Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2007, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2007, Blaðsíða 30
föstudagur 21. september 200730 Sport DV Jose Mourinho er farinn frá Chelsea. Fréttin kom eins og þruma úr heiðskýru lofti en samt hefur þetta verið að gerjast í langan tíma. Þegar Jose Mourinho kom í ensku úrvals- deildina árið 2004 kallaði hann sjálfan sig hinn útvalda á fyrsta blaðamannafundinum. Skömmu áður hafði hann stýrt Porto til sig- urs í Meistaradeildinni. „Ég veit að það eru hæðir og lægðir í fótboltanum og einn daginn gæti verið að ég yrði rekinn,“ sagði Mourinho skömmu eftir að hann tók við. Og hann byrjaði vel hjá Chelsea. Tveir Eng- landsmeistaratitlar á fyrstu tveimur árunum sýndu að hann vissi hvað hann var að gera þótt hann hefði fengið endalaust af peningum til að kaupa þá leikmenn sem hann vildi. En allt í einu í janúar síðastliðnum var veski Romans Abramovich, eiganda Chelsea, lokað. Mourinho vildi fá leikmenn til að styrkja liðið en Roman sagði þvert nei. Eftir það fór samband þeirra félaga að verða sífellt stirðara. Chelsea vann reyndar deildarbikarinn og FA-bikarinn en féll út fyrir Liverpool í undanúrslitum Meist- aradeildarinnar í annað sinn á þremur árum. Roman vill ekkert frekar en vinna Meistara- deildina og nú þarf hann að gjöra svo vel að fá mann sem getur stýrt liðinu til sigurs í stærstu og sterkustu deild í heimi. Roman vill að liðið vinni ekki bara bikara, heldur spili einnig blússandi sóknarbolta. Mourinho spilaði sóknarbolta hjá Porto en um leið og hann settist að hjá Chelsea lét hann lið- ið leika 4-3-3 sem oftar en ekki varð að 4-5-1. Chelsea sótti með skyndisóknum, lá iðulega í skotgröfunum og sótti á fáum mönnum. Vann marga leiki 1-0. Það var nokkuð sem Roman var ekki sáttur við. Jose Mourinho stýrði Chelsea í 185 leikjum. Chelsea vann 124, gerði 40 jafntefli og tapaði aðeins 21 leik. Liðið tapaði ekki leik á Stamford Bridge undir stjórn Mourinhos, eða 60 heima- leikjum. The Sun greinir frá því að Mourinho hafi lent í heljarinnar rifrildi við John Terry, fyrir- liða liðsins. Mourinho mun hafa verið ósáttur við spilamennsku Terrys, lífsstíl hans og fram- lag til liðsins. Hann á að hafa spurt læknalið Chelsea hvort eitthvað væri að Terry og þegar fyrirliðinn frétti það varð hann svo reiður að eitt heljarinnar rifrildi varð úr. Avram Grant tekur við! Avram Grant mun stýra liði Chelsea til að byrja með. Hann fær ekki að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur því Chelsea leikur á Old Trafford á sunnudag þar sem gestgjafarnir eru engir aðrir en Manchester United. Grant hefur setið fyrir aftan Mourinho og Steve Clark á varamannabekk Chelsea í upphafi móts. Núna þarf hann að axla ábyrgð og stýra liðinu. Hans fyrsta hlutverk er að sannfæra leikmenn liðsins um að hann sé nú aðalmaðurinn hjá Chelsea. Mourinho sé farinn og hann sé núna við stjórnvölinn. Margir leikmanna Chelsea skulda Mourinho töluvert því hann hafði alltaf mikla trú á sínum leikmönnum og varði þá fram í rauðan dauðann. Grant þarf að sann- færa John Terry fyrirliða því ef Terry vill halda honum munu aðrir