Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2007, Blaðsíða 28
Þóra Arnórsdóttir
hefur unnið á
hinum ýmsu
sviðum fjölmiðlunar
frá árinu 1998.
„Áhugasvið mitt
hefur alltaf verið
mjög vítt. Þegar
ég var í menntaskóla var ég á
tveimur brautum, nýmála- og
náttúrufræðibraut því ég hreinlega
gat ekki valið þarna á milli. Eftir
menntaskólann ákvað ég að taka
áhugasviðspróf og niðurstaðan varð
sú að ég átti að vinna í útvarpi,“ segir
Þóra sem þó tók BA próf í heimspeki
áður en hún fetaði fjölmiðlabrautina.
„Á háskólaárunum skrifaði ég fyrir
Stúdentablaðið og Alþýðublaðið
og var það mín fyrsta reynsla af
fjölmiðlum.“ Vorið 1997 fór Þóra
ásamt góðum hópi til að fylgjast
með kosningabaráttunni í Bretlandi.
„Þetta voru sögulegar kosningar og ég
ásamt fjórum öðrum fylgdist með og
við vorum með pistla um gang mála
í morgunútvarpi Rásar 2. Stuttu eftir
þetta fékk ég svo símtal þar sem mér
var boðið starf á Dægurmálaútvarpi
Rásar 2, þeim hlýtur að hafa litist
svona vel á pistlana mína,“ segir Þóra
hlæjandi.
Af góðum lærimeisturum
Þóra ber það með sér að vera
metnaðarfull og greind kona. Hún
var ekki nema tuttugu og þriggja ára
þegar atvinnutilboðið úr Efstaleitinu
barst. „Eftir nokkur próf og nokkur
viðtöl var ég ráðin. Leifur Hauksson
var þá ritstjóri Dægurmálaútvarpsins
og auk hans voru þarna Lísa Páls og
Ævar Örn Jósepsson. Ég var lang-
yngst. Á þessum árum var Þorgerður
Katrín Gunnarsdóttir, mennta-
málaráðherra, yfirmaður samfélags -
og dægurmáladeildar útvarpsins. Það
var ómetanleg reynsla að vinna með
þessu fólki, þessum reynsluboltum.
Það er líka algjört grundvallaratriði
þegar fólk byrjar í fjölmiðlun að
hafa góða lærimeistara. Með góðum
lærimeistara er mun líklegra að þú
náir langt. En auðvitað er auk þess
nauðsynlegt að hafa ýmislegt annað
til brunns að bera eins og áhuga á
þjóðmálum og stjórnmálum,“ segir
Þóra sem var á Dægurmálaútvarpinu
í þrjú og hálft ár, augljóslega sællar
minningar.
Í einum virtasta háskóla heims
Áhugasviðsprófið gaf Þóru
vísbendingu um það að útvarpið
ætti vel við hana. Strax tuttugu
og sex ára gömul hafði hún þegar
öðlast þá starfsreynslu. Þá var
kominn tími til að öðlast frekari
reynslu á öðru sviði en af því að
spjalla við Þóru kemur fljótlega í
ljós að það er henni mikilvægt að
safna sem mestu í reynslubankann.
„Mig langaði í framhaldsnám og ég
hugsaði með mér að það væri ágætt
að hafa enn meiri reynslu að baki
áður en í það verkefni væri ráðist.
Ég tók fréttamannaprófið og gekk
afskaplega vel. Þegar ég hóf svo nám
mitt í Johns Hopkins-háskólanum
í Washington og Bologna kom ég
heim á sumrin og vann á fréttastofu
Sjónvarps,“ segir Þóra sem kláraði
mastersgráðu í alþjóðastjórnmálum
og þróunarhagfræði í einum virt-
asta háskóla heims. „Ég hugsaði
með mér að úr því ég ætlaði í fram-
haldsnám væri eins gott að gera
það almennilega og fara bara í besta
skólann,“ segir Þóra ákveðin.
Þurfti að standa á sínu
Yngst í systkinaröðinni segir Þóra
það tvímælalaust hafa haft áhrif á
hana. „Ég á fjóra eldri bræður og
verandi yngst og eina stelpan komst
ég ekki upp með neitt múður. Ég
þurfti bara að standa á mínu. Bræður
mínir eru allir mjög metnaðarfullir og
hafa alltaf verið. Ég fékk oft að heyra
það í grunnskóla, þá var gjarnan
sagt við mig „já, ertu systir þeirra.
Þeir fá alltaf tíu“. Ég ákvað að fara
í Menntaskólann við Hamrahlíð í
stað þess að fara í Menntaskólann í
Kópavogi þar sem þeir voru, til þess
að losna undan þessari kvöð,“ segir
Þóra kímin en hún hefur eflaust ekki
gefið bræðum sínum neitt eftir í námi.
Foreldrar hafa eflaust ýtt undir metnað
barna sinna. Pabbi Þóru er Arnór
Hannibalsson heimspekiprófessor.
Mamma Þóru er Nína Sveinsdóttir en
föstudagur 21. september 200728 Helgarblað DV
Þ
DV-MYND ÁSGEIR