Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2007, Síða 41
Starfsferill
Nikulás Úlfar fæddist í gömlu
timburhúsi við Hverfisgötuna 8.12.
1956. Hann lauk stúdentsprófi frá
MR 1977, stundaði nám í arkitektúr
við Portsmouth Polytecnic School of
Architecture í Englandi frá 1978, lauk
þaðan BA-prófi 1981 og Diploma-
prófi 1985.
Nikulás Úlfar starfaði á Teiknistof-
unni Teiknun sf. hjá Pálmari Ólafs-
syni og Stefáni Benediktssyni 1981-
83, starfaði með Pálmari Ólafssyni og
Einari Ingimarssyni á Teiknistofunni
Bíldshöfða 18, Reykjavík 1985-91,
var deildarstjóri Húsadeildar Árbæj-
arsafns 1991-2001 og hefur starfað á
skipulags- og byggingarsviði Reykja-
víkurborgar frá 2001.
Meðal verka Nikulásar Úlfars má
nefna íbúðir eldri borgara við Kirkju-
lund í Garðabæ, ásamt Pálmari og
Einari; Friðrikskapellu á Hlíðarenda;
Raðhús Garðhúsa í Bæjargili í Garða-
bæ; hús hjálparsveitar skáta við Mal-
arhöfða í Reykjavík og vallarhús og
áhorfendastúku fyrir Stjörnuna í
Garðabæ.
Nikulás Úlfar vann m.a. að húsa-
rannsóknum á vegum Árbæjarsafns
og hefur skrifað fjölda greina og
haldið fyrirlestra um gömul og sögu-
leg hús og húsfriðunarmál.
Nikulás Úlfar sat í stjórn knatt-
spyrnudeildar Knattspyrnufélagsins
Vals 1986-92 og var dómnefndarfull-
trúi í boðkeppni um hús SEM-sam-
takanna við Sléttuveg í Reykjavík
1989.
Fjölskylda
Kona Nikulásar Úlfars er Þorbjörg
Sóley Ingadóttir, f. 30.9. 1956, hjúkr-
unarfræðingur. Hún er dóttir Inga
Hjörleifssonar, fyrrv. starfsmanns
á Keflavíkurflugvelli, og Kristrúnar
Pétursdóttur, fyrrv. starfsmanns við
Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
Börn Nikulásar Úlfars og Sóleyjar
eru Eva Björk, f. 23.11. 1982, lækna-
nemi við Háskólann í Árósum; Þóra
Rún, f. 8.6. 1984, læknanemi við Há-
skólann í Árósum en sambýlismað-
ur hennar er Kristján Egill Karlsson;
Ingi Már, f. 5.1. 1987, nemi við Flens-
borgarskóla í Hafnarfirði; Kristrún, f.
25.10. 1990, nemi við Flensborgar-
skóla.
Alsystkini Nikulásar Úlfars: Már, f.
1.12. 1949, sálfræðingur í Reykjavík;
María Erla, f. 9.6. 1952, flugfreyja í
Reykjavík; Þorvaldur Tómas, f. 21.10.
1954, húsasmiður í Svíþjóð; Halla
Þóra, f. 27.12. 1957, bankastarfsmað-
ur á Sauðárkróki; Hafsteinn, f. 18.1.
1960, rafeindavirki og útsending-
arstjóri Stöðvar 2; Sigríður, f. 28. 2.
1973, húsmóðir í Kópavogi.
Hálfsystur Nikulásar Úlfars, sam-
feðra: Anna María, f. 19.3. 1946, skrif-
stofumaður; Ester Helga, f. 4.7. 1947,
húsmóðir.
Foreldrar Nikulásar Úlfars eru
Nikulás Már Nikulásson, f. 8.8. 1923,
fyrrv. bifreiðastjóri í Reykjavík, og
Þóra Þorvaldsdóttir, f. 18.2. 1925,
húsmóðir.
Ætt
Nikulás Már er sonur Nikulásar,
b. í Króktúni í Hvolhreppi Jónsson-
ar, b. þar Jónssonar, b. þar Jónsson-
ar, b. í Ey í Landeyjum Jónssonar.
Móðir Jóns eldra í Króktúni var Auð-
björg Einarsdóttir. Móðir Jóns yngra
í Króktúni var Hólmfríður Einars-
dóttir. Móðir Nikulásar í Króktúni var
Helga, dóttir Runólfs, sonar Nikulás-
ar, b. í Kollabæ Runólfssonar. Móðir
Helgu var Helga Stefánsdóttir.
Móðir Nikulásar Más var María
Þórðardóttir, b. í Hávarðarkoti Ólafs-
sonar. Móðir Maríu var Sigríður Páls-
dóttir.
