Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2007, Síða 34
föstudagur 23. september 200734 Sport DV
Topplið FH fær Val í heimsókn í 17. og næstsíðustu
umferð Landsbankadeildar karla á sunnudag. Tveim-
ur stigum munar á liðunum, FH hefur hlotið 34 stig en
Valur 32. Bæði lið töpuðu stigum í síðustu umferð en
það var í þriðja skiptið í sumar sem Valur gat komist
upp fyrir FH en tókst ekki. Fyrri leik liðanna í deildinni
lauk með 4-1 sigri Vals. FH vann síðan Val í undanúr-
slitum Visa-bikarsins 1-0 fyrr í sumar.
Sigri FH verður liðið Íslandsmeistari. Það er ekki
flóknara en það. Þá munar fimm stigum á liðunum þeg-
ar ein umferð er eftir. FH-ingar hafa verið á toppnum í
60 umferðir í röð sem er einstakt afrek. Sumir segja að
liðið hafi ekki spilað jafnvel í ár og undanfarin sumur
en það eru úrslitin sem telja. Liðið hefur reyndar gert
fjögur jafntefli í sumar en aðeins tapað tveimur leikj-
um. Fyrir Val og Breiðablik í síðustu umferð. Hins veg-
ar spilar ekkert lið betur en FH. Þeir reyna yfirleitt alltaf
að spila út úr vörninni og langir boltar eru fátíð sjón á
leikjum FH í sumar.
FH er vel mannað lið, trúlega með besta mann-
skapinn í deildinni og liðið virðist ná vel saman innan
vallar sem utan. Þeir hafa lent í skakkaföllum í sumar,
misst nokkra leikmenn í meiðsli en það kemur maður í
manns stað í FH. Freyr Bjarnason, einhver vanmetnasti
bakvörður landsins, meiddist fyrr í sumar en þá kom
ungur leikmaður, Hjörtur Logi Valgarðsson, í hans stað
og kom í veg fyrir að liðið saknaði Freys. Sigurvin Ólafs-
son hefur einnig átt í meiðslavandræðum í sumar. Ás-
geir Gunnar Ásgeirsson hefur leikið svo vel í sumar að
hann var verðlaunaður með landsliðssæti. Svona mætti
lengi telja. FH-ingar hafa verið ótrúlega sigursælir í
Kaplakrika undanfarin ár. Liðið tapaði þar síðast 16. júlí
í fyrra einmitt gegn Val. Liðið hefur varið heimavöllinn
vel og fá lið, ef einhver, koma með þrjú stig þaðan.
Willum naskur
Valsmenn hafa elt FH-inga í allt sumar. Liðið hefur
þrisvar sinnum klúðrað tækifæri til að komast á topp-
inn og fær fjórða tækifærið á sunnudag. Undir stjórn
Willums Þórs Þórssonar hefur Valsliðið tekið stakka-
skiptum. Það hefur umturnast úr liði sem féll annað
hvert ár í toppfótboltalið. Willum hefur verið naskur
að fá til sín leikmenn og ná því besta út úr þeim. Garð-
ar Gunnlaugsson, Ari Freyr Skúlason, Bjarni Ólafur Ei-
ríksson og síðasta dæmið var Garðar Jóhannsson. All-
ir nema Bjarni eru í atvinnumennsku en Bjarni Ólafur
kom heim á miðju sumri eftir dvöl hjá Silkeborg í Dan-
mörku.
Framlína Vals er það sem gerir liðið að því sem það
er í dag. Guðmundur Benediktsson og Helgi Sigurðs-
son ná vel saman og geta splundrað hvaða vörn sem er
á góðum degi. Þó er eins og Valur tapi stigum í hvert
sinn sem Guðmundur fær ekki boltann í lappirnar allan
leikinn frá samherjum sínum. Valur vill falla of oft í þá
gryfju að þruma boltanum upp í hornin þar sem Helgi
Sigurðsson reynir að kljást við varnarmenn andstæð-
inganna á sprettinum. Klókir varnarmenn hafa les-
ið þetta hjá Val en stundum ganga þessir löngu boltar
upp. Þá er ekki að sökum að spyrja og Helgi nýtir færin
sín betur en flestir á Íslandi.
