Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2007, Page 10
föstudagur 21. september 200710 Helgarblað DV
Nærri tugur faNga strokið á áriNu
frægustu flóttar úr HegNiNgarHúsiNu
Nokkrir fangar sem afplánuðu dóm í
Hegningarhúsinu á 6. áratug síðustu
aldar náðu að ginna fangavörð og
struku úr fangelsinu. Á þessum tíma
var aðeins einn vörður sem sinnti
gæslu hverju sinni. Fangarnir plötuðu
vakthafandi vörð til þess að máta handjárn og náðu að
járna hann við fastan hlut í herberginu. Eftirleikurinn var
föngunum auðveldur sem komust út úr fangelsinu og lögðu
á flótta. Fangarnir náðust allir aftur. Guðmundur Gíslason,
forstöðumaður Hegningarhússins, þekkir
umrætt tilvik og hefur heyrt af því sögur. Hann
man eftir fleiri ævintýralegum tilvikum við
flótta úr fangelsinu og segir sum þeirra hafa
verið skipulögð fyrirfram. „Ævintýralegustu
tilvikin ná langt aftur. Á milli fangavarða gengur
iðulega sú flökkusaga er nokkrir fangar plötuðu vörð til
að máta handjárn og náðu að járna hann við fastan hlut.
Að því loknu nýttu þeir tækifærið og komust út úr húsinu,“
segir Guðmundur.
Fangavörður handjárnaður
Einir 6 fangar, sem afplánuðu dóm í Hegningarhúsinu, skipu-
lögðu flótta sinn vandlega. Þeir komust yfir tól til að saga fang-
elsisrimla og vönduðu hvert skref flóttans. Á meðan einn fang-
anna afvegaleiddi fangavörð beittu hinir sér fyrir því að saga
í sundur rimla sem voru fyrir þakglugga fangelsins. Það tókst
föngunum á endanum og náðu þeir allir að strjúka. Fangels-
isyfirvöld þurftu því að leita 6 fanga að þessu sinni og náðust
þeir einn af öðrum eftir flóttann. Guðmundur segir augljóst að
fangarnir hafi unnið að flóttanum um nokkurt skeið því hann
gekk furðuvel fyrir sig.
Út um þakgluggann
„Það er ekkert fangelsi það ramm-
gert að fangar hafi ekki nokkurn
tímann eða muni ekki nokkurn tím-
ann strjúka úr því,“ segir Erlendur
Baldursson, deildarstjóri hjá Fang-
elsismálastofnun.
Níu fangar hafa strokið úr lok-
uðu fangelsi á árinu, úr vistun utan
fangelsis eða frá flutningsmönnum
fanga. Frá því að Fangelsismála-
stofnun hóf skráningu stroka og
stroktilrauna árið 1986 hafa nærri
hundrað fangar strokið úr lokuðu
fangelsi. Síðustu tvo áratugi hafa
aðeins sex ár liðið án þess að fangar
hafi strokið.
Stroktilraunum úr fangelsum
hefur aftur á móti snarfækkað frá
upphafi síðasta áratugs síðustu
aldar. Metfjöldi stroka úr lokuðu
fangelsi var árið 1991 er 20 fangar
struku eða gerðu tilraun til þess. Í
kjölfar þess var gert verulegt átak í
öryggismálum fangelsa til að hindra
flótta og tölfræðin sýnir þann góða
árangur sem náðst hefur. Það hefur
aldrei gerst í Íslandssögunni að
fangi hafi náð að strjúka án þess að
vera handsamaður á nýjan leik.
Erfitt að reikna
fjölda matargesta
Aðspurður segir Erlendur
mikilvægt að gera greinarmun á því
hvort um strok úr lokuðu fangelsi
sé að ræða eða flótta utan fangelsis.
„Strokin voru mun algengari hér
áður fyrr. Þá var gjarnan gert grín
að því að kokkurinn á Litla-Hrauni
vissi aldrei hversu margir yrðu í mat
um kvöldið. Í dag er þetta komið
niður í nánast ekki neitt, í kringum
ekkert til tvö strok á ári. Það kemur
hins vegar oftar fyrir að menn láti sig
hverfa á öðrum vígstöðvum,“ segir Erlendur. Guðmundur Gíslason,
forstöðumaður Hegningarhússins
við Skólavörðustíg, tekur í sama
streng. Hann segir erfiðast að
eiga við fangaflótta í flutningum.
