Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2007, Blaðsíða 33
FÖSTUDAGUR 14. SepTembeR 2007DV Sport 33
Derby verður engin fyrirstaða fyrir Arsenal-menn
sem ætla sér að sanna að það er líf eftir Thierry
Henry. Derby-menn verða enn að snúast á
Emirates-vellinum 20 mínútum eftir að dómarinn
flautar leikinn af. Kemur jafnvel til greina að einn
leikmaður Arsenal skori fjögur mörk. Auðveldur 1
á Lengjunni.
Reading hefur ekkert gengið á leiktíðinni og þrátt
fyrir hetjulega baráttu verður engin breyting á því
þessa helgina. Wigan-menn vinna útisigur með
óvæntu marki frá Titus Bramble sem skorar rétt
fyrir leikslok. 2 á Lengjunni.
Rafa Benitez hringlar enn í Liverpool-liðinu og
Steven Gerrard verður ekki einu sinni í hópnum.
Hann mun verða mikið gagnrýndur eftir leikinn
þar sem Birmingham nær í óvænt stig. Sam
Allardyce mun glotta í kampinn. 1–1 þar sem
Babel skorar fyrsta fyrir Liverpool en þá dettur
liðið of aftarlega og Mikael Forsell jafnar á 83.
mínútu. X á Lengjunni.
Grannaslagur og spurning hvort það verði
uppselt á River Side? Boro-liðið fær einhvern
minnsta stuðning í deildinni þrátt fyirr oft góða
leikmenn en einhvern veginn er liðið svo
óspennandi í augum heimamanna að þeir nenna
ekki á völlinn. Rólegt 1–1 jafntefli þar sem rauðu
spjöldin undir lok leiksins koma mönnum í opna
skjöldu. X á Lengjunni.
Manchester City mun ekki eiga í vandræðum með
Fulham á laugardag og vinnur sannfærandi sigur.
Eftir að liðið gat byrjað að skora á heimavelli eru
því allir vegir færir þótt það endi í sjötta sæti í ár.
Fulham er alls ekki gott á útivöllum og tapar með
þremur mörkum. 4–1 fyrir heimamenn. 1 á
Lengjunni.
Newcastle kemur til leiksins eins og sært ljón eftir
háðulega útreið síðastliðinn mánudag þar sem
liðið tapaði fyrir Derby. Þar skömmuðust nokkrir
leikmenn sín enda ekki búist við mörgum sigrum
Hrútanna í vetur. Newcastle, með heimavöllinn
sinn á bak við sig, yfirspilar West Ham og vinnur
sannfærandi 3–0 sigur. 1 á Lengjunni.
Everton-menn eru hræddir fyrir þennan slag.
Aston Villa náði ekki að fylgja eftir góðum sigri
liðsins á Chelsea um síðustu helgi og kemur með
blóð á tönnunum. Þeir eru góðir í upphafi móts og
sérstaklega á heimavelli. Everton er að berjast um
sæti í UEFA-bikarnum að ári en verður að kyssa
þessi stig bless, bless. 1 á Lengjunni.
Botnliðin kljást. Tottenham hefur spilað ágætlega
í sínum leikjum en ekki fengið þau úrslit sem liðið
vildi. Bolton-menn eru einhvern veginn dæmdir til
að vera við botninn með Sammy Lee við
stjórnvölinn, hann er góður þjálfari en ekki
framkvæmdastjóri. Tottenham hefur þetta en
fæðingin verður löng og erfið. 0–1 þar sem Darren
Bent kemur Tottenham, Martin Jol og
stuðningmsönnunum til bjargar. 2 á Lengjunni.
Portsmouth er búið að spila við alla fjóra risana í
deildinni og loksins sjá þeir fram á bjartari tíð.
Harry Redknapp, stjóri Portsmouth, er eldri en
tvævetur í bransanum og veit hvernig á að vinna
baráttuglaða Blackburn-menn. Menn Marks
Hughes berjast þó til síðasta blóðdropa eins og
þeirra er von og vísa. Það dugir þó ekki í þetta
sinn. 1–2 fyrir Hermann Hreiðarsson og félaga. 2
á Lengjunni.
Stærsti leikur helgarinnar fer fram á Old Trafford
á sunnudag þar sem risarnir mætast. Chelsea
hefur haft gott tak á Man. Utd á undanförnum
árum í deildinni og aðeins sigrað Chelsea þrisvar
sinnum í síðustu tíu deildarleikjum. Án Drogbas
og Lampards vanntar allt malt í Chelsea-menn og
United fer með sigur af hólmi 2–0. 1 á Lengjunni.
