Fréttatíminn - 02.05.2014, Blaðsíða 2
SUMARTILBOÐ
Smiðjuvegi 2, Kóp - S. 554 0400
Skoðið úrvalið á
www.grillbudin.is
94.900
• 3 brennarar úr ryðfríu stáli
• Postulínsemalerað eldhólf
• Grillgrindur úr pottjárni
• Kveiking í öllum rofum
• Auka steikarplata fylgir
• Niðurfellanleg hliðarborð
• Efri grind
• Bakki fyrir fitu
• Hitamælir
• Fáanlegt í fleiri litum
Er frá Þýskalandi
Opið til kl. 16 á laugardag
Niðurfellanleg
hliðarborð
Safnahúsið endurheimtir sitt gamla nafn
N ý sjónvarpsstöð, iSTV, hefur útsendingar á þjóðhátíðardaginn. Sigurjón Haralds-son er einn stofnenda og segir hann að stöðin verði fyrst og fremst efnisveita og muni ekki sjálf framleiða efni. „Við ætlum að gefa ungu og efnilegu þáttagerða-
fólki tækifæri til þess að koma efni sínu á framfæri og erum því ekki hefð-
bundin sjónvarpsstöð í þeim skilningi,“ segir Sigurjón. Stöðin verður
ekki með eigið stúdíó heldur sendir út efni frá öðrum. „Það er mikil
gróska í þáttagerð og ekki allir sem koma efninu sínu að hjá stóru
stöðvunum. Við ætlum að gefa þeim pláss hjá okkur,“ segir Sigurjón.
Á miðvikudaginn tilkynnti Konunglega kvikmyndafélagið, sem
rekur fjölmiðlana Bravó og Miklagarð, að öllu starfsfólki hefði verið
sagt upp eftir tæplega tveggja mánaða rekstur. Sigmar Vilhjálmsson,
stofnandi félagsins, segir að verið sé að leita að nýju hlutafé til að
styrkja reksturinn og vonast til að hægt verði að ráða alla starfsmenn
sjónvarpsstöðvanna aftur.
Sigurjón óttast ekki rekstrarumhverfi fjölmiðla á Íslandi
þrátt fyrir þessar fréttir. „Við erum með mjög litla yfir-
byggingu og engan kostnað við stúdíó og þess háttar,“
segir Sigurjón. Rekstrargrundvöllur iSTV verður sala
auglýsinga. Fólki gefst kostur á að senda út þætti
sína á iSTV og selja sjálft auglýsingar í þá. Þá taki
iSTV hlutfall af auglýsingasölu. Velji þáttagerðar-
fólk að selja ekki auglýsingar sjálft mun sjónvarps-
stöðin sjálf selja auglýsingar í þættina.
Aðspurður segir Sigurjón að stöðin muni gæta
þess að sjónvarpsefnið sem sent verður út upp-
fylli ákveðnar kröfur. „Við sendum ekki út hvað
sem er en þetta er hins vegar frábært tækifæri
fyrir fólk sem hefur áhuga á þáttagerð og hef-
ur verið að vinna að eigin efni,“ segir hann.
Jón Emil Árnason er sjónvarpsstjóri iSTV,
Guðmundur Týr Þórarinsson dagskrárstjóri
og Bonni ljósmyndari markaðsstjóri.
„Við erum ekki að fara af stað til höfuðs
einum né neinum,“ segir Sigurjón, „heldur
að bæta við nýjung á markaðinn. Sem dæmi
um þátt sem verður hjá okkur er matreiðslu-
þáttur fyrir fólk sem nennir ekki að elda.
Allir hinir eru með hefðbunda þætti en við
ætlum að fara aðrar leiðir,“ segir hann. Hægt
verður að horfa á útsendingar stöðvarinnar í
gegnum myndlykla Símans og Vodafone sem
og á netinu.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Kópavogsbæ hefur verið birt stefna af
hálfu hluta erfingja Sigurðar K. Hjalte-
sted, fyrrum ábúenda á Vatnsenda. Eru
dómkröfur stefnenda þær að Kópavogs-
bær greiði þeim 74.811.389.954 krónur,
tæplega 75 milljarða, vegna eignar-
náms á landi í Vatnsenda árin 1992,
1998, 2000 og 2007. Fjárhæð varakröfu
er 47.558.500.000 krónur, rúmlega 47,5
milljarðar, að því er fram kemur í til-
kynningu Kópavogsbæjar. Málið verður
þingfest 5. nóvember.
„Kópavogsbær telur umrædda mál-
sókn með öllu tilhæfulausa og fjárhæð
dómkröfunnar í besta falli fráleita. Mun
Kópavogsbær krefjst sýknu af öllum
kröfum stefnenda,“ segir í tilkynning-
unni. „Kópavogsbæ hefur í fjögur skipti
verið heimilað að taka land í Vatnsenda
eignarnámi. Í öllum tilvikum fór eignar-
nám fram á grundvelli eignarnáms-
heimildar frá opinberum stofnunum
og ráðherra. Var Kópavogsbæ skylt að
ráðstafa eignarnámsbótum til þinglýsts
eiganda Vatnsenda sem jafnframt var
ábúandi jarðarinnar.
Aðrir opinberir aðilar sem fram-
kvæmt hafa eignarnám í landi Vatns-
enda hafa jafnframt ráðstafað eignar-
námsbótum til ábúenda jarðarinnar
á hverjum tíma. Þeir opinberu aðilar
eru íslenska ríkið, Reykjavíkurborg og
Landsvirkjun.
