 milljarð-
ur króna árið 1995. Þá vega landbúnaðarmálin einnig þungt, en 7,3 milljarðar króna
fóru í þann málaflokk það ár. Að síðustu eru það önnur mál, sem eru rúmlega 15%
4 Sjá einnig töflu 4.4 í töfluviðauka.
17