Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2007, Blaðsíða 22
Þolir ekki að tapa
róbert
wessman
NærmyNd
föstudagur 21. september 200722 Helgarblað DV
Róbert Wessman, forstjóri Acta-
vis, gaf Háskólanum í Reykjavík á
dögunum einn milljarð króna sem
hann reiddi fram í einu lagi úr
eigin vasa. DV dró af því til-
efni upp nærmynd af
manninum og komst að
raun um að nánustu
vinir hans og sam-
starfsmenn eru ein-
róma um að Róbert
sé góður drengur og
hógvær, gríðarlegur
keppnismaður sem
þolir ekki að tapa.
Hann er með ein-
dæmum skipulagð-
ur og afkastamikill
og gerir miklar kröf-
ur til sín sem og sam-
starfsfólks.
„Róbert er fyrst og
síðast trygglyndur
og góður drengur.
Það sem hann hefur
hins vegar fengið í
vöggugjöf eru góð-
ar gáfur og dugnað-
ur. Því hefur hann
spilað mjög vel úr.“
R
óbert Wessmann
gefst aldrei upp.
Hann þolir ekki
að tapa, hvort sem
það er í íþróttum,
spilum eða við-
skiptum. Hann er
með eindæmum
óþolinmóður sem vinir hans og sam-
starfsmenn segja hans eina ókost
– en jafnframt einn af hans stærstu
kostum í viðskiptaheiminum.
Róbert gerir kröfur. Hann gerir
gríðarlegar kröfur til sjálfs sín, bæði
í einkalífi og starfi, en hann gerir á
sama hátt miklar kröfur til samstarfs-
fólks síns.
Því er haldið fram um Róbert að
hann haldi aðeins einu sinni fund
um tiltekið mál. Aldrei aftur. Að fundi
loknum ætlast hann til þess að fólk
gangi í þau mál sem þeim voru fal-
in og þau séu kláruð undir eins. Þrátt
fyrir þessa miklu óþolinmæði hefur
hann gífurlegt úthald og gefst aldrei
upp. Hann setur sér markmið og
komist hann ekki beina leið að mark-
miði sínu fer hann krókaleið að hlut-
unum, en hættir ekki fyrr en honum
hefur tekist það sem hann ætlar sér.
Róbert er sagður búa yfir þeim
einstaka hæfileika að fá fólk til að
gera hluti án þess að biðja það um þá.
Það geri hann með því að smita það
af óþrjótandi áhuga sínum á þeim
verkefnum sem hann hefur tekið sér
fyrir hendur. Hann er vel liðinn af öll-
um þeim sem hann starfar með.
Hann þykir hreinn og beinn og
hikar ekki við að segja fólki það
sem hann meinar. Hann er sagð-
ur algerlega laus við hroka og gerir
aldrei mannamun. Róbert er sagð-
ur skemmtilegur, léttur í lund, með
góðan húmor og geta tekið stríðni en
þó aðeins upp að vissu marki.
Eiginkonan stoð og stytta
Róbert ólst upp í Mosfellsbæ og
lauk stúdentsprófi frá Menntaskólan-
um við Sund árið 1989. Hann kynnt-
ist konunni sinni, Sigríði Ýri Jens-
dóttur lækni, ungur og þau voru par
allt frá fyrsta ári í menntaskóla. Þau
eiga tvö börn, Helenu Ýri, á níunda
ári, og Jens Hilmar, 6 ára, sem Róbert
er mjög stoltur af og talar mikið um.
Í MS stóð hugur hans til læknis-
fræði en ekki varð úr því að hann
menntaði sig til læknis heldur inn-
ritaði hann sig í viðskiptafræði í Há-
skóla Íslands og útskrifaðist með
BS gráðu árið 1992. Sigríður Ýr lauk
hins vegar læknisfræði og stundar nú
framhaldsnám í heilsugæslulækn-
ingum.
Róbert og Ýr, eins og hún er köll-
uð, eru sögð mjög náin og samstiga.
Hún er jafnframt sögð stoð og stytta
Róberts og henni er eignaður stór
hlutur í velgengni hans í viðskiptum.
Róbert á ekki mikinn frítíma en nýt-
ir allar þær lausu stundir sem hann
fær til þess að vera með fjölskyldu
sinni. Þegar hann er á landinu eða
ekki bundinn vegna vinnu afþakkar
hann öll þau boð sem honum ber-
ast til þess að verja tíma með Ýri og
börnunum. Hann leggur sig fram við
að taka alla laugardaga frá svo hann
geti sinnt fjölskyldunni. Hann er ný-
farinn að stunda golf aftur, eftir að
hafa lagt það á hilluna í nokkur ár, en
spilar nú með börnunum sínum.
Róbert og Ýr eru heimakær og
vilja frekar eiga góða stund í heima-
húsi með vinum en að fara út á lífið.
Þau bjóða gjarnan í mat og eldar þá
Róbert ósjaldan því hann er sagður
mjög góður kokkur. Reyndar fylgir
sögunni að hann eigi nú ekki langt
að sækja það því pabbi hans, Wil-
helm Wessman, var aðstoðarhótel-
stjóri á Hótel Sögu til margra ára og
síðar hótelstjóri á Holiday Inn.
Þau eru sögð hógvær, jarðbundin
og þakklát fyrir sitt. Þrátt fyrir að hafa
efnast vel berast þau ekki mikið á en
þau leyfa sér samt sem áður að njóta
velgengninnar. Þau eiga meðal ann-
ars sveitasetur í Suður-Frakklandi
sem þau reyna að dveljast í með
börnunum nokkrar vikur á sumrin
og síðstliðin tvö á hafa þau dvalið þar
yfir jólin.
Skaraði fljótt fram úr
Að loknu námi réð Róbert sig til
Samskipa þar sem hæfileikar hans
í viðskiptum komu fljótlega í ljós.
Hann klifraði fljótt upp metorðastig-
ann, vann hjá fyrirtækinu í Þýska-
Róbert er sagður
hógvær og jarðbundinn
Hann þykir hreinn og beinn
og hikar ekki við að segja
fólki það sem hann meinar.
Hann er sagður algerlega
laus við hroka og gerir
aldrei mannamun.