Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2007, Síða 25
HIN HLIÐIN
vona það besta en
býst við hinu versta
bjarni Lárus haLL, söngvari jeff Who?
n Nafn og kyn?
„Bjarni Lárus Hall, karlkyn.“
n Atvinna?
„Starfsmanna- og markaðsstjóri.“
n Hjúskaparstaða?
„Í sambúð.“
n Fjöldi barna?
„Núll.“
n Áttu gæludýr?
„Nei, ég á engin gæludýr.“
n Ef þú værir bíll, hvaða bíltegund vildirðu þá vera og
hvers vegna?
„Ég myndi vilja vera Sítróen, af því að þeir eru gulir.“
n Hefurðu komist í kast við lögin?
„Já, var einu sinni handtekinn fyrir að pissa utan í
kirkju í Portúgal. Ég vissi reyndar ekki að þetta væri
kirkja, ekki að það réttlæti gjörðir mínar. Lögreglan
keyrði með mig eitthvað út í buskann og henti mér svo
bara út. Frekar gróf meðferð finnst mér.“
n Borðarðu þorramat?
„Já, en ekki hrútspunga.“
n Hefurðu farið í megrun?
„Nei.“
n Græturðu yfir minningargreinum um ókunnuga?
„Já, ég hef staðið mig að því að tárast yfir
minningargrein um ókunnuga og er því hættur að lesa
þær, ég fletti bara yfir þær.“
n Hefurðu tekið þátt í skipulögðum mótmælum?
„Nei, ég held ekki.“
n Lestu blogg?
„Já, ég geri það stundum.“
n Trúirðu á framhaldslíf?
„Ég vona það besta en býst við hinu versta.“
n Er líf á öðrum hnöttum?
„Já, er það ekki, er ekki hroki að halda öðru fram?“
n Kanntu dónabrandara?
„Ég kann ekkert nema dónabrandara.“
n Kanntu þjóðsönginn?
„Nei, ég kann hann ekki.“
n Kanntu trúarjátninguna?
„Já, ég kann hana í hópi.“
n Spilarðu á hljóðfæri?
„Já, ég spila á trommur, bassa, gítar og hljómborð en
ég myndi aldrei spila fyrir framan neinn nema á gítar.“
n Styðurðu ríkisstjórnina?
„Já.“
n Hvað er mikilvægast í lífinu?
„Þeir sem þú elskar.“
n Hvaða fræga einstakling myndirðu helst vilja hitta og af
hverju?
„Ég myndi helst vilja hitta Jeff Lynne, söngvarann í E.
L.O., til að monta mig af rarity E. L. O.-jakkanum sem ég
keypti á ebay, en aðeins 15 stykki voru framleidd fyrir
hljómsveitina. Ég er viss um að hann er búin að týna
sínum.“
n Hefurðu eytt peningum í vitleysu – þá hvaða?
„Allt sem ég eyði í dags daglega er bölvuð vitleysa.“
n Heldurðu með einhverju íþróttafélagi?
„Víkingi og Manchester United.“
n Hefurðu ort ljóð?
„Nei, en ég hef samið texta.“
n Eru fatafellur að þínu mati listamenn?
„Nei, ég held að þær séu það nú ekki. Ég held að það
skipti ekki öllu máli hvernig þær fari úr fötunum. Á
endanum snýst þetta um nektina.“
n Eru bridsspilarar að þínu mati íþróttamenn?
„Nei, þeir eru sko ekki íþróttamenn og ekki skákmenn
heldur.“
n Af hverju stafar mannkyninu mest hætta?
„Af mengun mannsins.“
n Á að leyfa önnur vímuefni en áfengi?
„Já, fyrst áfengi er leyft á annað borð fyndist mér það í
lagi. Ég sé heldur ekki fyrir mér hasshausa niðri í bæ
að lemja mann og annan.“
n Stundarðu íþróttir?
„Ég spila fótbolta með Berserskjum, í þriðju deild.“
n Hefurðu látið spá fyrir þér?
„Já, ég hef látið spá fyrir mér, og með fullri virðingu
fyrir þeim sem það gerði var þetta tóm vitleysa og
þvæla.“
NÚ GETUR
ÞÚ LESIÐ DV
Á DV.IS DV er aðgengilegt á dv.is og kostar netáskriftin 1.490 kr. á mánuði
DV Helgarblað FöSTudAGur 23. SEpTEmBEr 2007 25
Smurþjónusta
fyrir allar gerðir bíla
Eigum olíusíur í flestar gerðir bíla
Komdu með bílinn til okkar!
Frábær verð og góð þjónusta!
Alltaf heitt á könnunni!
Líttu við hjá okkur
og fáðu faglega ráðgjöf
Bjóðum
barna-
og
fullorðinsgleraugu
frá kr. 17.900
(glerstyrkur – 6 + 4 cyl 2)
DV mynd Ásgeir