Þóra er systir Herdísar, leikkonu
og fyrrv. formanns Lífs og lands,
móður Tinnu Þjóðleikhússstjóra og
Hrafns kvikmyndagerðarmanns.
Bróðir Þóru er Þorvaldur, arkitekt og
fyrrv. forstöðumaður borgarskipu-
lagsins og borgararkitekt. Þóra er
dóttir Þorvalds, bóksala í Hafnar-
firði Bjarnasonar, útvegsb. á Klöpp
í Grindavík Tómassonar, frá Teigi í
Fljótshlíð Guðmundssonar, útvegsb.
á Flankastöðum. Móðir Þorvalds
bóksala var Herdís Nikulásdóttir, út-
vegsb. í Nýlendu í Leirhöfn Björns-
sonar, í Vörum í Gerði Jónssonar.
Móðir Þóru var María Víðis, syst-
ir Sigríðar, konu Jóhanns Skaftasonar
sýslumanns en þau Jóhann og Sigríð-
ur voru systkinabörn frá Arnheiðar-
stöðum á Fljótsdal. Bróðir Maríu var
Jón Víðis landmælingamaður. María
var dóttir Jóns Þveræings, b. á Þverá í
Laxárdal Jónssonar, bróður Snorra á
Þverá, föður Áskels tónskálds. Annar
bróðir Jóns var Benedikt á Auðnum,
faðir Huldu skáldkonu. Jón var son-
ur Jóns, b. á Þverá Jóakimssonar, b. á
Mýlaugsstöðum Ketilssonar, b. á Sig-
urðarstöðum Tómassonar en meðal
afkomenda Ketils voru þeir bræður
Hallgrímur og Sigurður Kristinssyn-
ir, forstjórar SÍS, og Aðalbjörg, móð-
ir Jónasar Haralz bankastjóra. Móð-
ir Maríu var Halldóra Sigurðardóttir
frá Arnheiðarstöðum Guttormsson-
ar en meðal frænda Nikulásar í þeirri
ætt er Hjörleifur Guttormsson, fyrrv.
alþingismaður.
DV Ættfræði föstudagur 21. september 2007 41
Nikulás Úlfar
Másson
nýskipaður forstöðumaður
húsafriðunarnefndar
Hjálmar Vilhjálmsson
fiskifræðingur
Hjálmar fæddist á
Brekku í Mjóafirði og ólst
þar upp. Hann lauk stúd-
entsprófi frá ML 1957,
lauk prófi í forspjallsvís-
indum 1958 og BC-prófi
frá University of Glasgow
1965.
Hjálmar var fiski-
fræðingur hjá Hafrann-
sóknastofnun 1965–84,
sviðstjóri þar 1984–89,
var í rannsóknarleyfi við
Northwest Atlantic Fish-
eries Center í St. John‘s á
Nýfundnalandi í Kanada
1989-90 og hefur síðan starfað hjá
Hafrannsóknastofnun.
Eiginkona Hjálmars er Kolbrún
Sigurðardóttir, f. 2.3. 1940, deildar-
stjóri. Hún er dóttir Sigurðar Guð-
mundssonar hárskera og Kristínar
Guðmundsdóttur forstöðukonu.
Börn Hjálmars og Kolbrúnar
eru Sigurður Stefán, f. 2.4. 1961,
framkvæmdastjóri í Svíþjóð,
kvæntur Jóhönnu Erlingsdóttur
og eiga þau þrjá
syni; Kristín Anna, f.
23.9. 1962, nemi við
Viðskiptaháskólann
á Bifröst, gift Jóni Þór
Geirssyni og eiga þau
tvær dætur; Ína Björg, f.
28.11. 1963, líffræðingur,
búsett á Seltjarnarnesi,
gift Sigurði Jónssyni
og eiga þau þrjú börn;
Vilhjálmur, f. 1.2. 1967,
leikari í Reykjavík.
Systkini Hjálmars
eru Páll, f. 23.5. 1940,
sjómaður á Seyðisfirði;
Sigfús Mar, f. 28.11. 1944, bóndi
á Brekku í Mjóafirði; Stefán, f.
11.9. 1949, matvælafræðingur
á Akureyri; Anna, f. 7.3. 1954,
kennari á Selfossi.
Foreldrar Hjálmars eru Vil-
hjálmur Hjálmarsson, f. 20.9.
1914, bóndi á Brekku í Mjóafirði
og fyrrv. ráðherra og alþingismað-
ur, og k.h., Anna Margrét Þorkels-
dóttir, f. 15.2. 1914, húsfreyja.
Jón Steinar fæddist
í Reykjarvík og ólst þar
upp. Hann lauk stúdents-
prófi frá MR 1967 og emb-
ættisprófi í lögfræði frá HÍ
1973.