Síðustu fimm viðureignir
Arsenal 1–0 Derby
Derby 0–2 Arsenal
Derby 1–2 Arsenal
Arsenal 0–0 Derby
Arsenal 2–1 Derby
1. Arsenal 5 4 1 0 10:4 13
2. man. City 6 4 0 2 5:2 12
3. Liverpool 5 3 2 0 11:2 11
4. man. United 6 3 2 1 4:2 11
5. Chelsea 6 3 2 1 7:6 11
6. West Ham 5 3 1 1 8:3 10
7. everton 6 3 1 2 8:6 10
8. blackburn 5 2 3 0 5:3 9
9. Wigan 6 2 2 2 7:5 8
10. Newcastle 5 2 2 1 6:4 8
11. Aston Villa 5 2 1 2 5:4 7
12. middlesbrough 6 2 1 3 7:9 7
13. birmingham 6 2 1 3 7:9 7
14. Sunderland 6 2 1 3 5:9 7
15. portsmouth 6 1 3 2 7:8 6
16. Fulham 6 1 2 3 9:11 5
17. Tottenham 6 1 1 4 9:11 4
18. Reading 6 1 1 4 3:10 4
19. Derby 6 1 1 4 4:15 4
20. bolton 6 1 0 5 7:11 3
Markahæstu leikmenn:
Nicolas Anelka bolton 4
Frank Lampard Chelsea 3
Fernando Torres Liverpool 3
Cesc Fabregas Arsenal 3
emmanuel Adebayor Arsenal 3
Clint Dempsey Fulham 3
Antoine Sibierski Wigan Athletic 3
England – úrvalsdeild
1. Watford 5 4 0 1 9:7 12
2. bristol City 5 3 2 0 9:4 11
3. Coventry 5 3 1 1 8:6 10
4. W.b.A. 5 3 0 2 9:3 9
5. Stoke 5 2 2 1 6:5 8
6. blackpool 5 2 2 1 7:6 8
7. Charlton 5 2 2 1 8:7 8
8. Sheff.Utd. 5 2 1 2 8:7 7
9. Cardiff 5 2 1 2 6:5 7
10. Scunthorpe 5 2 1 2 7:7 7
11. Norwich 5 2 1 2 5:5 7
12. Wolves 5 2 1 2 7:7 7
13. burnley 4 2 1 1 7:7 7
14. barnsley 5 2 1 2 8:10 7
15. Ipswich 5 2 1 2 6:8 7
16. Leicester 5 1 3 1 7:5 6
17. Colchester 5 1 3 1 11:9 6
18. plymouth 5 1 3 1 8:8 6
19. Southampton 5 2 0 3 10:11 6
20. Hull 5 1 2 2 7:8 5
21. C.palace 5 1 1 3 6:6 4
22. preston 5 1 1 3 2:7 4
23. Q.p.R. 4 0 2 2 3:8 2
24. Sheff. Wed. 5 0 0 5 4:12 0
Markahæstu leikmenn:
James beattie Sheff Utd 6
Darius Henderson Watford 5
Andy Reid Charlton 4
Grzegorz Rasiak Southampton 4
Sylvan ebanks-blake plymouth 4
Kevin phillips W.b.A. 4
brian Howard barnsley 4
Alan Lee Ipswich 4
Enska 1. deildin
1. L. Orient 6 5 1 0 9:3 16
2. Tranmere 6 4 1 1 9:4 13
3. Hartlepool 6 3 1 2 10:7 10
4. Carlisle 6 3 1 2 6:4 10
5. Yeovil 6 3 1 2 5:4 10
6. brighton 6 3 0 3 9:8 9
7. Southend 6 3 0 3 9:9 9
8. bristol R. 6 2 3 1 7:8 9
9. Huddersfield 6 3 0 3 6:8 9
10. Crewe 6 2 2 2 6:7 8
11. Swansea 5 2 1 2 7:6 7
12. Swindon 6 1 4 1 6:6 7
13. Cheltenham 5 2 1 2 5:5 7
14. Doncaster 6 2 1 3 6:7 7
15. Nott. Forest 5 1 3 1 5:4 6
16. Northampton 6 1 3 2 8:8 6
17. Luton 6 2 0 4 8:9 6
18. Gillingham 6 2 0 4 4:10 6
19. bournemouth 6 1 2 3 3:5 5
20. Walsall 6 1 2 3 5:8 5
21 port Vale 6 1 2 3 2:6 5
22 millwall 6 1 1 4 3:8 4
23 Leeds 6 6 0 0 14:3 3
24 Oldham 5 1 0 4 3:8 3
Markahæstu leikmenn:
Jermaine beckford Leeds 5
Tresor Kandol Leeds 5
Jason Scotland Swansea 4
Adam boyd Leyton Orient 4
Enska 2. deildin
Kenny Miller
Tryggði Derby sigur í sínum
fyrsta leik á mánudaginn
gegn Newcastle. Kom til
liðsins frá Celtic og mun
styrkja liðið mikið. Þekkir
botnbaráttuna úr enska
boltanum frá því hann var
með Úlfunum.
Mario Melchiot
Nautsterkur bakvörður sem
leynir á sér tæknilega séð.
