Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2007, Page 62
föstudagur 21. september 200762 Síðast en ekki síst DV
Sandkorn
n Hljómsveitin Our Lives er um
þessar mundir í tónleikaferðalagi
um Bretlandseyjar en hún hefur
verið dugleg að greina frá því á
Myspace-síðu sinni hvað gengur
á í ferðinni. Í nýjustu fréttum frá
strákunum í sveitinni er hins veg-
ar greint frá því að þeir hafi gist
á hosteli í Bretlandi um daginn
og þegar þeir hafi komið niður í
morgunmat hafi verið blóð um
öll gólf í matsalnum. Einnig segj-
ast strákarnir hafa fengið tvær
líflátshótanir frá einhverjum Bret-
um en segjast þó allavega geta
huggað sig við það að veðrið sé
hið prýðilegasta.
n Í fyrrakvöld varð ljóst að einn
prestur Grafarvogskirkju, séra
Anna S. Pálsdóttir hefði ver-
ið skipuð
Dómkirkju-
prestur. Á vef
tímaritsins
Mannlífs er
þess getið að
séra Anna
sé móð-
ir Gunnars
Hanssonar
leikara en hún á líka tvo aðra
og öfluga syni: Árna Pál, kvik-
myndagerðarmann hjá True
North og Ragnar sem er leikstjóri
þáttanna vinsælu um Frímann
Gunnarsson. Í dag, 21. septem-
ber, eru nákvæmlega tíu ár frá
því séra Anna var vígð inn í
embætti prests. Vígslan fór fram
í Dómkirkjunni. Þar var faðir
Önnu, Páll Ísólfsson, organisti og
kórstjóri í áratugi enda sagði séra
Anna í samtali við dv.is að henni
fyndist hún vera komin heim.
n Á vefsíðunni mannlif.is var
greint frá því í gær að leikarinn
ungi og efnilegi Þorvaldur Dav-
íð Kristjáns-
son hefði
fengið millj-
ón króna
styrk frá
Baugi. Styrk-
urinn mun
vera upp í
skólagjöld
kappans en
hann stundar nú nám við virta
leiklistarskólann Juilliard í New
York. Meðal leikara sem hafa
stundað nám við Juilliard eru
meðal annars hinn góðkunni
Christopher Reeve sem lék
Superman, grínistinn og leikar-
inn Jamie Foxx, Kevin Spacey,
Val Kilmer og Ving Rhames að
ógleymdum hinum óborganlega
Robin Williams.
Hver er maðurinn?
„Hann er 53 ára Vestmannaeying-
ur.“
Hvað drífur þig áfram?
„Kannski einhvers konar blanda
af metnaði og vilja til þess að hrinda
hugmyndum mínum og jafnvel hug-
sjónum í framkvæmd.“
Hvað gerir þú í frístundum?
„Mestmegnis ver ég mínum fáu
frístundum með fjölskyldunni en
tómstundagamanið snýst aðallega
um veiðar af ýmsu tagi. Þar eru fugla-
veiðar og fiskveiðar í aðalhlutverki.“
Áttu stóra fjölskyldu?
„Já, ég á stjóra fjölskyldu. Ég á
konu, fjögur börn, fjögur barna-
börn, auk þess sem ég á bæði hund
og kött.“
Hvernig myndir þú lýsa
starfinu þínu í einni setningu?
„Starfið mitt er spennandi og ögr-
andi argaþras.“
Stenst RÚV fjárhagsáætlun?
„Já, RÚV stenst fjárhagsáætlun.“
Gætir þú hugsað þér að verða
sjónvarpsstjóri SkjásEins
svo þú næðir að verða sjón-
varpsstjóri á öllum
vígstöðvum?
„Nei, ég myndi ekki vilja það. Alla-
vega ekki í augnablikinu að minnsta
kosti.“
Pirrar þig umfjöllunin
um bílinn þinn?
„Hún pirrar mig í sjálfu sér ekki.
Mér finnst þó satt best að segja dá-
lítið bjánalegt að sjá sömu fréttina í
fimmta, sjötta eða sjöunda sinn.“
Saknar þú þess að vera
í hlutverki fréttamannsins?
„Já, ég sakna þess mikið. Starf
óbreytts fréttamanns er skemmti-
legasta starf sem ég hef unnið og ég
vildi gjarnan fá tækifæri til að starfa
við það aftur.“
Gætir þú hugsað þér
að verða forseti?
