Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2007, Side 56
föstudagur 21. september 200756 Helgarblað DV
TónlisT
„Þetta eru svona vinahljómsveita-
tónleikar,“ segir tónlistarmaður-
inn Örlygur Þór Örlygsson sem spil-
ar á tónleikum á Nasa í kvöld ásamt
hljómsveitunum Jeff Who? og Dikta.
„Við þekkjumst allir vel og skipuleggj-
um þetta sjálfir þannig að stressið er
ennþá meira fyrir vikið,“ segir Örlygur
um tónleikana en húsið verður opn-
að klukkan 23.00 og kostar litlar 500
krónur inn.
„Ég byrja tónleikana en þar sem
ég er sólólistamaður og ekki með
neina hljómsveit á mínum snærum
sér Dikta um að spila lögin mín,“ seg-
ir Örlygur sem er betur þekktur sem
Ölvis. „Þetta byrjar í geðveiki og end-
ar í gúmmelaði,“ segir Ölvis um fram-
vindu tónleikanna. „Þar sem mín tón-
list er hálfgerð sýra og svo kemur Dikta
sem spilar sýrupopp og að lokum Jeff
Who? sem spilar rokkað popp.“
Ölvis hefur gert tónlist frá 13 ára
aldri en hann er 29 ára í dag. „Ég hef
gefið út þrjár plötur hjá ensku plötu-
fyrirtæki sem heitir Resonant,“ segir
Ölvis en hann hefur vakið þó nokkra
athygli með tónlist sinni í Bretlandi.
Hljómsveitin Jeff Who? vinnur nú
hörðum höndum að sinni annarri
plötu. Sú fyrsta, sem bar nafnið Death
Before Disco, sló rækilega í gegn og
skaut strákunum fram á sjónarsvið-
ið. Fyrsta lagið af nýju plötunni heit-
ir She´s Got The Touch og hefur gert
það gott á útvarpsstöðvum landsins í
sumar. Sveitin mun að öllum líkind-
um taka meira nýtt efni á tónleikun-
um. asgeir@dv.is
Undir áhrifum
Dr. Dres
richard Huges, trommuleikari bresku
svietarinnar Keane, segir á heimasíðu
sveitarinnar að þriðja plata hennar
gæti allt eins verið undir áhrifum frá
rapptónlistarmógúlnum dr.dre. „Við
ætlum að reyna eitthvað nýtt á næstu
plötu. Ég hef til dæmis hlustað mikið á
dr. dre. platan hans 2001 er sennilega
það mest spilaða á ipodinum mínum.“
Huges segir að ólíklegt sé að tökur á
plötunni hefjist fyrir jól en sennilega
stuttu eftir áramót.
Tónlistarakademía DV segir
Hlustaðu á þessa!
m-Ward – post War
the Whitest boy alive – dreams
Iron & Wine – the shepherd‘s dog
In our Nature – José gonzalez
devendra banhart – smokey rolls down thunder Canyon
Skarst illa
á hendi
söngvarinn Kelly Jones, forsprakki
hljómsveitarinnar stereophonics,
skarst illa á hendi eftir að hann lenti í
átökum við öryggisverði á skemmti-
staðnum amika. Þangað héldu Jones
og félagar í eftirpartí eftir að hafa
spilað á Vodafone Live-tónlistarverð-
laununum. Jones var hent út af
staðnum eftir að hafa farið inn á
kvennaklósett. Í átökunum skar hann
sig á brotnu glasi svo að blóð spýttist
úr hendi hans. Hringja þurfti á sjúkrabíl
og var gert að sárum Jones fyrir utan
staðinn.
Kvikmynd veitti
innblástur
rappmógúllinn Jay-Z mun gefa út nýja
plötu 6. nóvember næstkomandi þrátt
fyrir að hafa tvisvar sinnum lýst því yfir
að vera sestur í helgan stein. Ástæðan er
sú að eftir að Jay-Z sá myndina
american gangster með denzil
Washington fann hann fyrir svo miklum
innblæstri að hann sá sig tilneyddan að
semja tónlist. myndin fjallar um
eiturlyfjakónginn frank Lucas sem var
uppi á sjöunda áratugnum en
rappararnir t.I., Common og rZa leika
meðal annars í myndinni.
