Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2007, Side 13
DV Helgarblað föstudagur 21. september 2007 13
Einn höfuðpauranna í fíkniefna-
málinu sem kom upp í gær heitir
Einar Jökull Einarsson og er fæddur
árið 1980. Hann tengist svokallaðri
Vogaklíku en frægastur í henni er
væntanlega Annþór Karlsson, sem
varð alræmdur sem handrukkari
fyrir fáeinum árum þegar DV fjallaði
um hann.
Einar Jökull er þekktur úr und-
irheimum fyrir hvort tveggja fíkni-
efnaviðskipti og handrukkanir.
Hann mun, samkvæmt heimildum
DV, hafa gengið í skrokk á Einari Ág-
úst Víðissyni tónlistarmanni á sín-
um tíma.
Samkvæmt heimildum DV leigði
Einar íbúð á Kársnesbraut 105 en
hefur ekki verið búsettur þar lengi.
Fyrir viku fékk Einar sent ábyrgð-
arbréf frá Austur-Evrópu. Heim-
ildir DV herma að ómerkt skúta
hafi komið til Fáskrúðsfjarðar fyrir
tveimur árum. Austfirðingum sem
DV hafði samband við virðist sem
lítið eftirlit hafi verið með skútuferð-
um og ferðir þeirra um svæðið verið
talsvert algengar. Skútan hafði legið
óhreyfð í höfninni í nokkra mánuði.
Fyrir nokkrum vikum fór skútan úr
höfn og kom ekki aftur fyrr en í gær-
morgun.
Blandað amfetamín
Stærsta fíkniefnamál Íslandssög-
unnar er í uppsiglingu í kjölfar fund-
ar lögreglu á tugum kílóa af fíkniefn-
um í gærmorgun. Talið er að efnið
sem lögreglan lagði hald á sé bland-
að amfetamín. Tveir Íslendingar
sem voru um borð í skútunni voru
handteknir þegar hún kom að landi.
Að minnsta kosti einn til viðbótar
var handtekinn á bryggjunni en sá
hefur líklega beðið eftir skútunni. Þá
voru tveir handteknir í Danmörku
og einn í Noregi. Rannsóknin teygir
einnig anga sína til Færeyja. Lögregl-
an á höfuðborgarsvæðinu, lögreglan
á Eskifirði, sérsveit Ríkislögreglu-
stjóraembættisins, Tollgæslan og
Landhelgisgæslan komu að aðgerð-
inni í gær. Gerð var húsleit víða á
höfuðborgarsvæðinu í kjölfar fund-
arins.
Ægir Kristinsson, hafnarvörð-
ur á Fáskrúðsfirði, segir að skútan
hafi verið ómerkt. Hann segist ekki
kannast við að skútan hafi komið til
hafnar í Fáskrúðsfirði áður. Talið er
að um erlenda leiguskútu frá Skand-
inavíu eða Eystrasaltsríkjunum sé
að ræða. Samkvæmt upplýsingum
frá Europol var um að ræða 50 til 60
kíló af efnum. Miðað við það gæti
verðmæti fíkniefnanna verið yfir 200
milljónir króna eftir að þau eru kom-
in í almenna sölu.
Langur aðdragandi
Það var um fimmleytið í gær-
morgun sem skútan kom að landi
við höfnina á Fáskrúðsfirði. Varðskip
Landhelgisgæslunnar kom klukkan
7.30 að landi og var skútan umsvifa-
laust færð að hlið skipsins. Ómerkt-
ir lögreglubílar sáust á vettvangi og
strax þótti ljóst að eitthvað stórt væri
í uppsiglingu. Aðgerðir lögreglu á
bryggjunni stóðu fram yfir hádegi í
gær og voru fleiri aðilar handteknir
vegna málsins sem á sér margra
mánaða aðdraganda. Tæknideild
lögreglunnar fór til Fáskrúðsfjarðar
í gærmorgun þar sem hún vigtaði
efnin og greindi þau.
Lykillinn er samvinna
Lögreglan boðaði til blaða-
mannafundar í gærmorgun og sagði
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á
höfuðborgarsvæðinu, að lögreglu-
lið frá mörgum Evrópulöndum hefði
tekið þátt í aðgerðunum. Fíkniefna-
deild lögreglustjórans á höfuðborg-
arsvæðinu hefur stýrt rannsókninni
sem staðið hefur yfir í marga mán-
uði. Deildin hefur haft náið samstarf
við Europol í gegnum Arnar Jens-
son, alþjóðafulltrúa ríkislögreglu-
stjóra hjá Europol. Skipulagsbreyt-
ing átti sér stað hjá lögreglunni um
síðustu áramót en þá hóf Arnar störf
hjá Europol sem hefur aðsetur í
Haag í Hollandi.