Varnarleikur Vals er gríðarlega sterkur með miðverð-
ina Atla Svein og Barry Smith sem fremstu menn. Atli
og Barry eru yfirleitt með bestu mönnum vallarins
þótt það fari ekki mikið fyrir þeim. Hraðann sem
miðverðirnir hafa ekki bæta bakverðirnir upp.
Þar eru Birkir og Rene Carlsen. Birkir er ótrúlega
fljótur, tekur löng og stór skref og nær mótherj-
um sínum undantekningarlaust.
Það er athyglisvert að Valsmenn hafa
náð 19 stigum á útivöllum í sumar en 13 á
„heimavelli“. Liðið hefur leikið undanfar-
in ár á Laugardalsvelli þar sem stemn-
ingin hefur yfirleitt verið dauð og
ómerk. Valsmenn hafa reynt en sál-
arlaus Laugardalsvöllur býður ein-
faldlega ekki upp á að góð stemn-
ing myndist hjá félagsliði.
Markverðirnir veikasti
hlekkurinn
Hjá báðum liðum eru mark-
verðirnir veikustu hlekkirnir.
Kjartan Sturluson, markvörð-
ur Vals, er þó mun slakari en
Daði Lárusson. Kjartan er
hávaxinn og er sterkur mað-
ur á móti manni. Hins veg-
ar eru fyrirgjafir, úthlaup,
útspörk ótrúlega slök mið-
að við að hann er búinn
að vera markvörður allt
sitt líf. Ef FH spilar upp
á fyrirgjafirnar verða
Valsmenn í vandræð-
um. Útspörk Kjart-
ans eru á við skóla-
strák en taka skal
fram að hann
hefur tekið
framförum í
sumar.
Daði Lár-
usson hefur
ekki verið
jafnstöðug-
ur í sumar
og undanfar-
in ár. Hann er
sterkur alhliða
markvörður,
góður maður
á móti manni en
skortir að halda ein-
beitingu í 90 mínútur.
Á móti Breiðabliki fékk
hann sex skot á sig. Fjór-
um sinnum þurfti hann
að hirða boltann úr netinu.
Úrslitaleikurinn um Íslandsmeistaratitilinn í Landsbankadeild karla fer fram á sunnudaginn í Kaplakrika. Þá
mætast FH og Valur en aðeins munar tveimur stigum á liðunum þegar tvær umferðir eru eftir. Sigur tryggir FH
titilinn fjórða árið í röð en vinni Valur fer það langleiðina með að tryggja liðinu titilinn, þann fyrsta í 20 ár.
Kjartan
Birkir Atli Barry Rene
Bjarni ÓlafurSigurbjörnPálmiBaldur
Helgi Guðmundur
Daði
Freyr Sverrir Tommy Guðmundur
Davíð
Sigurvin Ásgeir
Matthías V.
Tryggvi Matthías G.
LÍKLEG BYRJUNARLIÐ
OG TITILLINN ER ÞEIRRA
Leikir FH og VaLs í kapLakrika
undanFarin ár
16.07.2006 fH - Valur 1-2 efsta deild
21.08.2005 fH - Valur 2-0 efsta deild
29.05.2003 fH - Valur 4-0 efsta deild
19.06.2001 fH - Valur 1-0 efsta deild
14.07.2000 fH - Valur 1-1 1. deild
14.06.1995 fH - Valur 2-3 efsta deild
04.08.1994 fH - Valur 0-1 efsta deild
04.09.1993 fH - Valur 1-1 efsta deild
Benedikt Bóas hinkrisson
blaðamaður skrifar: benni@dv.is
Markvarðahrellir
Helgi sigurðsson hefu
r farið mikinn í
Landsbankadeildinni
í sumar og skorað
ellefu mörk í sextán le
ikjum. ef hann
mætir í skotskónum í
leikinn gegn fH, á
vörn fH-inga ekki von
á góðu.
enn í höndum Fh fH-ingar geta með sigri á Val tryggt sér fjórða Íslandsmeistaratitil félagsins á jafnmörgum árum. til þess að vinna þarf tryggvi guðmundsson að eiga góðan leik.