Hljómsveitirnar Jeff Who? og Dikta halda tónleika á Nasa í
kvöld ásamt tónlistarmanninum Ölvis.
Ungi og efnilegi rapptónlistarmaðurinn Davíð Tómas Tómasson eða Dabbi T gefur út
sína fyrstu plötu í dag sem heitir Óheflað málfar. Dabbi segist leggja sitt af mörkum til að
blása lífi í íslenska rapptónlist á ný og hvetur aðra rappara til að gera slíkt hið sama.
„Platan kemur vonandi í verslanir í dag,“ seg-
ir 18 ára rapparinn Davíð Tómas Tómasson, bet-
ur þekktur sem Dabbi T. „Ég átti að fá plötuna á
þriðjudaginn en hún fór í fjölföldun í Danmörku,“
segir þessi ungi rappari úr Vesturbænum. „Dan-
irnir brutu glermasterinn og því hefur hún tafist.“
Þetta er fyrsta plata Dabba T og hefur hún verið
lofuð af þeim sem til þekkja í rappbransanum.
Óheflað málfar
„Ég er búinn að vinna að þessari plötu síðasta
árið,“ segir Dabbi en platan ber titilinn Óheflað
málfar. „Þetta er 16 laga plata og ég er mjög sátt-
ur við útkomuna,“ en Dabbi segir plötuna aðallega
vera tjáningaform. „Allir tjá sig á mismunandi hátt
og þetta er mín leið.“ Aðspurður segir Dabbi að
áhrifavaldarnir séu margir, „Ætli ég sé samt ekki
helst svolítið Eminem-skotinn.“
Dabbi fær hjálp frá fjórum mismunandi takta-
smiðum eða pródúserum á plötunni sem koma
víða að úr heiminum. „Það er strákur sem heitir
Jóhann Dagur sem gerði flesta taktana á plötunni.
Annar íslenskur strákur sem kallar sig Neðan-
jörður á einnig takta á henni,“ en hinir tveir takta-
smiðirnir eru Svíi og Bandaríkjamaður sem Dabbi
kynntist á vefnum myspace.com.
Afsprengi Rottweilerbylgjunnar
„Ég byrjaði í þessu á fullu þegar Rottweiler-
sprengjan var,“ segir Dabbi aðspurður hvernig
áhugi hans á rapptónlist kviknaði og vitnar þá í
miklar vinsældir hljómsveitarinnar XXX Rottweil-
erhunda fyrir nokkrum árum. Dabbi segir rapp-
tónlistarsenuna vera að dofna og að grípa verði til
aðgerða eigi hún að ná fyrri hæðum. „Það eru allt
of margir að gera eitthvað í sínu horni en gefa ekki
neitt út. Það þurfa að koma út fleiri plötur,“ og telur
Dabbi það helstu leiðina til að lífga upp á senuna
á ný. „Það eru allt of margir bara með tónlistina í
tölvunni,“ en þar fær almenningur ekki að heyra
hana bendir Dabbi réttilega á. „Ég er að leggja mitt
af mörkum með þessari plötu og ég hvet fleiri til að
gera það sama.“
Skóli eftir áramót
Dabbi hefur einbeitt sér að tónlistinni undan-
farið en ætlar í skóla eftir áramót. „Ég ætla í FÁ
að klára stúdentsprófið og sjá svo hvert það leið-
ir mig,“ en Dabbi ætlar einnig að halda tónleika á
næstunni. „Útgáfutónleikarnir voru á Gauknum
á miðvikudaginn því þá átti platan að koma út en
svo verð ég einnig með tónleika 4. október í Hinu
húsinu,“ segir Dabbi að lokum en platan hans
Óheflað málfar er fáanleg í Skífunni, 12 tónum og
smekkleysu. asgeir@dv.is
„Byrjar í geðveiki, endar í gúmmelaði“ ÖlviS spILar Á Nasa Í KVöLd Ásamt Jeff WHo? og dIKta.
„OF MARGIR MEÐ
TÓNLISTINA Í TÖLVUNNI“
Óheflað málfar Kemur í verslanir í dag.
Davíð Tómas
Tómasson
ungur og
efnilegur
rappari á
uppleið.