Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2007, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2007, Blaðsíða 8
föstudagur 21. september 20078 Fréttir DV Fjórir og hálfur mánuður er liðinn frá því hin fjögurra ára Madeleine McCann hvarf í Portúgal. Þar hafði hún verið í sumarleyfi ásamt fjöl- skyldu sinni, foreldrum og yngri systkinum. Kvöldið sem hún hvarf sátu foreldrar hennar á veitingastað skammt frá, en börnin ku hafa verið sofandi í íbúð foreldranna. Að sögn þeirra litu þau til barnanna á hálf- tíma fresti. Fljótlega eftir hvarf Mad- eleine var haft samband við lögregl- una og í gang fór viðamikil leit og enn viðameira fjölmiðlafár sem ekki enn sér fyrir endann á. DV hefur hingað til haldið sig til hlés í umfjöll- un um hvarf Madeleine McCann, ekki síst vegna þess að „fréttir“ af því einkenndust af upphrópun- um, órökstuddum fullyrðingum og vangaveltum, sem voru sem olía á eld fyrir bloggara sem töldu sig vita það sem enginn veit; hver gerði það. Og í fjölmiðlafárinu miðju grillti í sundurlyndi lögreglunnar í Portú- gal og á Bretlandi. Í þessari hring- iðu urðu foreldrarnir, Kate og Gerry McCann, miðpunktur athyglinnar. Madeleine McCann varð aukaatriði. Pressan og netheimar tóku að sér hlutverk dómara og böðuls. Dagblöð í Bretlandi virðast nú um stundir vera farin að gera sér grein fyrir afleiðingum umfjöllunar sinn- ar sem oft og tíðum var afsprengi kröfu almennings um fréttir allan sólarhringinn alla daga vikunnar. Ekki er langt síðan Tony Blair, fyrr- verandi forsætisráðherra Bretlands, líkti fjölmiðlum við „úlfahóp“ og nú hefur þessum „úlfum“ bæst liðsauki sem birtist í umsögn almennings á spjallþráðum netsins. Almannatengsl Í upphafi rannsóknarinnar gátu McCann-hjónin að einhverju leyti haft áhrif á fréttaflutning vegna hvarfsins. Það var ekki síst því að þakka að ferðaskrifstofan sem þau skiptu við var með samning við al- mannatengslafyrirtækið Bell Pott- inger og strax daginn eftir hvarf Madeleine var Alex Woolfall, starfs- maður þess, mættur á svæðið. Hann tók að sér hlutverk fjölmiðlafulltrúa fyrir McCann-hjónin og þegar hann hvarf af vettvangi tíu dögum síð- ar tók breska utanríkisráðuneytið við kyndlinum og til Portúgal komu tveir reyndir fréttamenn, Sher- ee Dodd, sem hafði verið hjá Daily Mirror, og fyrrverandi BBC-maður, Clarence Mitchell. Síðla júnímánaðar hurfu þau á braut og veiðitímabilið hófst hjá portúgölskum fjölmiðlum. Almenn- ingur í Portúgal bar þá von í brjósti að sökudólgarnir væru breskir og fjölmiðlar beindu athygli sinni að foreldrunum því upplýsingar sem lekið var í fjölmiðla um rannsókn lögreglunnar voru misvísandi og jafnvel ábyrgðarlausar. Gnægtarborð fjölmiðla Samkvæmt portúgölskum lög- um eru allir sem koma að málinu bundnir þagnarskyldu, það eru lög- reglan, lögfræðingar, McCann-hjón- in og næstum allir sem hafa borið vitni. Engu að síður hafa fjölmiðlar boðið upp á hlaðborð smáatriða um rannsóknina og málið í heild. Í opin- berum yfirlýsingum af hálfu portú- gölsku lögreglunnar hefur sjaldan borið nýtt á góma og því er hægt að velta fyrir sér í hvaða gnægtar- brunn fjölmiðlar hafa sótt