„Nei, varla. Ég veit ekki hvort mér
fyndist það nógu spennandi.“
Hvar sérð þú RÚV eftir tíu ár?
„Eftir tíu ár sé ég Ríkisútvarpið fyr-
ir mér sem þróttmikinn, sjálfstæðan
og sterkan fjölmiðil í almannaþjón-
ustu.“
Verður þú við stjórnvölinn?
„Ég veit það ekki. Það er ómögulegt
að segja. Tíu ár eru langur tími í þess-
um bransa og hlutirnir geta verið fljót-
ir að gerast.“
Kaupir þú ennþá bara
það besta?
„Nei, ég kaupi ekki bara það besta
en reyni auðvitað að kaupa það eins
oft og ég get. Stundum geri ég mistök
í innkaupum, eins og aðrir.“
Í DAG Á MORGUN
HINN DAGINN
Veðrið
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx +xx
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx +xx
+xx
+xx
+xx
xxxx
xx
xx
xx
+6
7
xxxx
xx
xx
xx
xx
xx
+8
4
+8
4
+4
7
xx
+6
4
xx
xx
xx
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx +xx
+xx
+xx
+xx
+xx
+xx +xx
+xx
+xx
+xx
xxxx
xx
+44
xx
xx
xxxx
+5
4
+7
7
xx
+8
4
+5
7
xx
xx
xx
xx
+5
7
xx
+7
7
+7
4
+8
4
+6
12
xx
xx
xx
-xx
-xx
MAÐUR
DAGSINS
Spennandi og
ögrandi argaþraS
Páll Magnússon hefur
sem útvarpsstjóri í mörg horn
að líta þessa dagana. Í vik-
unni sagði hann Ríkisútvarpið
vinna samhliða Ríkisendur-
skoðun að því að fínstilla
reksturinn en vísaði því á bug
að RÚV ohf. færi fram úr fjár-
hagsáætlun.
Stjörnur
vIkUNNAR
ekki leikur nokkur vafi á því að
lögreglan og Landhelgisgæslan
eiga skilið flestar stjörnur þessa
vikuna fyrir að leggja hald á mesta
magn fíkniefna sem um getur í
Íslandssögunni á fáskrúðsfirði í gær.
Lögregluembættið og Landhelgis-
gæslan í heild sinni fá því fjórar
stjörnur í von
um að þær verði
hvati til þess að
leggja hald á
ennþá meira
magn fíkniefna í
framtíðinni.
valnefnd í Dómkirkjuprestakall
fær þrjár stjörnur fyrir að mæla með
önnu sigríði pálsdóttur í embætti
dómkirkjuprests. Hún verður því
fyrsta konan
sem gegnir
embætti
dómkirkjuprests
og er þar með
enn eitt vígi
karla fallið.
Björgólfsfeðgar fá tvær stjörnur
fyrir að ætla að lífga upp á miðbæinn
með byggingu svokallaðs miðborg-
arkjarna við barónsstíg. Kaupmenn
og íbúar í miðbænum hafa löngum
kvartað undan skorti á stóru
verslunar- og þjónusturými og nú er
loks útlit fyrir að leyst verði úr því
vandamáli. miðbærinn hefur verið á
uppleið undanfarin ár en það er ekki
spurning að framtak bjögganna bæti
þar um enn betur. Það er að minnsta
kosti kominn tími til þess að hægt sé
að versla
innanhúss við
Laugarveginn
að vetri til þegar
kuldinn bítur of
mikið.
Heilbrigðisráðherra, Guðlaugur Þór
Þórðarson, fær eina stjörnu fyrir að
leggja niður eina af fjölmörgum
óþarfanefndum sem eru í gangi,
byggingarnefnd um nýjan Landspít-
ala, þótt við það hafi gamli refurinn,
alfreð Þorsteinsson, misst bitlinginn
sinn. guðlaugur fengi eflaust enn
fleiri stjörnur héldi hann áfram á
sömu braut og legði af fleiri nefndir
sem engin þörf
er á því
verkefnin má vel
vinna annars
staðar og þá án
aukagreiðslna.
Hann hlýtur að
gera það.
NÚ GETUR ÞÚ LESIÐ
DV Á DV.IS DV er
aðgengilegt
á dv.is og
kostar
netáskriftin
1.490 kr. á
mánuði