„Tölurnar sýna að við erum í
góðum málum og sem betur
fer er þetta orðið ansi sjaldgæft.
Í umræðunni er mikilvægt að
aðskilja strok úr lokuðu fangelsi
og strok úr fangaflutningi. Það er
algengast að menn stökkvi í burtu
þegar þeir fara til tannlæknis eða
eitthvað slíkt og við það er erfitt að
eiga,“ segir Guðmundur.
Húsin ekki mannheld
Erlendur segir flutninga milli
fangelsa vera afar viðkvæma.
Hann segir ávallt hættu á stroki
þegar fangar eru færðir milli staða.
„Viðkvæmasti punkturinn er þegar
verið er að flytja menn frá fangelsi
til annarra staða, til dæmis læknis
eða tannlæknis. Þá hafa menn
látið sig hverfa út um glugga eða
af klósettinu. Á hverju ári eru
mjög margir fangaflutningar og
þá er alltaf hætta á stroki,“ segir
Erlendur.
Aðspurður telur Guðmundur
töluvert hafa unnist í öryggismálum
fangelsa síðasta áratug. Hann segir
umhverfi fangelsanna ekki lengur
bjóða upp á auðveldan flótta. „Eftir
tíðar flóttatilraunir um nokkurt
skeið var gert mikið átak í flótta-
og öryggismálum fangelsanna. Þá
hafði þeim málum lítið verið sinnt
og margar leiðindauppákomur áttu
sér stað. Húsin voru varla lengur
mannheld. Eftir átakið er umhverfið
allt annað og ekki lengur þannig
umhverfis að fangar séu hvattir
til flótta. Starf fangavarða er orðið
mun þægilegra eftir að dregið hefur
úr sífelldum ótta um að fangarnir
hlaupi í burtu,“ segir Guðmundur.
Engum orðið meint af
Guðmundur fagnar bættu
umhverfi fangavarða sem áður hafi
starfað í sífelldum ótta við flótta
fanga. Hann telur mikilvægt að
gæta þess að fara ekki of langt í þá
veru að gera fangelsin ómannleg.
„Áður þurftu fangaverðir sífellt að
vera skíthræddir um strok fanganna
og það truflaði eðlilegt starf með
föngunum. Það var í raun og veru
ótækt og sem betur fer hefur verið
vel tekið á þessu. Hins vegar þurfum
við líka að passa að gera fangelsin
ekki ómannleg þannig að jaðri
Verulega hefur dregið úr að fangar
strjúki eftir að ráðist var í átak í öryggis-
málum fangelsa í lok síðustu aldar. Áður
kom það fyrir að yfir tugur fanga strauk
úr lokuðu fangelsi árlega. 1991 var al-
gjört metár en þá flýðu 20 fangar úr fang-
elsi. Erlendur Baldursson, deildarstjóri
hjá Fangelsismálastofnun, segir ekkert
fangelsi geta komið í veg fyrir flótta.
TrausTi HafsTEinsson
blaðamaður skrifar: trausti@dv.is
Erlendur Baldursson deildarstjóri hjá fangelsismálstofnun segir að flestar
flóttatilraunir séu gerðar við flutninga fanga til og frá fangelsum. Hann segir
ástæður þess að fangar strjúki oftast lítilvægar.
Guðmundur Gíslason forstöðumað-
ur Hegningarhússins við skólavörðustíg
fagnar þeim árangri sem náðst hefur í
öryggismálum fangelsa. Hann man eftir
skrautlegum flóttatilraunum úr
fangelsinu.
„Tölurnar sýna að við
erum í góðum mál-
um og sem betur fer
er þetta orðið ansi
sjaldgæft.“
Strok og
Stroktilraunir
úr lokuðum
fangelSum
1986-2007
1986
12
faNgar
1987
6
faNgar
1988
8
faNgar
1989
5
faNgar
1990
10
faNgar
1991
20
faNgar
Strok úr viStun
utan fangelSa
2004-2007
2004
1
faNgi
2005
3
faNgar
2006
3
faNgar
2007
4
faNgar
SamtalS: 11 fangar
Erfitt að strjúka eftir verulegt átak í
öryggismálum hefur föngum sem
strjúka úr fangelsum snarfækkað. Í ár
hafa þrír fangar strokið úr lokuðu
fangelsi og nærri tugur reynt flótta.