veislu- föngin. Ættingjar og vinir hjónanna hafa ekki látið sitt eftir liggja og sér- staklega hefur Philomena McCann, systir föðurins, verið áberandi í fjölmiðlum, ekki síst fyrir gagnrýni hennar á rannsókn lögreglunnar í Portúgal. Og reyndar hefur lögregl- an í Bretlandi tekið undir gagnrýn- ina og portúgalska lögreglan hefur viðurkennt að margt hafi misfarist í rannsókninni, sérstaklega á fyrstu stigum hennar. Stóðu í sviðsljósinu McCann-hjónin eru komin heim til Englands og hafa réttarstöðu grunaðra. Almenningsálitið virðist ekki vera þeim hliðhollt og engin takmörk virðast vera fyrir því hvað talið er þeim til lasts. Í sumu tilliti má horfa til þeirra sjálfra með hvern- ig komið er fyrir þeim í fjölmiðlum. Strax í upphafi máls var umfjöllun um þau stjórnað á þann máta sem hæfði kvikmynda- eða tónlistar- stjörnum. Andlit Kate McCann birt- ist oftar á síðum dagblaða en andlit dóttur hennar. Til að bæta um bet- ur fóru foreldrar Madeleine í Evr- ópuferð til að vekja athygli á hvarfi dóttur sinnar og óhjákvæmilegt var að þau fengju meiri athygli en mál- efnið sem þau stóðu fyrir. Mál þeirra er án efa mál aldarinnar og fjölmiðl- ar gerðu sér snemma grein fyrir gildi þess. Sem dæmi má nefna að þegar foreldrarnir fengu réttarstöðu grun- aðra kallaði AP-fréttastofan í Banda- ríkjunum fréttamann sinn af vett- vangi þar sem utanríkisráðherrar Evrópusambandsins funduðu, svo þeir gætu skrifað um þróun mála á lögreglustöðinni í Portimao. Sú frétt var ein mest lesna frétt á netfrétta- miðlum vestanhafs þann dag. Dómstóll netheima Þrátt fyrir að fjölmiðlar í bæði Portúgal og Bretlandi séu nú í mörgum tilfellum farnir að sjá villu síns vegar, er ekki hægt að segja það sama um almenning. Þess er skemmst að minnast þegar ung- ur Íslendingur sætti rógburði og ásökunum í netheimum Íslands. Þar kvað svo rammt að, að honum var hótað lífláti og limlestingum og var svo komið fyrir honum að hann þorði varla út fyrir hússins dyr. Allt var það vegna atburðar sem aldrei hafði átt sér stað, eins og síðar var ljóst. Öll kurl þar að lútandi eru ekki enn komin til grafar. Eftirfarandi eru örfá dæmi um ástandið í netheimum vegna hvarfs Madeleine og óhætt er að fullyrða að dómstóll netheima lætur ekki að sér hæða. FORELDRARNIR MIÐPUNKTUR MÁLSINS Madeleine McCann sem hvarf fyrir fjórum og hálfum mánuði í Portúgal, fær sífellt minni umfjöllun í fjölmiðlum. Allra augu hafa undanfarið beinst að foreldrum stúlkunnar og óhætt er að segja að sitt sýnist hverjum. Aðstæður þeirra einkennast að sumu leyti af kröfu almennings um nýjar fréttir og vilja fjölmiðla til að verða við þeirri kröfu. Atburðarás í máli Madeleine McCann 3. maí – Hin þriggja ára gamla madeleine mcCann hverfur úr íbúð fjölskyldu sinnar í praia da Luz í portúgal 5. maí – Á meðan leit stendur yfir gefa foreldrarnir út yfirlýsingu þar sem þau segja frá ólýsanlegum ótta sínum og örvæntingu 12. maí – afmælisdagur madeleine 15. maí – grunsemdir um aðild roberts murat vakna. Hann er af bresku bergi brotinn og lögreglan rannsakar heimili móður hans þar sem hann býr. Heimilið er skammt frá íbúð mcCann-hjónanna 26. maí – Lögreglan í portúgal gefur