fylgja í hans fótspor. Grant er Ísraeli og góðvinur Romans. Hann var við hlið Harrys Redknapp hjá Portsmouth og stjórnaði liðum í Ísrael. Ferilskrá hans er ekki jafn góð og Mourinhos en hann þykir snjall í sínu fagi. En hann verður væntanlega stjóri til bráðabirgða. Didier Deschamp, Jurgen Klinsmann, Guus Hiddink, Marcello Lippi og jafnvel Luis van Gaal. Mourinho mun þó eiga fyrir salti í grautinn. Hann mun að sögn bresku pressunnar fá sem nemur um 3,2 milljörðum króna í starfsloka- samning. benni@dv.is ÁRIÐ Í HNOTSKURN 10. JANÚAR: Fréttir berast af því að Mourinho sé ósáttur við Michael Ballack. 11. JANÚAR: Fréttir berast um að Mourinho gæti farið frá Chelsea í sumar eftir að hafa verið neitað um að styrkja liðið. 13. JANÚAR: Mourinho setur Andryi Shevchenko á bekkinn gegn Wigan þvert gegn vilja Romans. Mourinho vildi aldrei fá Úkraínumanninn til liðsins. Hann kom í gegnum Roman. 15. APRÍL: Chelsea vinnur Blackburn í undanúrslitum FA- bikarsins og Roman og Mourinho sjást faðmast. 1. MAÍ: Chelsea tapar fyrir Liverpool í Meistaradeildinni. Shevchenko spilar ekki vegna meiðsla og Mourinho verður að sögn brjálaður. Hann notar ekki Shevchenko sem spilar ekki fyrr en á síðasta sunnudag gegn Black- burn. 26. JÚNÍ: Avram Grant er ráðinn til liðsins. 12. JÚLÍ: Mourinho segir Grant að skipta sér ekki af liðinu. 2. SEPTEMBER: Chelsea tapar fyrir Aston Villa þar sem Roman yfirgefur stúkuna fyrir lokaflautið. 18. SEPTEMBER: Chelsea gerir aðeins jafntefli við Rosenborg 1-1 og Mourinho segist vita af pressunni frá stjórn liðsins um að árangur verði að nást. Titlar Mourinhos sem þjálfari Deildarmeistari: 2003, 2004, 2005, 2006. Bikarmeistari: 2003, 2007. Deildarbikarmeistari: 2005, 2007. Meistari meistaranna: 2003, 2005. Evrópumeistari (Meistaradeild Evrópu): 2004. Evrópumeistari félagsliða (UEFA-bikarkeppnin): 2003. Eyðsla Mourinhos 2007 Juliano Belletti, Barcelona 517 milljónir króna Florent Malouda Lyon 1565 milljónir króna Tal Ben Haim Bolton Frítt Claudio Pizarro Bayern Munich frítt Steve Sidwell Reading Frítt 2006 Ashley Cole Arsenal 624 milljónir króna Khalid Boulahrouz Hamburg 1245 milljónir króna John Mikel Obi Lyn 1885 milljónir króna Ben Sahar Hapoel Tev Aviv 5 milljónir króna Andrei Shevchenko AC Milan 4233 milljónir króna Salomon Kalou Feyenoord 1254 milljónir króna Michael Ballack Bayern Munich Frítt 2005 Michael Essien Lyon 3120 milljónir króna Shaun Wright-Phillips Manchester City 2776 milljónir króna Lassana Diarra Le Havre 126 milljónir króna Scott Sinclair Bristol Rovers 21 milljónir króna Asier Del Horno Athletic Bilbao 1056 milljónir króna Jiri Jarosik CSKA Moscow 638 milljónir króna Ricardo Carvalho Porto 2168 milljónir króna Didier Drogba Marseille 3172 milljónir króna Tiago Benfica 1057 milljónir króna Mateja Kezman PSV Eindhoven 616 milljónir króna Paulo Ferreira Porto 1742 milljónir króna Arjen Robben PSV Eindhoven 1612 milljónir króna Samtals 29.432 milljónir króna Nýju stjórarnir avram grant og steve Clark munu sjá um Chelsea-liðið. Búið spil Jose mourinho hefur nú yfirgefið Chelsea.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.