Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2007, Page 18
Hvað hefur komið fyrir heil-brigðisráðherrann, Guðlaug Þór Þórðarson? Hvernig
getur gengið að í stól ráðherra sitji
maður sem veit ekki
hvað hann er
að gera? Hvað
gerist næst?
Geir H. Haarde
ber ábyrgð-
ina. Það er
víst einhver vilji
í samfélaginu til
að byggja nýtt sjúkrahús, vilji til að
byggja hátæknisjúkrahús. Og ef á
að láta verkin tala er eins gott að
það geri okkar færustu og dugleg-
ustu menn. Minna dugar ekki. Þess
vegna þarf þjóðin á Alfreð Þor-
steinssyni að halda. Það verður að
stoppa ráðherrann, ráðherrann
sem hefur sett Alfreð af.
Hvers vegna heldur núver-andi heilbrigðisráðherra að Alfreð hafi verið falið að
byggja nýjan hátæknispítala? Held-
ur ráðherrann að
aðrir geti gert það
sem Alfreð getur?
Ó, nei ráðherra
góður, ó, nei.
Vonandi er ekki
ráðherra í ríkis-
stjórn sem trúir ill-
um tungum, tungum
sem segja að ekki hafi verið faglega
að verki verið þegar Alfreð var falið
að byggja spítalann. Sumir segja að
Framsóknarflokkurinn hafi fundið
fyrir hann fínasta djobb og skrif-
stofu í penthási við Snorrabraut,
bara til að rýma til fyrir Björn Inga
Hrafnsson. Vondar tungur segja
að svo mikið hafi legið á að fá Birni
Inga forystu flokksins í Reykjavík að
Framsóknarmenn hafi verið tilbúnir
að gera hvað sem var. Illur tungur
segja að það hafi verið með þeim
rökum sem Alfreð fékkst úr gullstóli
Orkuveitunnar, hann fékk penthás-
ið og ritarana, hann fékk teikningar
af spítala og hann fékk glás af pen-
ingum. Og Björn Ingi fékk borgina,
sem hann þráði svo mjög. Þetta er
sko ekki rétt, bara alls ekki. Alfreð er
maður framkvæmdanna, þess vegna
á hann að byggja spítalann, en aðrir
ekki. Hann sem byggði þetta fína
hús fyrir Orkuveituna, hann sem var
reiðubúinn að byggja fínt hús fyrir
spítalann. Vanur maður hann, Al-
freð. Okkar maður hann Alfreð. Allt
var svo bjart og allt var svo öruggt.
Ekkert var að. Þá kemur þessi Guð-
laugur Þór og ræðst á friðinn og ger-
ir allt vitlaust. Aumingja Alfreð.
Framsókn verður að gera eitt-hvað. Bingi skuldar Alfreð. Alferð vék úr hásæti Fram-
sóknar, gegn gjaldi, ef rétt er skil-
ið, og það verður að borga lausn-
argjaldið. Alfreð verður að þora
rukka, hann verður að rukka, ekki
bara sín vegna, heldur okkar allra.
Ef á að byggja há-
tæknisjúkrahús þá
verður Alferð að
gera það. Ekki
vegna Fram-
sóknar, ekki
vegna Binga, ekki
vegna forystusæt-
is í Reykjavík, heldur
vegna þess að Alfreð byggir manna
mest, eða best.
föstudagur 21. september 200718 Umræða DV
Útgáfufélag: Dagblaðið-Vísir útgáfufélag ehf.
Stjórnarformaður: Hreinn loftsson
framkVæmDaStjóri: Elín ragnarsdóttir
ritStjórar:
reynir traustason og Sigurjón m. Egilsson ábm.
fulltrÚi ritStjóra: janus Sigurjónsson
fréttaStjóri: Brynjólfur Þór guðmundsson
aðStoðarritStjóri: Sigríður Dögg auðunsdóttir
auglýSingaStjóri: Valdimar Birgisson
Umbrot: dV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
dV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
aðaLnúmer 512 7000, ritstjórn 512 7010,
Áskriftarsími 512 7080, augLýsingar 512 70 40.