út lýsingu á manni sem sást „halda á barni eða einhverju sem líktist barni“ kvöldið sem madeleine hvarf 30. maí – mcCann-hjónin hitta páfann í róm í upphafi evrópuferðar til að vekja athygli á hvarfi madeleine 6. júní – Á blaðamannafundi í berlín eru foreldrar madeleine spurðir af einum þýskum blaðamanni hvað þeim finnist um að sífellt fleiri virðist benda á þau í málinu 12. júní – Hjónin koma aftur til portúgal í lok evrópuferðar sinnar 17. júní – Olegario sousa, yfirmaður rannsóknarlögreglunnar viðurkennir að mikilvæg sönnunargögn gætu hafa eyðilagst á fyrstu klukkustund- unum eftir hvarf madeleine 10. júlí – robert murat er tekinn til yfirheyrslu á ný Síðla í júlí – flogið er með breska lögregluhunda til portúgal. Þeir eru notaðir við rannsókn á íbúð mcCann- hjónanna og nokkrum bifreiðum, þar á meðal bifreið sem hjónin tóku á leigu tuttugu og fimm dögum eftir hvarf dóttur þeirra 6. ágúst – engin ný sönnunargögn finnast við endurtekna leit á heimili roberts murat 7. ágúst – sýni sem fundust með hjálp hundanna í íbúð mcCann- hjónanna eru rannsökuð í birming- ham á englandi 11. ágúst – Lögregluyfirvöld í portúgal viðurkenna í fyrsta skipti í ljósi nýrra vísbendinga að madeleine sé hugsanlega dáin. Olegario sousa segir foreldra hennar ekki grunaða um aðild að hvarfinu, eins og portúgalskt dagblað hafði haldið fram 12. ágúst – Lögreglan segist hafa efasemdir um með hvaða hætti hvarf madeleine bar að 31. ágúst – mcCann-hjónin fara í mál við portúgalsaka dagblaðið tal & Qual sem hélt því fram að „lögreglan grunaði“ þau um að hafa myrt dóttur sína. Hjónin segjast afar sár vegna ásakananna 6. september – Lögreglan í portúgal yfirheyrir Kate mcCann, móður madeleine, í ellefu klukku- stundir í nærveru lögfræðings hennar. Hún hafði stöðu vitnis. Lögreglan gefur einnig út að hún hafi undir höndum hluta niður- staðna úr þeim rannsóknum sem gerðar voru á bretlandi 7. september – móðir madeleine er opinberlega grunuð um aðild að hvarfinu og eiginmaður hennar, gerry mcCann, fær einnig stöðu grunaðs eftir að hafa verið yfirheyrður. Orðrómur kviknar þess efnis að lögreglan hafi fundið leifar af blóði madeleine í bifreið sem hjónin tóku á leigu tuttugu og fimm dögum eftir hvarf hennar 9. september – mcCann-hjónin snúa heim til bretlands 10. september – saksóknari í algar- ve í portúgal fær afhent gögn lögreglu vegna rannsóknar á hvarfi madeleine. Í Leicester-skíri á englandi funda bresk lögregluyfir- völd um málið 11. september – gerry mcCann bloggar á netinu og segir að þau hjónin horfist í augu við „óhugsan- legar“ aðstæður. portúgalska lögreglan dregur úr fréttum þess efnis að erfðaefni sem samsvari erfðaefni madeleine hafi fundist í bílaleigubíl mcCann-hjónanna. saksóknari upplýsir að hann hafi undir höndum rannsóknargögn vegna málsins og hafi ákveðið að senda þau til dómara til ákvörðunar- töku Kolbeinn þorSteinSSon blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is Kate og Gerry McCann foreldrar madeleine hafa réttarstöðu grunaðra. Madeleine McCann foreldrarnir settu í gang mikla herferð vegna hvarfs hennar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.