Dagskrá: tímarit um menningarmál - 01.01.1958, Qupperneq 30
ernt í þessu lilliti. Og cf minnzt er
þess, að kenningin uni einingarnar
þrjár, tíma, rúms og atburðarásar,
sem svo dyggilega er fylgt í sígildum
leikritum frönskum frá I’ancien regi-
me, varð reyndar til fyrir misskilning
á reglum Aristotelesar, þá gctur vakn-
að sú spurning, livort hún hafi meir
verið í samræmi við hugsunarhátt
Grikkja á 3. öld fyrir Krist eða þegna
hins franska sólkonungs. M. ö. o. meg-
um við ekki líta á þau heiti, sem við
skellum á bókmenntastefnur og tíma-
bil sem neina algilda hluti, því að við
þykjumst aðeins greina sameiginleg
einkenni, en nokkur takmörk þekkj-
um við ekki til hlítar (sem bctur fer).
Og samt eru þessi heiti okkur mjög
til hagræðis.
Við þurfum sennilega að grípa til
margra slíkra heita, ef við ætlum að
greipa leikritun í dag og þær ættir,
sem til hennar má rekja, því að hér
kennir margra grasa. Sjaldan áður
hafa jafnmargar og jafnólíkar tegund-
ir leikrita fengið að þróast hlið við
hlið, án þess að ein tegundin þætti
rétthærri skáldskapur eða skáldskap-
arform að dómi bókmenntapáfa og
síðan almennings. Ekki svo að skilja,
að þroskinn og umburðarlyndið sé
orðið svo gífurlegt, að hið yngsta og
djarfasta og frjóasta hljóti hylli alls
fólks. Þá þætti manni tíminn vera
farinn að móta kynslóðirnar allund-
arlega. En hér ríkir blessuð fjöl-
breytni. Og nú kvað leiklistin og þar-
með leikritin eiga að vera spegill
mannlífsins — spáspegill eða spéspeg-
ill —, og hvað er þá cðlilegra, fyrst
lífið er svo margbreytilegt?
Að sjálfsögðu finnst okkur sum leik-
ritin að efni, formi og anda betri full-
trúar okkar tíma en önnur. A sama
hátt og við veljum fremur þýzku ex-
pressionistana og tilraun þeirra til að
Sveinn Einarsson jœddisl í Reykja-
vík 18. sept. 1934, sonur Einars Olafs
Sveinssonar prófessors og konu lians
Kristjönu Þorsteinsdóttur. Hann tók
stúdentspróf viS Menntaskólann í
Reykjavík vorið 1954, fór þá um
haustiS til Stokkhólms og hefur síðan
stundað nám við Stokkhólmsháskóla í
bókmenntum og leiklistarsögu. Hann
hefur farið námsferðir til Parísar og
Kaupmannahafnar til að kynnast leik-
listarlífi í þeim borgum.
Undanfarin sumur hefur Sveinn ver-
ið blaðamaður við Alþýðublaðið og
m. a. ritað nokkra leikdóma fyrir blaðið.
Ritstj.
28
DAGSKRA