Alfreð er mAðurinn
Daggeisli
REYNIR TRAUSTASON RITSTjóRI SkRIfAR. Það er ófært að fyrirtæki í eigu almennings lúti óstjórn af því tagi sem lýst hefur verið
Fjáraustur RÚV
leiðari
Ríkisendurskoðun er nú með til skoðunar stóraukinn kostnað Ríkisútvarpsins ohf. sem talið er að sprengt hafi áætlanir. Sigurður Þórðarson ríkisendurskoðandi staðfesti þetta við DV í gær. Ríkisútvarpið hefur í gegn-
um tíðina haft þá skyldu að gegna menningarlegu hlutverki og
vera sameiningartákn íslensku þjóðarinnar. Hlutverk þess er
ekki að veita innihaldslausa afþreyingu heldur að standa við
bakið á þjóðlegum gildum. Þar er mikill misbrestur á.
Eftir að Ríkisútvarpinu var breytt í hlutafélag hefur eitthvað
gerst í rekstrinum sem fæstir botna í. Gríðarlegt launaskrið
hefur átt sér stað og ekkert er til sparað í dagskrárgerð og þá
sérstaklega þeirri sem snýr að dægurmálum hvers konar. Vef-
miðillinn visir.is upplýsti að útvarpsstjóri ekur um á bifreið
sem kostar 9,2 milljónir króna og er á rekstrarleigu, 200 þúsund
krónur á mánuði. Afnotagjöld 72 íslenskra fjölskyldna fara í að
greiða af bílnum. Varla er nein nauðsyn á því að útvarpsstjóri
aki um á slíkum eðalvagni og ekkert það hefur gerst í rekstr-
inum sem réttlætir að hann verðlauni sjálfan sig með þeim
hætti. Bílamál útvarpsstjóra eru einfaldlega merki um óráðsíu
og firringu í rekstri ríkisfyrirtækis. Reyndar sætir það furðu að
Páll Magnússon útvarpsstjóri skuli verða uppvís að þeim oflát-
ungshætti sem felst í því að aka langt um efni fram. Komu Páls
í Ríkisútvarpið á sínum tíma fylgdu ferskir vindar og svo var
að sjá sem tími steintrölla í fílabeinsturni væri liðinn. Útvarps-
stjórinn var á gólfinu á meðal fólksins og las fréttir sjálfur. Páll
kom úr einkageiranum og er þekktur að því að vera dugnað-
arforkur og vonir vöknuðu um að hann ætlaði að taka fársjúk-
an rekstur föstum tökum. Nú eru þær blikur á lofti að svo sé
alls ekki. Fjáraustur Ríkisútvarpsins virðist vera staðreynd og
menningarlegt hlutverk einokunarrisans víkur fyrir aumri af-
þreyingu sem einkastöðvarnar eru fullfærar um að annast.
Finnbogi Hermannsson, fyrrverandi forstöðumaður Svæðis-
útvarps Vestfjarða, upplýsti í tímaritinu Mannlífi fyrr á árinu
að síðan nýr útvarpsstjóri tók við hafi lítil virk fjármálastjórn
verið. Það er ófært að fyrirtæki í eigu almennings lúti óstjórn
af því tagi sem lýst hefur verið. Almenningur þarf nauðugur
að greiða fyrir áskrift sem aldrei var beðið um. Páll Magnús-
son verður einfaldlega að taka sér tak og koma skikki á rekstur-
inn. Hann á að losa Ríkisútvarpið og þjóðina undan kostnaðin-
um við glæsikerruna og marka stefnu félagsins og fylgja henni.
Þegar hann hefur náð viðunandi árangri er eðlilegt að stjórn
RÚV verðlauni hann og aðra starfsmenn með þeim hætti sem
rúmast innan skynsamlegrar fjármálastjórnunar. Þá er eðlilegt
að hann marki stefnu hins opinbera hlutafélags með það fyr-
ir augum að styrkja íslenska menningu en ekki útgerð á sápu-
óperum. Útvarpsstjóri verður að taka sér tak.
Dómstóll götunnar
Á að bæta laun kennara?
