Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2007, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2007, Blaðsíða 35
DV Sport föstudagur 23. september 2007 35 KR VERÐUR AÐ VINNA KR-ingar hreinlega að verða að vinna Fram- ara í Laugardalnum ef ekki á illa að fara fyrir liðinu. Þrátt fyrir að vera með eitt best mann- aða liðið á pappírunum hefur það ekki náð saman innan vallar og hefur verið við og í botnsætinu í allt sumar. KR rak Teit Þórðarson á dögunum sem margur stuðningsmaður KR sætti sig illa við. Teitur var búinn að gera marga góða hluti með félagið á bak við tjöldin en langtíma- verkefni hans, Landsbankadeildin, gekk ekki sem skyldi og því fór sem fór. Framarar mega einnig illa við ósigri á sunnudag. Liðið hefur róið lífróður nánast í allt sumar en þökk sé Jónasi Grana Garðarssyni hefur liðið fengið stig hér og þar í sumar. Allir vilja stjórna, enginn vill taka ábyrgð Ólafur Þórðarson lét hafa eftir sér snemma í sumar að hans lið kynni hreinlega ekki að skora mörk. Jónas hefur heldur betur troð- ið upp í harðjaxlinn og skorað heil 11 mörk í sumar og er markahæstur ásamt Helga Sig- urðssyni úr Val. KR vann HK í síðasta leik en er samt enn á ísköldum botninum. Lið- ið hefur þótt leika leiðinlega knattspyrnu í allt sumar og eftir að Logi fékk starfið hefur hann hent inn gömlu jálkunum í liðið þar sem áður blómstruðu ungir og bráðefnilegir KR-ingar. KR talar mikið um að eiga mikinn efnivið, en sé stigatafla annars flokks skoð- uð kemur í ljós að liðið var nálægt falli þar. Það er ekki ofsögum sagt að leikmenn í öðr- um liðum, sem áður óttuðust að taka á móti svart hvítum KR-ingum, brosi út í annað þeg- ar þeir mæta þeim. Virðingunni, sem KR var búið að skapa sér með langri og glæstri sögu, hafa leikmenn liðsins hent út um gluggann og þurfa að svara fyrir það eftir lokaleikinn, hvort sem liðið verður áfram meðal þeirra bestu eða ekki. Framarar hafa lagt ógrynni af peningum í liðið en ekki hitt á réttu blönduna. Vitur maður sagði að Fram væri skipað of mörgum mönnum sem þekktu ekki neitt annað en fallbaráttuslag. Þannig hafa þeir líka verið í í allt sumar. Enn einu sinni er liðið að ströggla þrátt fyrir að mannskapurinn sé nægilega góður til að keppa á allt öðrum stað en á botninum. Hins vegar eru draugar fortíðar yfir félaginu. Sumir vilja gera hlutina svona á meðan aðrir vilja gera hlutina hinsegin. Stundum er sagt að Fram skiptist í nokkr- ar fylkingar sem séu eins og höfuðlaus her. Enginn tekur ábyrgð en allir vilja stjórna. Arnar Grétars í banni Víkingar, með sitt góða ellefu manna byrj- unarlið, fara upp á Akranes og mæta þar ÍA. Liðið hefur tvo af betri miðvörðum landsins í liðinu, einn albesta leikmann Íslands, Sinis- ha Kekic, innan sinna raða en samt er liðið við botninn. ÍA varð Íslandsmeistari árið 2001 en fáir muna hvaða leikmenn voru í því liði aðrir en Baldur Aðalsteinsson, Grétar Rafn Steins- son og Ólafur Gunnarsson. Víkingur held- ur bráðlega upp á 100 ára afmælið og er það ekki á stefnuskrá félagsins að halda upp á það í fyrstu deild. ÍA hefur komið mörgum á óvart í sumar með gríðarlega öguðum og fáguðum leik. Aðdáendur góðs varnarleiks eru vænt- anlega ekki hrifnir af leikstíl liðsins en þar er mottóið einn fyrir alla, allir fyrir einn. Allir verjast saman og allir taka ábyrgðina. Guð- jón Þórðarson, þjálfari ÍA, veit upp á hár hvað hann ætlar með liðið og hefur náð því besta út úr mörgum leikmönnum í sumar. Þeir hafa vonarstjörnu Íslands, Björn Bergmann, sem er aðeins 16 ára en hefur heldur betur sleg- ið í gegn í sumar. Hann skorar, leggur upp og leggur sig fram í verkefni dagsins. Fjölmörg lið eru á