Að sögn Haraldar Jóhannes-
sen ríkislögreglustjóra hafa þess-
ar skipulagsbreytingar skilað sér og
er fíkniefnafundurinn til marks um
það. Á fundinum í gær sagði hann
að íslensk lögregluyfirvöld gætu ekki
unnið sína vinnu með sómasam-
legum hætti nema með þátttöku er-
lendra löggæslustofnana. Haraldur
sagði að samvinna hefði verið höfð
við Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra sem hefði haft vitneskju um
málið í töluverðan tíma. Björn sagði
við DV í gær að þegar kemur að sam-
hæfingu margra aðila á starfssviði
ráðuneytisins fylgdist hann með
henni. Hann fylgist ekki með því
hvernig að aðgerðunum sjálfum eða
rannsókn mála er staðið.
Vart við bílaumferð
Guðjón Guðjónsson býr á Fá-
skrúðsfirði og um það leyti sem
hann var að fara í vinnu var varð-
skip Landhelgisgæslunnar að koma
til hafnar. „Ég sá það þegar ég var
að fara til vinnu klukkan hálf átta
að varðskipið var að koma inn. Ég
spurði einmitt konuna hvort þeir
gætu mögulega verið að fara í frí aft-
ur. Þeir leggja oft skipinu þarna áður
en þeir fara í frí. Mér fannst vera svo
stutt síðan þeir voru í fríi að það gat
varla verið,“ segir Guðjón.
Guðjón segir að hann hafi orðið
var við óvanalega mikla bílaumferð
í fyrrinótt, nóttina áður en lagt var
hald á efnin. „Þetta er lítið og rólegt
sjávarpláss og vanalega er ekki mik-
il umferð í bænum, sérstaklega ekki
á næturna. Ég hélt að það væri að
koma inn bátur með einhvern fiski-
afla en ég gerði mér alls ekki í hugar-
lund að þetta væri í vændum. Ann-
ars er ég bara mjög ánægður með að
lögreglunni hafi tekist að gera þessi
efni upptæk.“
Stóra fíkniefnamálið
Á síðustu tíu árum hafa mörg stór
fíkniefnamál komið upp á Íslandi. Í
byrjun september árið 1999 kom
upp umfangsmesta fíkniefnamál Ís-
landssögunnar til þessa en það er
þekkt undir nafninu Stóra fíkniefna-
málið. Upphafið af því var haldlagn-
ing á sex þúsund e-töflum, tuttugu
og fjórum kílóum af hassi, fjórum
kílóum af amfetamíni og einu kílói
af kókaíni. Efnin voru falin í bifreið
sem flutt var til landsins. Lögreglan
hafði haft vitneskju um innflutning-
inn í töluvert langan tíma en undir-
búningur lögreglu hafði staðið yfir
frá því í maí sama ár.
Þegar rannsókn efnahagsbrota-
deildar ríkislögreglustjóra lauk í
mars árið 2000 sátu níu menn í
gæsluvarðhaldi vegna innflutnings-
ins. Þegar yfir lauk voru tólf einstakl-
ingar kærðir til ríkissaksóknara fyrir
fíkniefnamisferli eða peningaþvætti
í tengslum við málið. Ákært var fyrir
innflutning á 160 kílóum af kanna-
bisefnum frá Danmörku og 40 kíló-
um af amfetamíni, auk annarra efna.
Söluverðmætið nam hundruðum
milljóna króna. einar@dv.is
Stærsta fíkniefnamál Íslandssögunnar er í uppsiglingu. Lögreglan lagði í gær hald á 50 til 60 kíló af blönd-
uðu amfetamíni sem komu til Íslands með skútu í gærmorgun. Talið er að höfuðpaurinn sé Einar Jökull
Einarsson, 27 ára Kópavogsbúi. Markaðsvirði fíkniefnanna er talið vera yfir 200 milljónir króna í almennri
sölu. Guðjón Guðjónsson, íbúi á Fáskrúðsfirði, varð var við óvanalega mikla bílaumferð nóttina áður en
efnin fundust.
50–60 KÍLÓ AF AMFETAMÍNI
Skútan Hér má sjá skútuna sem innihélt fíkniefnin og skip Landhelgisgæslunnar sem aðstoðaði við aðgerðir.
Einn smyglaranna
Lögreglan flutti þá sem hún
handtók á fáskrúðsfirði til
reykjavíkur í gær. Hér hylur einn
smyglaranna andlit sitt fyrir framan
lögreglustöðina í reykjavík.