„já, mér finnst að það mætti hækka
launin þeirra mikið. Það er erfitt að
nefna einhverja upphæð en launin
þeirra þurfa að vera samkeppnishæf
við aðrar háskólamenntaðar stéttir til
að koma í veg fyrir flótta úr stéttinni.“
Sigríður Björnsdóttir,
78 ára eftirlaunaþegi
„já, er það ekki sjálfsagt? Það mætti
líka hækka aðrar láglaunastéttir og
bæta kjör aldraðra og öryrkja. Það er
lágmark að fólk geti lifað af þeirri
upphæð sem það fær. Því tel ég að það
eigi að bæta kjör hjá þessum stéttum.“
Kristinn Hafliðason,
85 ára eftirlaunaþegi
„já, mér finnst að þeir eigi það alveg
skilið. Ég styð kennarana heilshugar í
þeirra kjarabaráttu og launin þeirra
mættu hækka umtalsvert.“
Árni Guðjónsson,
25 ára nemi
„já, mér finnst það. mér finnst kennarar
almennt vera á of lágum launum. Ég
veit ekki alveg hversu mikil hækkunin
ætti að vera en ég held að byrjunar-
launin núna séu allt of lág.“
Berglind Eir,
15 ára nemi
sanDkorn
n Skyndilegt brotthvarf Ásdís-
ar Höllu Bragadóttur úr stóli
forstjóra BYKO hefur vakið
upp margar
spurningar.
Helsta kenn-
ingin er sú
að Jón Helgi
Jónsson
aðaleigandi
fyrirtækis-
ins hafi ein-
faldlega látið
hana fara vegna þess að fyr-
irtækið hafi látið undan síga í
baráttunni við samkeppnisfyr-
irtækin á byggingavörumark-
aðnum. Önnur kenning er sú
að Ásdís Halla eigi að taka við
stjórnartaumum í Símanum
en Brynjólfur Bjarnason fari
á eftirlaun. En það er þó talið
ólíklegt þar sem Brynjólfur sé
alls ekki á förum og sitji örugg-
ur á forstjórastóli í skjóli vinar
síns, Lýðs Guðmundssonar,
stjórnarformanns Símans.
n Ólafur Ragnar Grímsson,
forseti Íslands, er með skemmti-
legri mönnum þegar sá gállinn
er á honum. Í vikunni hélt hann
tölu á ráðstefnu um endur-
vinnanlega orku á Hótel Nord-
ica. Þar nefndi hann áhuga
fjölmiðla á sér og embættinu
en nýverið skrapp forsetinn til
Skotlands með einkaþotu til að
vera við vígslu umhverfisvænsta
húss heims. Forsetinn upplýsti
í ræðu sinni að hann hefði í
tvígang brotið lög á umhverfis-
vænum bíl sínum þegar hann
stóðst ekki hraðamörk. Salurinn
tók andköf úr hlátri en fátítt er
að þjóðhöfðingi viðurkenni lög-
brot og það fleiri en eitt.
n Söngvarinn og tónsmiðurinn
Bubbi Morthens er á útopnu
þessa dagana við undirbún-
ing á þætti sínum Bandið hans
Bubba sem sýndur verður á
Stöð 2. Kappinn mun fara um
allt land til að leita að hæfi-
leikafólki og jafnvel birtast
heima í stofu þess. Bubbi og
umboðsmaður hans voru
reyndar í Danmörku í vikunni
og vaknaði grunur um að hann
væri að vinna að dönsku plöt-
unni sem lengi hefur staðið til
að gera. En það mun þó ekki
alveg vera raunin því Bubbi
var að heimsækja son sinn
sem er í íþróttaskóla í Álaborg
en einnig að rækta tengslin við
Dani í tónlistarbransanum.
ATHUGASEMD
n Í tilkynningu frá Ríkisendur-
skoðun hafnar stofnunin því
að verið sé að skoða launa-
skrið eða vaxandi kostnað við
dagskrárgerð RÚV líkt og DV
greindi frá í gær. Það stang-
ast á við staðfestingu Sigurðar
Þórðarsson ríkisendurskoð-
enda við blaðamann um að
ákveðnir gjaldaliðir stofnunar-
innar væru hærri en áætlanir
gerðu ráð fyrir og að leitast hafi
verið skýringa á því hjá stjórn-
endum. Það ber að ítreka að
Sigurður lagði á það áherslu að
niðurstaða lægi ekki fyrir.