Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2007, Síða 15
„Í hvert sinn sem ég lít í spegil og
horfi á örin í andliti mínu rifjast upp
fyrir mér hryllingurinn,“ segir Eva
Jaoko.
Jón Pétursson nauðgaði henni
hrottalega síðasta sumar. Hann
var dæmdur í fimm ára fangelsi í
Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir brot
sín og Hæstiréttur staðfesti dóminn
yfir honum í apríl. Eftir að hann
var dæmdur í fangelsi á síðasta
ári nauðgaði hann annarri konu.
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi
hann í fimm ára fangelsi fyrir þá
nauðgun í júní í sumar.
Þegar síðari nauðgunin átti sér
stað hafði Jón áfrýjað fyrra málinu til
Hæstaréttar og beið dóms. Þrátt fyrir
að hann hafi kæft Evu með kodda og
nauðgað henni í þrígang fékk hann
að ganga laus með fyrrgreindum
afleiðingum.
„Ég bað lögregluna að halda þessu
skrímsli í fangelsi en þeir sögðust
ekki geta það vegna íslenskra laga,“
segir Eva sem er enn mjög reið út í
kvalara sinn sem hún talar aðeins
um sem skrímsli.
Hún segir íslensk lög hafa
brugðist sér. Sjálf er hún uppalin í
Austurríki. Hún segir að ef Jón hefði
verið fundinn sekur fyrir sömu glæpi
þar og hann hefur verið dæmdur
fyrir hér hefði hann fengið 20 ára
fangelsi.
Í dómsorði segir að Jón Pétursson
eigi sér enga málsvörn. Hann hélt
Evu fanginni í íbúð sinni í þrettán
klukkustundir. Á þeim tíma lamdi
hann hana til óbóta, nauðgaði henni
í þrígang og kæfði hana með kodda.
Sjálf telur Eva sig heppna að hafa
sloppið frá honum lifandi.
Það var ekki fyrr en henni tókst að
senda vini sínum smáskilaboð um
að henni væri haldið í gíslingu að
lögreglan kom á vettvang. Evu tókst
að gera vart við sig með því að veifa
í örvæntingu út um gluggann. Að
sögn lögreglumanna var aðkoman
hryllileg. Blóð var uppi um alla veggi
og á gólfinu í íbúðinni.
„Ég vil ekki horfa á örin sem
hann veitti mér og endurupplifa
hryllinginn,“ segir Eva sem vill losna
við örin. Hún er reið yfirvöldum og
vill sjá þyngri dóma yfir mönnum
sem brjóta svo illa af sér. Henni þykir
það óviðunandi að slíkur maður fái
að ganga laus eftir örfá ár eftir það
sem hann gerði henni og seinna
fórnarlambi sínu. Þá var hann einnig
dæmdur fyrir hrikalega líkamsárás
þegar hann réðst á erlenda konu,
sem var að sinna vinnu sinni, í
heimahúsi.
„Tárin mín eru búin, allt sem ég
á eftir er reiðin,“ segir Eva að lokum
sem getur vart hugsað sér að þessi
maður skuli einhvern tímann ganga
laus á ný.
DV Helgarblað föstudagur 21. september 2007 15
Skýrsla um meðferð nauðgunarmála:
Tvær af þremur nauðgunarkærum felldar niður
Var haldið í gíslingu í þrettán tíma og nauðgað þrisvar:
„Lögin brugðust,“ segir fórnarlamb nauðgara
„Tárin mín
eru búin,
allt sem ég
á eftir er
reiðin.“
Eva Jaoko Henni var haldið í gíslingu
í þrettán tíma, nauðgað þrívegis og
misþyrmt á hrottafenginn hátt.
NAUÐGUNARDÓMAR AÐ ÞYNGJAST
sér við því að ganga í gegnum
yfirheyrslur og treysti ekki á að þær
fái réttláta meðferð í réttarkerfinu.
Þungur dómur
Þorbjörg Sigríður
Gunnlaugsdóttir lögfræðingur
segir flesta sammála um að
nauðgunardómar séu of vægir.
Hún hefur kynnt sér nauðganir
sérstaklega út frá sjónarhóli
kvennaréttar. Hins vegar sé ljóst
að skoða þurfi dómana í samhengi
við það sem hefur verið að gerast.
„Ef þú skoðar dóminn út frá öðrum
dómum í nauðgunarmálum er
þetta nokkuð þungur dómur,“ segir
Þorbjörg um þriggja og hálfs árs
dóm yfir nauðgaranum Americo
Luis Da Silva Conçalves sem
staðfestur var í Hæstarétti í síðustu
viku. Þess má geta að að þyngsti
nauðgunardómur sem hefur
fallið er fimm ára dómur yfir Jóni
Péturssyni. Þorbjörg bendir þó á
að ef þessir dómar eru skoðaðir út
frá þeirri staðreynd að heimild er til
að dæma nauðgara í 16 ára fangelsi
séu þeir heldur vægir. Þetta fari því
allt eftir samhenginu. „Dómarnir
hafa þó verið að þyngjast að
undanförnu,“ segir hún.
Lagaleg nauðgun
Samkvæmt núgildandi laga-
ákvæði um nauðganir segir: „Hver
sem með ofbeldi eða hótunum
um ofbeldi þröngvar manni til
holdlegs samræðis eða annarra
kynferðismaka skal sæta fangelsi
ekki skemur en eitt ár og allt að
16 árum. Til ofbeldis telst svipting
sjálfræðis með innilokun, lyfjum
eða öðrum sambærilegum hætti.“
Atli Gíslason, þingmaður
Vinstrihreyfingarinnar – græns fram-
boðs og hæstaréttarlögmaður, hefur
beitt sér fyrir endurskilgreiningu á
þessu ákvæði. Hann heldur því fram
að nauðgunin sjálf sé ofbeldi og
því þurfi ekki annars konar ofbeldi
að koma einnig við sögu til að um
lagalega skilgreinda nauðgun sé að
ræða.
Guðrún sér einnig ýmsa vankanta á
skilgreiningunni. „Upplifun konunnar
er málinu nánast óviðkomandi.“
Anna Guðný bendir á að ein
vænlegasta leiðin til að þyngja dómana
sé að hækka refsilágmark laganna.
Þar sem það er ekki á valdi dómstóla
að þyngja dómana þarf að koma til
lagafrumvarp þess efnis. Þannig væri
búið að binda lágmarksdóma fyrir
nauðganir í lög.
Þungur dómur Þorbjörg sigríður
gunnlaugsdóttir bendir á að dómar yfir
nauðgurum hafa verið að þyngjast.