Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2007, Qupperneq 52
dóri dna segir:
&
U m s j ó n : D ó r i D N A N e t f a n g : d o r i @ d v . i s
föstudagur 21. september 200752 Helgarblað DV
leikirtölvu
Cake mania - NDS
NHL 08- PC/PS2/PS3/PSP/NDS/XBOX 360/
Wii
tiger Woods 08 - PC/PS2/PS3/PSP/NDS/
XBOX 360/Wii
Heavenly sword - PS3
World in Conflict - PC
Kíktu á þessa
Í sumar olli leikurinn Manhunt 2 miklu fjaðrafoki en hann var bannaður í Bretlandi og á Írlandi vegna of-
beldis og óhugnanlegs andrúmslofts. Leikjasíðan Gamesdomain tók á dögunum saman lista yfir umdeild-
ustu leiki síðari ára.
UMDEILDIR LEIKIR
ALLTAF VINSÆLIR
Night Trap
1992: Sega CD
Leikurinn Night trap átti að hnýta saman tölvuleikjagrafík og
vídeó með ódauðlegum hætti. Hann gerist í húsi þar sem
vampírur eltast við unglinga. Leikurinn þótti hins vegar ekki
alveg nógu góður en um leið og foreldrar komu auga á hann
varð allt brjálað. Joseph Lieberman öldungadeilarþingmaður
sagði leikinn vera sjúkan, en hann misskildi gang leiksins
hrapallega um leið. Leikurinn var á endanum tekinn úr búðum.
Mortal Kombat
1992: Ýmsar leikjatölvur
Áður en mortal Kombat leit dagsins ljós var street fighter
heitasti slagsmálaleikurinn. Það breyttist hins vegar skjótt þegar
mortal Kombat lenti með tilheyrandi óhugnaði, aflimunum og
aflífunum. foreldrar og þingmenn voru brjálaðir yfir því hversu
óhugnanlegur leikurinn þótti og var hann aðalumræðuefnið á
þingfundi öldungadeildar bandaríkjanna árið 1993. Útkoma
fundarins var esrb-aldursflokkakerfið, en með því var í fyrsta
skipti hægt að takmarka leiki við aldurshópa.
Doom
1993: PC
Leikurinn doom var ótrúlega vinsæll. satanís
kar geimverur,
haglabyssur, blóð, vibbi, vítiseldar og margt f
leira. Heilu
hersingarnar risu upp gegn leiknum, foreldra
félög og trúarhóp-
ar áttu ekki til orð. seinna meir var sagt að þe
ir dylan Klebold
og eric Harris, sem frömdu morðin í Columbine-
skólanum,
hefðu verið miklir doom-menn og hafi meða
l annars notað
leikinn til þess að skipuleggja voðaverknaðin
n. Það reyndist hins
vegar ekki rétt, en leikurinn þótti samt sem á
ður vera frá helvíti.
Sim Copter
1996: PC
Jacques servin, forritari hjá tölvuleikjafyrirtækinu maxis, var orðinn heldur pirraður á bæði fyrirtækinu og leiknum sim Copter sem hann vann við. Þess vegna ákvað hann að gera nokkrar smávægilegar breytingar á tölvuleiknum, rétt áður en hann var sendur í framleiðslu. sem gerði það að verkum að á vissum dagsetningum í leiknum birtust berir svífandi menn sem föðmuðust og kysstust. Þegar fregnir bárust svo af þessu seldist leikurinn helmingi meira, en servin var rekinn.
Postal
1997: PC
postal var og er rosalegur leikur. Þar fara m
enn í hlutverk
póstburðarmanns sem er orðinn virkilega
tæpur á geði og
drepur því allt og alla. en nafn og þema lei
ksins eru dregin af
morðum sem framin voru af ósáttum póst
burðarmönnum á
áttunda og níunda áratugnum. Hins vegar
fór póstþjónusta
bandaríkjanna í mál við aðstandendur leik
sins og höfðu út úr
þeim helling af peningum. en þó tókst þei
m að gera fleiri postal-
leiki og meira að segja kvikmynd í fullri len
gd.
Grand Theft Auto: San Andreas
2004: PS2
gta: san andreas var umdeildur á mörgum sviðum. Í upphafi
mótmælti fólk því að gengjaofbeldi og annað í þeim dúr væri
fegrað í leiknum. svo mótmælti fólk því hversu mikið af fólki í
leiknum er drepið og að lokum varð fólk alveg brjálað vegna
þess að í ljós kom að hægt væri að skrifa lykilorðið Hot Coffee á
réttum stað og þannig gat maður gert do-do, sem er alveg
hræðilegt á bandarískan mælikvarða. fyrirtækið take 2 sem
dreifði leiknum lenti í miklum vandræðum og rockstar,
framleiðendur leiksins, eru rétt farnir að jafna sig eftir gífurlegar
sektir.
Bully
2006: PS2
enn einn leikurinn frá rockstar. Nú fara menn ekki í hlutverk
glæpamanns, heldur skóladrengs sem er með allt á hornum
sér. Leikurinn fékk á sig mikla gagnrýni og var sagður hvetja
til bæði eineltis og ofbeldis á skólalóðinni. Lögmaðurinn
Jack thompson í flórída náði meira að segja að fá tímabund-
ið bann á leikinn, sem var svo aflétt seinna meir. Þá urðu
margir reiðir þegar í ljós kom að aðalhetja leiksins, Jinny
Hopkins, gat kysst aðra drengi á vissum stöðum leiksins.
Resistance: Fall of Man
2006: PS3
resistance var einn af fyrstu leikjunum sem komu út á ps3. Leikurinn þykir einn af þeim betri sem komið hafa út á fyrir gripinn og var ósnertanlegur þar til þjóðkirkja breta lét í sér heyra. sony-menn höfðu notað dómkirkjuna í manchester sem einn af vígvöllum leikjarins, án þess að fá leyfi. Kirkjan krafðist þess að fá afsökunarbeiðni og að leikurinn yrði tekinn úr búðum. Hins vegar tókst sony-mönnum að bjarga sér fyrir horn með afsökun og útskýringum.
Manhunt 2
2007: PS2, Wii, PSP
fyrri manhunt-leikurinn var bannaður úti um allt, en það er
ekkert miðað við þennan. Leikurinn fékk aO-merkingu, sem
þýðir að hann er of óhugnanlegur fyrir flesta. engir smásalar
vilja heldur dreifa leikjum sem hafa aO-merkingu og ákvaðu
því rockstar-menn að breyta leiknum til hins betra. Nú hefur
hann fengið m-merkingu, en mun eflaust valda miklu
fjaðrafoki. manhunt 2 kemur út í lok október.