Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2007, Page 46
föstudagur 7. september 200746 Helgarblað DV
Bananabrauð
með kanil
og hnetum
Hráefni:
100 g smjör, mjúkt
175 g hunang
2 egg
2 stórir þroskaðir bananar, skornir í bita
½ msk kanill
225 g hveiti
50 g valhnetur
50 g brasilíuhnetur
Aðferð:
Hitið ofninn í 180°C. smyrjið stórt
bökunarform. setjið smjör, hunang,
egg, banana, kanil og hveiti í
matvinnsluvél og hrærið. bætið í
hnetum og hrærið þar til allt hefur
blandast saman. Hellið í bökunarform
og bakið í 35–40 mínútur. Kælið í
forminu í 10 mínútur. berið fram heitt
eða kalt með smjöri.
U m s j ó n : Þ ó r u n n S t e f á n s d ó t t i r . N e t f a n g t h o r u n n @ d v . i s
&Matur vín KampavínskokkteillHægt er að útbúa ýmis sparileg tilbrigði við kampavín með einföldum hætti. ein leiðin er að blanda ferskum sítrónusafa og 20 ml af Cointreau út í eina flösku af kamapavíni og bera fram. að sjálfsögðu má notast við freyðivín í stað kampavínsins.
Hafþór Sveinsson, matreiðslumaður á Silfri. Meistarinn
Bláberja/
súkkulaðikaka
Á hressilegum rigningardegi er fátt eins
sjarmerandi og að baka köku handa
börnunum, kveikja á kertum og njóta
þess að vera inni við. bláber setja svip
sinn á þennan árstíma og hér er
uppskrift að góðri bláberja-súkkulaði-
köku.
110 g ósaltað smjör
75 g dökkt súkkulaði
2 stór egg
225 g sykur
1 teskeið vanillusykur
75 g hveiti
75 g frosin bláber
75 g valhnetur
Hitið ofninn í 180°C. smyrjið 24 cm
ferkantað kökumót og setjið
smjörpappír í botn og hliðar.
bræðið smjör og súkkulaði í vatnsbaði.
Hrærið varlega saman þegar bráðið og
takið af hellunni. Þeytið eggin, sykur og
vanillusykur þar til froðukennt. Hellið
súkkulaði/smjörblöndunni varlega
saman við og bætið við hveitinu, að
undanskilinni 1 matskeið. Veltið
frosnum bláberjunum upp úr
afgangnum af hveitinu og bætið þeim
og valhnetunum út í blönduna. bakið í
miðjum ofni í 50 mínútur. Kökurnar eiga
að vera stökkar að ofan, mjúkar að
neðan. Kælið í forminu, takið úr og
skerið í ferninga.
uppsKrift að túnfisKsforrétti fyrir fjóra
l 400 g túnfiskur
l 30 g sítrónusafi
l 200 g soyasósa
l 20 g wasabi
Aðferð :
Túnfiskurinn er steiktur. Því næst er wasabi,
sítrónusafa og soyasósu blandað saman og tún-
fiskurinn marineraður í vökvanum í tvo tíma.
aspas- og papriKusalat
l 2 stk. paprika
l 4 stk. aspas
l 1/2 dl extra virgin ólífuolía
l örlítið sjávarsalt (helst maldon)
Aðferð:
Paprikan er bökuð og flysjuð. Því næst er asp-
asinn flysjaður og soðinn. Paprikan og aspasinn
eru svo skorin í strimla og blandað vel saman.
portVínsgljÁi
l 1 dl portvín
l 1 dl balsamico
l 1/2 cihili
l 1 tsk. hunang
Aðferð:
Öllu er blandað saman og soðið niður um
helming.
trufflumayones
50 g gunnars mayones og 5 g af truffluolíu hrært
saman.
Að lokum eru tvær tegundir af hnetum (fer eft-
ir smekk hvaða hnetur eru notaðar hverju sinni)
hakkaðar saman og þeim stráð yfir túnfiskinn og
rétturinn borinn fram með ristuðu brauði.
á asíska vísu
Hafþór Sveinsson lærði kokkinn á Hótel Holti á árunum 1999 til 2004 en eftir útskrift
hóf hann störf sem kokkur á Holtinu. Þaðan fór Hafþór á Sjávarkjallarann þar sem
hann starfaði sem matreiðslumaður og vaktstjóri í tvö og hálft ár en nú hafa hann og
Jóhannes Steinn Jóhannesson tekið við yfirmatreiðslumannastöðu á veitingastaðn-
um Silfri á Hótel Borg.
TÚNFISKSFORRÉTTUR
d
V
m
yn
d
st
ef
án