Kemur úr Ajax-skólanum þar
sem hann lærði sína
fótamennt. Þarf að axla meiri
ábyrgð nú þegar Emile Heskey
er frá vegna meiðsla.
Peter Crouch
Mikið hefur verið rætt og ritað
um framtíð Peters Crouch hjá
Liverpool. Hann fær nánast
ekkert að spila þrátt fyrir að
ferilskráin hans sé á við bestu
framherja heimsins. Sé hann
inni á vellinum eða uppi í
stúku verður forvitnilegt að
fylgjast með honum.
Paul McShane
Hefur komið þægilega á óvart
fyrir góða frammistöðu í
upphafi móts. McShane
kemur úr unglingaakademíu
Manchester United þar sem
hann náði þó ekki að spila
með aðalliðinu.
Rolando Bianchi
Ein af vonarstjörnum Ítala
eftir frábært tímabil með
Reggina. Hefur skorað 7 mörk
í 13 leikjum fyrir U-21 árs
landslið Ítala. Stór og sterkur
alhliða framherji. Virðist falla
vel að enska boltanum ólíkt
mörgum ítölskum
framherjum í gegnum tíðina.
Lee Bowyer
Snýr aftur á St. James´s Park í
Newcastle þar sem hann lék
við misjafnar undirtektir.
Frábær leikmaður þegar svo
ber undir en jafnlélegur einnig
á slæmum degi. Baráttujaxl
sem gefst ekki upp fyrr en í
fulla hnefana. Bókstaflega.
Joleon Lescott
Örið á enni Lescotts er eftir
slys í barnæsku. Hann varð þá
fyrir bíl fyrir utan skólann sinn
og þurfti í stóra og mikla
aðgerð. Um tíma var honum
vart hugað líf. Hefur leikið
frábærlega síðan hann gekk í
raðir Everton og var nýlega
valinn í enska landsliðið.
El-Hadji Diouf
Með einhverja mestu hæfileika í
fótboltaheiminum en notar þá á
furðulegan máta. Lætur sig falla
í tíma og ótíma, nokkuð sem er
ekki vinsælt hjá
stuðningsmönnum enskra liða,
hrækir á andstæðinga og er með
bolabrögð inni á vellinum. Er
samt góður leikmaður.
Christopher Samba
194 cm á hæð og tapar varla
skallabolta. Sterkur í loftinu
en er einnig góður á
boltanum. Hefur leikið við
hvern sinn fingur það sem af
er móti.
Avram Grant
Góður vinur Abramovich. Tók
við Chelsea eftir að Jose
Mourinho hvarf á braut.
Spurning hvort hann verði
ráðinn til frambúðar eða
eingöngu tímabundið.
Forvitnilegt verður að sjá
hvort breytingar verði á liðinu
eftir brotthvarf Mourinhos.
Síðustu fimm viðureignir
Reading 3–2 Wigan
Wigan 1–0 Reading
Wigan 3–1 Reading
Wigan 0–2 Reading
Reading 1–0 Wigan
Síðustu fimm viðureignir
Birmingham 0–1 Liverpool
Birmingham 0–7 Liverpool
Liverpool 1–1 Birmingham
Birmingham 2–2 Liverpool
Birmingham 2–0 Liverpool
Síðustu fimm viðureignir
Sunderland 0–3 M.brough
M.brough 0–2 Sunderland
Sunderland 1–3 M.brough
M.brough 3–0 Sunderland
Sunderland 0–1 M.brough
Síðustu fimm viðureignir
Fulham 1–3 Man. City
Man. City 3–1 Fulham
Man. City 1–2 Fulham
Fulham 2–1 Man. City
Fulham 1–1 Man. City
Síðustu fimm viðureignir
Newcastle 2–2 West Ham
West Ham 0–2 Newcastle
West Ham 2–4 Newcastle
Newcastle 0–0 West Ham
West Ham 2–2 Newcastle
Síðustu fimm viðureignir
Aston Villa 1–1 Everton
Everton 0–1 Aston Villa
Everton 4–1 Aston Villa
Aston Villa 4–0 Everton
Aston Villa 1–3 Everton
Síðustu fimm viðureignir
Tottenham 4–1 Bolton
Bolton 2–0 Tottenham
Tottenham 1–0 Bolton
Bolton 1–0 Tottenham
Bolton 3–1 Tottenham
Síðustu fimm viðureignir
Blackburn 3–0 Portsmouth
Portsmouth 3–0 Blackburn
Portsmouth 2–2 Blackburn
Blackburn 2–1 Portsmouth
Portsmouth 0–1 Blackburn
Síðustu fimm viðureignir
Chelsea 1–1 Man. Utd
Chelsea 1–0 Man. Utd
Chelsea 0–0 Man. Utd
Man. Utd 1–1 Chelsea
Chelsea 3–0 Man. Utd
SÍÐUSTU LEIKIR SPÁ DV STAÐANFYLGSTU MEÐ ÞESSUM