Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2007, Qupperneq 54
föstudagur 21. september 200754 Helgarblað DV
Umsjón: Sigga Ella. Netfang: tiska@dv.is
Tískan
Sjúklega sæt og seiðandi
portia de rossi er svo sjúklega sæt að það er ekki fyndið og seint mun maður gleyma augnablikinu þegar hún steig
fyrst fram í þáttunum ally mcbeal á sínum tíma. Hún er svo heit að það er sama hvað hún gerir, hún er alltaf töff.
portia de rossi krækti sér í ellen degeneres og hafa þær stöllur verið par í þó nokkun tíma. portia de rossi er alltaf svo
töff og sannaði það með meiru með hlutverki sínu sem Lindsay bluth fünkeer í hinum stórgóðu þáttum arrested
development.
Rautt er heitt í kuldanum
Það er alltaf gaman að hlýja sér á undraverðan hátt og eitt af því sem hægt er að gera er að klæða sig í heita liti.
Rauður litur er heitur, minnir mann á ástina, rauðar rósir og allt það sem fær mann til að fá fiðring í magann.
Rautt er heitur litur og það er alltaf gott að eiga þessa einu flík í eldrauðu sem fær þig til að roðna í kinnum.
Heitasta mamman
Þau eru svo ótrúlega töff fjöl-
skylda að það er spurning hvort
einhver myndi ekki vilja vera
fluga á vegg heima hjá þeim í
nokkra daga. Nú á dögunum fór
heitasta mamman í bænum,
angelina Jolie, með maddox og
Zahöru í skólann eins og oft áður.
að sjálfsögðu voru þau hundelt
af ljósmyndurum en þau voru
allavega heit á meðan og öll í stíl.
Hvítt var þemað.
Fall er FararHeill
eitt af því sem verður ávallt vinsælt er fall fyrirsætnanna og er kosið um bestu
föllin, flestu og verstu. milana bogolepova á dior 2008 verður minnst fyrir að
vera flott en einnig völt því hún féll með meiru á sýningunni nú um daginn.
aumingja bogolepova var ein af þeim sem féllu ekki bara einu sinni
heldur tvisvar. bogolepova kenndi hælunum um en eitthvað var talað um of
marga kampavínssopa.
Heimasíðu-
kóngurinn
Nafn? „steinunn bergs“.
Hvað ertu að gera? „Ég er að
klára líffræði í Háskólanum og
vinna hjá sagafilm“.
Með hverju mælir þú? „supplies-
partíum, dansi og góðum
stundum með góðum vinum.
síðan er alltaf gott að dansa og fátt
er jafnyndislegt og sundferð fyrir
svefninn.“
Í Reykjavík er gott að vera
vegna þess að? „Þar búa
fjölskyldan og vinirnir. Í reykjavík
er gott og blessað en þaðan er
líka stutt að fara hvert sem er um
landið. Og það er fátt sem jafnast
á við landslagið hér heima, loftið
og já bara allt. Hér er gott að
búa“.
Heimasíða vikunnar? „Ég mæli
með að allir kíki inn á heimasíðu
vinkonu minnar hennar söru, þar
er sko hægt að gleyma sér
tímunum saman. endilega kíkið
inn á http://sarariel.com.“
spúútnik, 3.500 kr.
spúútnik, 9.500 kr.
glamúr, 4.900 kr.
Kronkron, Vivienne Westwood, 24.900 kr.
bask, 10.990 kr.
glamúr, 2.900 kr.
spúútnik, 2.900 kr.
Kronkron, Zarah Vough, 4.500 kr.
spúútnik, 1.200 kr.
Kronkron, bernhard Willhelm, 27.900 kr.
HHH