höttunum eftir Birni en „fjölskylduráð- ið“ hefur komist að þeirri niðurstöðu að Björn fari hvergi. Það verður forvitnilegt að sjá slag hans og miðvarða Víkinga, Grétars og Milos- ar. Í Kópavogi mætast svo grannaliðin HK og Breiðablik. Blikar hafa spilað vel í sumar, yf- irleitt ofspila þeir því það kom sjaldan skot á markið frá þeim í fyrri umferðinni. Liðið spil- ar einn allra besta fótbolta hér á landi og fyr- ir utan FH er það best spilandi lið landsins. Ólafur Kristjánsson hefur komið með fersk- an blæ í liðið og breytt Blikum úr því sem var grænt og féll á hausinn í alvöru og gott fót- boltalið. HK, eins og búist var við, hefur verið við botninn í allt sumar. Liðið er byggt á hjarta sem slær fyrir HK og er ekkert að breyta þeim hugsunargangi í bráð. Gunnar Guðmunds- son, þjálfari liðsins, er einhver albesti þjálfari hér á landi og vill spila fótbolta. Árangur hans er eftirtektarverður fari svo að liðið falli ekki um deild. Það yrði mikið hrós fyrir Gunnar því ekki var búist við miklu af HK í sumar. Það er skarð fyrir skildi að einn besti leikmaður sum- arsins, Arnar Grétarsson, er í leikbanni eftir að hafa tuðað í dómara gegn FH þegar liðið var að vinna 2-1. Arnar hefur stýrt miðjuspili Blika af miklum myndarskap í allt sumar og er söknuður að honum á fótboltavellinum. Kristján að taka við ÍR? Í Árbæ taka heimamenn á móti Keflvík- ingum. Keflavík er að fara að byggja upp nýtt lið á næstu árum og spurning hvort Kristj- án Guðmundsson verður þeirra skipstjóri. Heyrst hefur að ÍR-ingar vilji fá hann til liðs- ins en Kristján er uppalinn ÍR-ingur. Frá leiknum umdeilda gegn ÍA 4. júlí hefur lið- ið aðeins krækt sér í þrjú stig og virkar and- laust. Fyrir þann leik var Keflavík í baráttu á toppnum og spilaði glimrandi skemmtileg- an fótbolta. Allt í einu mæta leikirnir þeirra afgangi varðandi pláss hjá blöðum og tíma í sjónvarpi. Fylkir er á þeim stað sem það ætl- aði sér. Þeir eru ekki nægilega góðir til að fara í stóru tvö liðin en eru nægilega góðir til að vera í baráttu um Evrópusæti. Liðið hef- ur á köflum leikið afbragðsfótbolta þar sem færi eftir færi koma en nýtingin hjá þeim er á við byrjendur í íþróttinni. Liðið hefur aðeins skorað 18 mörk á tímabilinu og þarf nauð- synlega alvöruframherja til að hefja liðið á hærra plan. Varnarleikurinn hefur verið til fyrirmyndar í sumar þar sem Fjalar Þorgeirs- son hefur oftar en ekki farið á kostum í mark- inu. Allir leikirnir hefjast á sunnudag klukkan 17. benni@dv.is Staðan í deildinni 1. fH 16 10 4 2 39:23 34 2. Valur 16 9 5 2 38:20 32 3. Ía 16 7 5 4 30:24 26 4. fylkir 16 7 4 5 18:17 25 5. breiðablik 16 5 7 4 26:17 22 6. Keflavík 16 5 5 6 23:25 20 7. HK 16 4 3 9 16:33 15 8. fram 16 3 5 8 22:28 14 9. Víkingur 16 3 5 8 14:26 14 10. Kr 16 3 5 8 15:28 14 Fjórir aðrir leikir fara fram á sunnudag í Landsbankadeild karla. KR, sem setið hefur á botninum lengst af í sumar, tekur á móti Fram í algjörum lykilleik fyrir liðið ef ekki á illa að fara. Víkingar, sem berjast einnig á botninum, fara upp á Akranes og etja kappi við ÍA. Þá er grannaslagur af bestu gerð í Kópavogi þar sem HK tekur á móti Breiðabliki. Fylkir og Keflavík mætast í Árbæ í leik þar sem hvorugt liðið hefur að nokkru að keppa. BenediKt BóAs hinRiKsson blaðamaður skrifar: benni@dv.is Fögnuðu síðast, hvað gerist nú? Kr-ingar hafa ekki fagnað í tveimur leikjum í röð í sumar. Þeir eiga erfiðan leik gegn fram á sunnudag. Blómstrað í sumar Jónas grani garðarsson hefur slegið í gegn í sumar. spennan að magnast í Kópavogi spennu- stigið verður væntanlega hátt hjá áhorfendum á Kópavogsvelli.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.