Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2007, Page 6
Tassadaq Saleem, jafnan kallaður
Bunty, flutti til Íslands fyrir tæpum
fjórum árum frá Pakistan. Allt frá
því hann kom til Íslands hefur hann
unnið hjá fiskverkuninni Fiskkaupum
við gömlu höfnina í Reykjavík. Hann
er nú aðstoðarverkstjóri og talar
íslensku með miklum ágætum.
„Konan mín er íslensk og þess vegna
flutti ég hingað,“ segir Bunty.
Þau hjónin kynntust á netinu og
höfðu þekkst í um eitt ár áður en þau
hittust fyrst. „Hún kom og heimsótti
mig til Pakistan og við ákváðum
fljótlega að gifta okkur.“ Hann segir
að það hafi verið mjög þægilegt fyrir
sig að koma til landsins og hann hafi
fengið góðar móttökur. „Þetta var
aldrei neitt mál,“ segir hann.
Bunty segir að veðrið hafi verið
eina áfallið sem hann fékk við að
flytja til Íslands. „Ég kem frá svæði í
Pakistan þar sem yfirleitt er hlýtt. Það
var þess vegna skrýtið fyrir mig að
takast á við íslenska vetrarveðráttu
með myrkri og snjókomu,“ segir
hann. „Ég er samt alveg orðinn vanur
veðráttunni og tek ekki lengur eftir
kuldanum.“
Saltfiskur er gott líf
Bunty líkar vel við að vinna í fiski.
Hann gengur í flest verk hjá Fisk-
kaupum sem aðstoðarverkstjóri,
grípur í lyftarann og sinnir glænýrri
flökunarvélinni jöfnum höndum.
„Ég er hérna í góðum félagsskap. Hér
er starfsfólk frá fjölmörgum löndum,
langflestir frá Póllandi.“
Hann segir Íslendinga vera já-
kvætt og gott fólk. „Þá er ég ekki að
meina bara Íslendinga, heldur fólkið
sem býr í landinu. Hérna er fjölbreytt
samfélag fólks frá mörgum lönd-
um. Það lifa flestir í sátt og samlyndi
hérna. „Þetta er gott líf.“
„Mér þykir fiskvinnslan vera mikil
ágætisvinna og það er forvitnilegt að
Íslendingar skuli ekki vinna meira
við þessi störf. Þetta er jú gamla
aðalatvinnugreinin.“
Fordómar gegn múslímum
„Ég og fjölskylda mín erum
múslímar. Það varð mér engin
hindrun þegar kom að því að kvænast
konu af öðrum trúarbrögðum,“ segir
Bunty. Hann segir að það sé alls
ekkert algilt að múslimar megi ekki
giftast út fyrir trúarbrögðin. „Sumar
fjölskyldur eru mun strangari í
viðhorfum sínum. Hins vegar er
Pakistan mjög fjölbreytt land og þar
þrífast alls konar viðhorf til lífsins og
trúarinnar.“
Bunty kveðst aldrei hafa fundið
fyrir fordómum í sinn garð vegna
þjóðernis síns. „Fordómarnir hafa
örugglega aukist í seinni tíð, enda eru
múslimar sjaldnast nefndir án þess að
umræðan tengist hryðjuverkum. Við
grínumst hins vegar bara með þetta
hérna á vinnustaðnum, og sennilega
er það besta leiðin,“ segir hann.
Fátækt í heimalandinu
Bunty er fæddur og uppalinn
í borginni Faisalabad í Pakistan.
Bunty giskar á að í Faisalabad búi
í kringum þrjár milljónir manna.
„Þetta er nokkuð stór borg í norður-
hluta landsins, ekki langt frá rótum
Himalaja-fjallgarðsins,“ segir Bunty.
Hann segir að í Pakistan séu mikl-
ar og sterkar andstæður. Svokölluð
millistétt fyrirfinnist varla heldur séu
þar fyrst og fremst tvær stórar stéttir
fólks. Önnur mjög rík og hin ákaflega
fátæk. Hann segist ekki vita hvað
valdi því að auðæfi Pakistana haldist
að mestu hjá einni stétt fólks.