Áréttað er að öll aðilaskipti að fast-
eignum eru háð þeirri grundvallarfor-
sendu að aðilar megi treysta á réttmæti
upplýsinga úr þinglýsingarbók. Önnur
regla myndi leiða til gríðarlegrar óvissu
um það kerfi sem gildir um skráningu
eignarhalds að fasteignum á Íslandi.
Kópavogsbær harmar að hann hafi
verið dreginn inn í harðvítugar deilur
milli erfingja að dánarbúi Sigurðar K.
Hjaltested sem lést árið 1966. Umrætt
dánarbú er enn til opinberra skipta.“ -jh
VatNseNdalaNd KópaVogsbær blaNdast í harðVítugar deilur erfiNgja dáNarbús
Kópavogsbær segir 75 milljarða kröfu tilhæfulausa
Vatnsendaland. Kópavogsbæ hefur verið stefnt til að greiða nær
75 milljarða króna vegna eignarnáms þar. Bærinn telur málsóknina
tilhæfulausa og fjárkröfur fráleitar.
fjölmiðlar istV er NýjuNg á ljósVaKamarKaði
Ný sjónvarpsstöð,
iSTV, í loftið í júní
Ný sjónvarpsstöð hefur útsendingar þann 17. júní. Markmiðið er að gefa nýju þáttagerðarfólki
tækifæri til að koma sjónvarpsefni sínu á framfæri. Stöðin, sem nefnist iSTV, verður ekki með
eigin framleiðslu á efni, heldur er einungis efnisveita fyrir aðra framleiðendur.
„Það er mikil gróska í
þáttagerð og ekki allir
sem koma efninu
sínu að hjá stóru
stöðvunum. Við
ætlum að gefa
þeim pláss hjá
okkur,“ segir
Sigurjón Haralds-
son, einn af
stofnendum nýrrar
sjónvarpsstöðvar,
iSTV, sem hefur
útsendingar
17. júní.
Sveinbjörg nýr for-
ingi Framsóknar
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir
héraðsdómslögmaður verður í fyrsta
sæti B-lista Framsóknarflokksins og
flugvallarvina við borgarstjórnar-
kosningarnar 31. maí. Nýr framboðs-
listi var samþykktur á kjördæmisþingi
í vikunni. Áður hafði Óskar Bergsson
dregið sig í hlé af samþykktum lista
Framsóknarflokksins. Vangaveltur
um að Guðni Ágústsson, fyrrverandi
formaður flokksins, mundi snúa aftur í
stjórnmál sem oddviti flokksins runnu
út í sandinn. Í öðru sæti verður Guð-
finna Jóhanna Guðmundsdóttir, sem
einnig er héraðsdómslögmaður. Þriðja
sæti skipar Gréta Björg Egilsdóttir
íþróttafræðingur, í fjórða sæti er Jóna
Björg Sætran, menntunarfræðingur
og markþjálfi, og í fimmta sæti Hreiðar
Eiríksson, héraðsdómslögmaður og
fyrrverandi lögreglumaður.
Safnahúsið við Hverfis-
götu, áður Þjóðmenn-
ingarhúsið, sem var vígt
28. apríl 1909 hefur nú
fengið gamla nafn sitt
aftur, að því er fram
kemur í tilkynningu Þjóð-
minjasafnsins. Þar segir
að um þessar mundir sé
unnið að grunnsýningu
um íslenska listasögu og
sjónrænan menningar-
arf sem fyrirhugað er
að opna í Safnahúsinu í
haust. „Það er í anda sam-
starfs nokkurra stofnana
sem að sýningunni standa
að nafnbreytingin á sér
stað nú, en stofnanirnar
eru Þjóðminjasafn Ís-
lands, sem sér um rekstur
hússins, Listasafn Íslands,
Náttúruminjasafn Íslands,
Þjóðskjalasafn Íslands,
Landsbókasafn Íslands
- Háskólabókasafn og
Stofnun Árna Magnússon-
ar í íslenskum fræðum.
Sýningarstjóri nýrrar
grunnsýningar Safna-
hússins er Markús Þór
Andrésson en valinn hluti
safnkosts áðurnefndra
menningarstofnana
verður til sýnis, frá elstu
varðveittu heimildum til
dagsins í dag. Samstarf
þessara stofnana býður
upp á einstakt tækifæri
til að skoða arfleifðina í
nýju samhengi og varpa
ljósi á ósagða sögu með
nýstárlegum hætti.
Markmið aðstandenda
sýningarinnar er að ná
sérstaklega til skólafólks
og fjölskyldna en um leið
til ferðamanna.“ - jh
Safnahúsið við Hverfisgötu var vígt fyrir 105 árum, í
apríl 1909. Mynd/Landsbókasafn Íslands - Háskólabókasafn.
Samið við Isavia en verk-
fall boðað hjá Icelandair
Félag flugmálastarfsmanna ríkisins hefur
undirritað nýjan kjarasamning við Isavia.
Samningurinn gildir í þrjú ár og felur í sér 14%
launahækkun á þeim tíma en 2,8% á þessu ári.
Allsherjarverkfalli, sem átti að hefjast síðast-
liðinn miðvikudag, hefur því verið frestað til
22. maí, og verður afboðað ef félagsmenn
samþykkja samninginn í atkvæðagreiðslu.
Vinnudeilur, sem tengjast millilandaflugi, eru
þó ekki að baki því flugmenn hjá Icelandair
hafa boðað ótímabundið yfirvinnubann jafn-
framt því sem þeir hafa boðað til verkfalls
á dagvinnutíma fimm daga í maímánuði og
skellur hið fyrsta á þann 9. maí, hafi ekki sam-
ist fyrir þann tíma.
2 fréttir Helgin 2.-4. maí 2014