Jón Steinar var fulltrúi
á lögmannsstofu 1974–
1977, sjálfstætt starfandi
málaflutningsmaður
1977–2004, prófessor við
Háskólann í Reykjavík
2002 –2004 og var skipaður
hæstaréttardómari
frá 15.10. 2004. Hann
var stundakennari við
lagadeild HÍ 1975–1977, dósent
þar 1977–1978 og aðjúnkt 1979–
1981 en flutti eftir það reglulega
kennslufyrirlestra við deildina
og hefur kennt lögfræðingum
munnlegan málflutning hjá End-
urmenntunarstofnun HÍ og á nám-
skeiði fyrir verðandi málflytjendur.
Jón Steinar sat í stjórn Heimdallar
1968–69, í stjórn SUS 1969–71, var
fulltrúi stúdenta í háskólaráði HÍ
1970–72, formaður Orators 1971–
72, ritari í stjórn Lögfræðingafélags
Íslands 1974–79, sat í stjórn Lög-
mannafélags Íslands 1981–86 og
var formaður þess 1983–86, sat í
framkvæmdastjórn SÁÁ 1982–84,
sat í dómstól KSÍ frá 1983, var forseti
dómsins 1985–2004, var formaður
kjörnefnda Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík 1985–91, sat í stjórn
Bridgesambands Íslands 1986–
89 og var forseti þess 1987–89
og síðar formaður dómnefndar
sambandsins 1990–98, sat í
landskjörstjórn 1991–95, var
formaður yfirkjörstjórnar við
alþingiskosningar í Reykjavík
1995–2000, var formaður
yfirkjörstjórnar við
borgarstjórnarkosningar
í Reykjavík 1994 og sat í
yfirkjörstjórn 1998, og var
formaður nefndar sem
fjallaði um lögleiðingu
EES-reglna í landsrétt á
Íslandi 1997–98.
Rit eftir Jón Steinar:
Deilt á dómarana, 1987;
Um fordæmi og valdmörk
dómstóla, 2003; Um
málskot í einkamálum,
2005. Hann hefur auk
þess skrifað mikinn
fjölda greina í blöð og tímarit sem
og bókarkafla um stjórnmál og
lögfræðileg málefni.
Eiginkona Jóns Steinars er
Kristín Pálsdóttir, f. 14.11. 1952,
hjúkrunarfræðingur. Hún er dóttir
Páls Bergþórssonar, veðurfræðings
og fyrrv. veðurstofustjóra í Reykjavík,
og k.h., Huldu Baldursdóttur, fyrrv.
læknaritara.
Börn Jóns Steinars og Kristínar
eru Ívar Páll, f. 27.2. 1974, BA
í hagfræði og blaðamaður;
Gunnlaugur, f. 4.6. 1976, BS í
verkfræði og fjármálaráðgjafi;
Konráð, f. 12.2. 1984, laganemi;
Hulda Björg, f. 16.3. 1986, laganemi;
Hlynur, f. 30.8. 1988, nemi við MR.
Að auki á Jón Steinar dæturnar
Steinunni Fjólu, f. 30.11. 1970,
kennara; Ásdísi, f. 16.9. 1972,
mannfræðing, og Birnu Írisi, f. 14.1.
1973, tölvunarfræðing.
Foreldrar Jóns Steinars:
Gunnlaugur Ólafsson, f. 10.11.
1919, d. 3.6. 1979, leigubílstjóri, og
Ingibjörg Margrét Jónsdóttir, f. 3.6.
1923, d. 2.9. 1998, bókavörður.
Jón Steinar Gunnlaugsson
hæstaréttardómari
60
ára á
fimmtudag
70
ára á
þriðjudag
MAÐUR VIKUNNAR
Nikulás Úlfar Másson
arkitekt hefur ver-
ið skipður forstöðu-
maður húsafriðun-
arnefndar en hann
tekur við því starfi
1. október nk. Segja
má að hann taki við
nýja starfinu á spenn-
andi tímum á sviði
húsafriðunar. Mikil
umræða hefur átt sér
stað um Laugaveg-
inn, Lækjargötuna og
Lækjartorg í Reykja-
vík að undanförnu og
núverandi borgar-
stjóri og borgarstjórn-
armeirihluti hafa
sýnt hugmyndum um
varðveislu gamalla
húsa og götumynda
í Kvosinni mikinn
og vaxandi áhuga að
undanförnu.
LEIÐRÉTTING
Í grein um Kanasjónvarpið í síðasta helgarblaði DV var ranghermt
eftir Sigurði Líndal að hann og Hannes Pétursson skáld hefðu verið
kallaðir á fund Bjarna Benediktssonar forsætisráðherra. Ónefnd-
ur, málsmetandi aðili kom þeim fundi á að eigin frumkvæði. Beð-
ist er velvirðingar á þessari ónákvæmni.