„Landið er líka þannig að þar eru
svæði og staðir þar sem allt er mjög
nútímalegt og þróunin er mjög hröð.
Svo eru svæði í sveitunum þar sem
allt er nánast eins og í forneskjunni.
Þar stundar fólk landbúnað með ber-
um höndum,“ segir Bunty.
föstudagur 21. september 20076 Fréttir DV
Sandkorn
n Næturvaktin fjallar um
starfsfólk bensínstöðvar að
næturlagi og þar ræður stöðv-
arstjór-
inn Georg
Bjarnfreðs-
son ríkjum.
Þættirnir
voru nýlega
frumsýndir
á Stöð 2 við
góðar undir-
tektir og leik-
ur gamanleikarinn Jón Gnarr
stöðvarstjórann ákveðna. Þrátt
fyrir góðar viðtökur þáttanna
standa yfir deilur milli fram-
leiðanda þeirra og Gests Vals
Svanssonar
sem fullyrðir
að hann sé
hugmynda-
smiðurinn.
Hann segir
hugmyndina
hafa fæðst er
hann sjálfur
starfaði í tvö
ár á bensínstöð Esso við Brú-
arland en Ragnar Bragason
leikstjóri hafnar því alfarið að
þættirnir séu byggðir á hug-
mynd Gests.
n Ljóst er að þarna standa orð
gegn orði en forvitnir hafa
engu að síður velt því fyrir
sér hver sé
raunveru-
leg fyrir-
mynd Gests
að stöðv-
arstjóran-
um Georgi
Bjarnfreðs-
syni. Það
upplýs-
ist hér með að fyrirmynd-
in er bókasafnsfræðingurinn
Guðjón Jensson sem um ára-
bil starfaði sem stöðvarstjóri
bensínstöðvarinnar við Brú-
arland. Hann vildi ekki tjá sig
um málið er blaðamaður DV
leitaðist eftir því að öðru leyti
en því að hann vonaðist til að
vel væri farið með fyrirmyndir
þeirra persóna sem fram koma
í Næturvaktinni.
n Nokkur óánægja ríkti meðal
starfsmanna Ríkisútvarpsins
þegar Egill Helgason var ráð-
inn á háum
launum til
að sjá um
bókmenna-
og stjórn-
málaþætti.
Sú óánægja
virðist hins
vegar hafa
breyst í
óblandna gleði því RÚV-arar eru
hæst ánægðir með hvernig hef-
ur tekist til við bókmenntaþætti
Egils, Kiljuna. Það eina sem
RÚV-arar setja fyrir sig þessa
dagana er útsendingartíminn á
Kiljunni, þeim finnst skrýtið að
jafn dýr þáttur skuli ekki vera
sendur út fyrr en að ganga ellefu
á miðvikudagskvöldum.
n Meira af starfsmönnum
Ríkisútvarpsins. Talsverðar
mannabreytingar hafa orðið á
RÚV eins og lesa mátti í DV í
vikunni um
flótta frétta-
kvenna frá
stofnuninni.
Það eru þó
ekki að-
eins konur
sem hætta
störfum
þar. Nú eru
tveir kunnir karlfréttamenn
að hætta. Finnur Beck og
Páll Benediktsson eru báðir
á leið annað. Víst má telja að
einhverjir eigi eftir að sakna
þeirra tveggja, samstarfs-
menn þeirra fá þó eitt tækifæri
enn til að gleðjast með Finni
og Páli, mikið starfslokapartí
verður haldið þeim til heiðurs
í kvöld.
Alfreð Þorsteinsson byggir ekki nýtt sjúkrahús:
ENGIN VONBRIGÐI FYRIR MIG
„Þetta eru ekki beinlínis vonbrigði
fyrir mig vegna þess að ég leit alltaf á
þetta verkefni sem hugsjónavinnu,“
segir Alfreð Þorsteinsson sem Guð-
laugur Þór Þórðarson heilbrigðis-
ráðherra hefur ákveðið að skuli ekki
lengur stýra byggingu nýs sjúkrahúss
Ladspítalans.
Alfreð segir að hver og einn verði
að meta það fyrir sig hvort ákvörð-
un ráðherrans sé fremur af pólitísk-
um toga en faglegum. „Það má allt-
af búast við því þegar nýtt fólk tekur
við stjórnartaumunum að það verði
einhverjar breytingar. Guðlaugur Þór
verður sjálfur að greina frá því hvers
vegna hann gerir þetta vegna þess að
það getur ekki verið vegna þess að
nefndin hafi ekki skilað góðu starfi.
Nefndin hefur unnið mjög vel og það
er allt á áætlun,“ segir hann.
Alfreð bendir á að á bilinu
tvö til þrjú hundruð starfsmenn
Landspítalans hafi komið að
stefnumótun hins nýja sjúkrahúss
með nefndinni og það samstarf hafi
gengið mjög vel. Nefnd um byggingu
sjúkrahússins hafi einnig náð góðu
samstarfi við borgaryfirvöld hvað
varðar skipulagsmál. „Við höfum
leitt þetta starf, ég og Inga Jóna
Þórðardóttir, eiginkona forsætis-
ráðherrans. Þegar allt þetta er talið
hlýtur að vera að einhverjar aðrar
ástæður liggi að baki en að nefndin
hafi ekki skilað góðri vinnu. Ég hef
heldur ekki heyrt neina gagnrýni á
störf okkar,“ segir Alfreð.
Áætlaður heildarkostnaður við
byggingu hins nýja sjúkrahúss er talinn
geta orðið á bilinu 50 til 60 milljarðar
króna. Tæpur hálfur milljarður hefur
þegar verið lagður til verkefnisins. 1.500
milljónir renna svo í verkið á næsta ári
og um fjórir milljarðar á hverju ári þar
til framkvæmdum er lokið. Reiknað er
með að fyrsta áfanga byggingarinnar
verði lokið árið 2013.
Alfreð segir fjölmörg önnur
verkefni bíða sín en vill ekkert láta
uppi um hverju hann kann að snúa
sér að. sigtryggur@dv.is
Alfreð Þorsteinsson Heilbrigð-
isráðherra hefur ákveðið að
alfreð sjái ekki um byggingu nýs
sjúkrahúss Landspítalans.
Tassadaq Saleem, eða Bunty, eins og hann er oftast kallaður, kynntist íslenskri
eiginkonu sinni á internetinu fyrir rúmum fjórum árum. Þau giftust og hann flutti til
Íslands. Tassadaq hefur starfað í fiskvinnslu í Reykjavík í tæp fjögur ár, talar prýðilega
íslensku og er nú aðstoðarverkstjóri. Hann unir hag sínum vel og undrast að Íslendingar
sýni ekki meiri áhuga á að starfa í fiskvinnslunni.
SALTFISKUR eR GOTT LÍF
SigTryggur Ari jóhAnnSSon
blaðamaður skrifar: sigtryggur@dv.is
„Fordómarnir hafa
örugglega aukist í seinni tíð,
enda eru múslímar sjaldnast
nefndir án þess að umræðan
tengist hryðjuverkum.“
Í vinnunni bunty frá pakistan og eliza
brzostek frá póllandi eru hér við
vinnslulínuna hjá fiskkaupum. bunty
kynntist íslenskri eiginkonu sinni á
netinu og fluttist til Íslands. Hann segir
móttökurnar hafa verið góðar og
aðeins veðrið hafi verið viðbrigði.
Saltfiskurinn
bunty er
aðstoðarverk-
stjóri hjá
fiskkaupum.
Hann er hér að
huga að saltfiski
sem bíður þess
að verða fluttur
út til portúgals.